Landsskipulagsstefna er nýtt og spennandi skipulagsverkfæri sem er ætlað að stuðla að sjálfbærri þróun, skilvirkri áætlanagerð og vera sveitarstjórnum leiðarljós við skipulagsgerð, en felur ekki í sér fyrirmæli um nákvæma útfærslu. Meðal annars er lögð áhersla á samspil ólíkrar landnotkunar og nýtingar lands einkum fyrir landbúnað, ferðaþjónustu og skógrækt.
Þingsályktunartillaga um landskipulagsstefnu 2015-2026 verður lögð fram nú á vorþingi. Umhverfis- og auðlindaráðherra fól Skipulagsstofnun í október 2013 að hefja vinnu við stefnuna og kynnti viðfangsefni og áherslur. Í vinnu sinni hefur Skipulagsstofnun nýtt vel þann tímaramma sem var til umráða og átt náið samráð við almenning, sveitarstjórnir, opinberar stofnanir og félagasamtök víða um land.
Ferlið hefur tekist sérlega vel. Reglulega var leitað eftir ábendingum og hugmyndum og segja má að almennt hafi þátttaka verið góð á fundum. Auk þess hefur sérstök nefnd verið Skipulagsstofnun og ráðherra til ráðgjafar.
Landið teiknað
Frá byrjun hefur almenningi gefist kostur á að koma að verkefninu og útfæra hugmyndir sínar myndrænt. Meðal annars var þátttakendum á opnum fundum boðið til vinnusmiðju þar sem einn eða nokkrir saman í hóp teiknuðu upp sína hugmynd að landsskipulagi á Íslandskort í mismunandi litum, allt eftir viðfangsefnum svo úr urðu um 100 kort sem nýttust í vinnunni.
Í framhaldinu var nokkrum valkostum stillt upp og þeir ræddir ítarlega á opnum fundum þar sem skipst var á skoðunum og samtímis boðið upp á að koma að skriflegum athugasemdum sem nýttar voru við endanlega tillögu að landsskipulagsstefnu. Loks sendi Skipulagsstofnun bréf á um 180 aðila með beiðni um umsögn og bárust 73 umsagnarbréf. Farið var yfir allar innsendar athugasemdir áður en gengið var frá formlegri tillögu að landsskipulagsstefnu sem skilað hefur verið til umhverfis- og auðlindaráðherra.
Ég hvet eindregið til þess að sem flestir kynni sér ferlið og tillöguna á landskipulag.is. Þegar vel tekst til getur skipulagsvinna dregið fram ímynd staða eða svæða og mætt þörf okkar á hverjum tíma, eins og fyrir aukna ferðaþjónustu. Aukin ásókn í takmarkaðar auðlindir getur leitt til aukins álags á umhverfið og óvissu og mun landskipulagsstefna því þurfa að vera í virkri þróun til framtíðar.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.