Sjávarflóð eru náttúruvá sem Íslendingar þurfa að búa við og mikilvægt er að bregðast við á viðeigandi hátt. Líkt og í baráttunni við ofanflóð, þar sem sterk og markviss varnarvinna hefur skilað góðum árangri, er nauðsynlegt að setja upp öflugar sjóvarnir til að lágmarka skaða af völdum sjávarflóða.
Hækkandi sjávarstaða og auknar veðursveiflur gera það að verkum að mikilvægi sjóvarna hefur aldrei verið meira. Samkvæmt áætlunum samgönguáætlunar er gert ráð fyrir að verja 150 milljónum króna árlega í sjóvarnir á landsvísu. Það er ljóst að þessi upphæð er langt frá því að nægja til að mæta þeirri gríðarlegu þörf sem skapast hefur á undanförnum árum, sérstaklega á þeim svæðum sem eru hvað viðkvæmust fyrir ágangi sjávar.
Á Suðurnesjum hafa ítrekað komið upp tilvik þar sem sjávarflóð hafa ógnað byggð og innviðum. Í Suðurnesjabæ varð stórtjón 1. mars 2025 þegar hafnarmannvirki og aðrar eignir urðu fyrir miklum skaða af völdum sjávarflóða. Bændur og landeigendur urðu fyrir verulegu tjóni og annar golfvöllurinn í sveitarfélaginu var illa leikinn. Kirkjugarðar voru einnig í stórhættu á að verða fyrir ágangi sjávar.
Ástandið er þannig að jafnvel þyrfti í raun að nýta alla þá fjárhæð sem ætluð er í sjóvarnir á landsvísu eingöngu í Suðurnesjabæ til að tryggja nauðsynlegar varnir þar. Þetta undirstrikar hversu brýnt það er að endurskoða fjármögnun sjóvarna hér á landi.
Eitt mögulegt úrræði væri að skoða stofnun sérstaks sjávarflóðasjóðs að fyrirmynd ofanflóðasjóðs. Þannig mætti tryggja samræmda stefnu og stöðugan fjárhagslegan stuðning við varnir gegn sjávarflóðum um landið allt. Að sama skapi mætti horfa til þess að auka fjárveitingar ríkisins í sjóvarnir og setja slíkt á dagskrá ríkisstjórnarinnar.
Þegar horft er til framtíðar er ljóst að vandinn mun aðeins aukast. Loftslagsbreytingar, hækkandi sjávarstaða og aukin tíðni óveðra eru staðreyndir sem ekki er hægt að líta framhjá. Nú er tíminn til að bregðast við – áður en kostnaðurinn við aðgerðir verður óviðráðanlegur.
Ég skora á ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokki fólksins að setja sjávarflóð og sjóvarnir á dagskrá. Það er deginum ljósara að þörfin er knýjandi og hún á aðeins eftir að aukast á komandi árum. Nú er mikilvægt að grípa til aðgerða til að tryggja vernd viðkvæmra svæða fyrir sjávarflóðum.
Anton Guðmundsson, oddviti Framsóknarflokksins í Suðurnesjabæ.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 17. maí 2025.