Framsókn og Sjálfstæðisflokkur hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihlutar í Hafnarfirði. Oddvitar flokkanna munu hafa stólaskipti á miðju kjörtímabili.
Fram kemur í tilkynningu frá flokkunum að síðustu daga hafi verið unnið að málefnasamningi flokkanna og hann verði kynntur á næstu dögum.
Helstu verkefni nýs meirihluta verði að undirbúa þá miklu íbúafjölgun sem framundan sé á kjörtímabilinu, stuðla áfram að kröftugri uppbyggingu fjölbreytts húsnæðis, tryggja öfluga og skilvirka þjónustu, velferð fyrir alla aldurshópa og halda áfram ábyrgri fjármálastjórnun.
Þá segir í tilkynningunni að Rósa Guðbjartsdóttir, núverandi bæjarstjóri, verði áfram bæjarstjóri til 1. janúar 2025 og Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar, taki þá við starfinu. Þar til verði hann formaður bæjarráðs.
Kristinn Andersen verður forseti bæjarstjórnar út kjörtímabilið.
Frekari upplýsingar um kosningarnar af vefnum kosningasaga:
Í bæjarstjórnarkosningunum 2022 voru eftirtaldir listar í kjöri: Framsóknarflokkur, Viðreisn, Sjálfstæðisflokkur, Bæjarlistinn, Miðflokkurinn og óháðir, Píratar, Samfylkingin og Vinstrihreyfingin grænt framboð. Sjálfstæðisflokkur hlaut 4 bæjarfulltrúa og tapaði einum, Samfylking 4 og bætti við sig tveimur, Framsóknarflokkur 2 og bætti við sig einum og Viðreisn 1. Bæjarlistinn og Miðflokkurinn töpuðu sínum bæjarfulltrúum. Píratar og Vinstrihreyfingin grænt framboð fengu ekki kjörna bæjarfulltrúa. Pírata vantaði 92 atkvæði til að ná inn bæjarfulltrúa á kostnað Framsóknarflokks.
Úrslit:
Hafnarfjörður | Atkv. | % | Fltr. | Breyting | |
B-listi Framsóknarflokks | 1.750 | 13,67% | 2 | 5,64% | 1 |
C-listi Viðreisnar | 1.170 | 9,14% | 1 | -0,36% | 0 |
D-listi Sjálfstæðisflokks | 3.924 | 30,66% | 4 | -3,05% | -1 |
L-listi Bæjarlistans | 546 | 4,27% | 0 | -3,48% | -1 |
M-listi Miðflokksins | 363 | 2,84% | 0 | -4,74% | -1 |
P-listi Pírata | 784 | 6,13% | 0 | -0,40% | 0 |
S-listi Samfylkingar | 3.710 | 28,99% | 4 | 8,84% | 2 |
V-listi Vinstri grænna | 552 | 4,31% | 0 | -2,40% | 0 |
Samtals gild atkvæði | 12.799 | 100,00% | 11 | 0,04% | 0 |
Auðir seðlar | 295 | 2,25% | |||
Ógild atkvæði | 39 | 0,30% | |||
Samtals greidd atkvæði | 13.133 | 60,40% | |||
Kjósendur á kjörskrá | 21.744 |
Kjörnir bæjarfulltrúar | |
1. Rósa Guðbjartsdóttir (D) | 3.924 |
2. Guðmundur Árni Stefánsson (S) | 3.710 |
3. Orri Björnsson (D) | 1.962 |
4. Sigrún Sverrisdóttir (S) | 1.855 |
5. Valdimar Víðisson (B) | 1.750 |
6. Kristinn Andersen (D) | 1.308 |
7. Árni Rúnar Þorvaldsson (S) | 1.237 |
8. Jón Ingi Hákonarson (C) | 1.170 |
9. Kristín Thoroddsen (D) | 981 |
10. Hildur Rós Guðbjargardóttir (S) | 928 |
11. Margrét Vala Marteinsdóttir (B) | 875 |
Næstir inn | vantar |
Haraldur Rafn Ingvason (P) | 92 |
Davíð Arnar Stefánsson (V) | 324 |
Sigurður P. Sigmundsson (L) | 330 |
Guðbjörg Oddný Jónsdóttir (D) | 452 |
Sigurður Þ. Ragnarsson (M) | 513 |
Karólína Helga Símonardóttir (C) | 581 |
Stefán Már Gunnlaugsson (S) | 666 |