Það var mjög ánægjulegt að fá nýverið fréttir þess efnis að réttindi barna séu hvergi betur tryggð í heiminum en á Íslandi. Það er niðurstaða KidsRights index, sem er mælikvarði á það hvernig aðildarríki Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna virða réttindi barna. Þetta er annað árið í röð sem Ísland vermir toppsæti listans. Við verðum hins vegar að passa okkur á því að sofna ekki á verðinum heldur halda áfram að hlúa að börnum og umhverfi þeirra. Til þess að halda áfram að vera efst á listum af þessum toga þurfum við að vinna að því markvisst.Við höfum nú sett drög að stefnu um Barnvænt Ísland, markvissa innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, í samráðsgátt stjórnvalda þar sem almenningur getur komið á framfæri ábendingum og tillögum. Það er fagnaðarefni að geta kynnt þessi frumvarpsdrög opinberlega. Ein ástæða þess að ég vildi verða barnamálaráðherra var að ég vildi gera stórtækar breytingar í málefnum barna og fjölskyldna og er stefnan hluti af þeirri vinnu sem hefur farið fram undanfarin ár við að endurskoða og efla þjónustu og stuðning við börn og fjölskyldur.
Við mótun stefnunnar var áhersla lögð á að hagsmunir barna yrðu ávallt hafðir í fyrirrúmi og að við stefnumótun í málaflokknum væri mótuð heildarsýn, sem tæki mið af sjónarhorni allra aðila sem koma að málefnum barna og fjölskyldna, ekki síst barnanna sjálfra.
Markmið stefnunnar er að innleiða verklag og ferla sem tryggja jafnræði og markvissa þátttöku barna og ungmenna innan stjórnsýslunnar, aukið samstarf milli opinberra aðila með velferð barna að leiðarljósi, tryggja markvisst verklag við hagsmunamat út frá réttindum og velferð barna, auk heildstæðrar framkvæmdar réttinda barna. Smíðuð verður aðgerðaáætlun þar sem tillögurnar verða útfærðar nánar, skýr rammi settur utan um framkvæmd aðgerða, með tímasettum, kostnaðarmetnum og afmörkuðum markmiðum. Stefnt er að birtingu aðgerðaáætlunarinnar undir árslok 2020.
Tillögurnar sem kynntar eru í stefnunni varða alla aðila er fara með stefnumótun, framkvæmdaaðila þjónustu og aðra aðila sem taka ákvarðanir er varða börn, hvort sem er innan ráðuneyta, stofnana eða sveitarfélaga.
Það er mikið fagnaðarefni að stefnan um Barnvænt Ísland sé nú komin í samráðsgáttina. Stefnan er mikilvægur áfangi í þeirri góðu vinnu sem nú er unnin í málefnum barna en við erum að gera miklar breytingar í málefnum barna og fjölskyldna, þar sem markmiðið er að gera Ísland að enn betri stað fyrir börn.
Stefnan verður í samráðsgátt stjórnvalda til og með 26. júní nk. og ég hvet alla til að kynna sér stefnuna, koma á framfæri ábendingum og tillögum og taka áfram þátt í að móta framtíðina fyrir börnin okkar!
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 10. júní 2020.