Nú þegar hillir undir að ríkisstjórnarflokkarnir efni helstu og stærstu kosningaloforð sín fara andstæðingar stjórnarinnar hamförum í áróðri sínum gegn ráðstöfunum sem felast í frumvörpunum tveimur sem nú liggja fyrir þinginu. Því er haldið fram að aðgerðirnar auki verðbólgu, hækki vexti og skaði fjárhag ríkis og sveitarfélaga inn í framtíðina. Aðgerðin, sem er tvíþætt, almenn og reist á réttlæti og sanngirni, mun hafa lágmarksáhrif á verðbólgu og vexti. Hún mun til skamms tíma hafa nokkur áhrif á sveitarfélögin en allar líkur eru á að þau áhrif fjari út og að sveitarfélög og ríki muni til langs tíma hagnast vegna betri skuldastöðu heimilanna.
Því er nú haldið fram af hálfu andstæðinga ríkisstjórnarinnar að þeir tekjuhæstu og eignamestu muni hagnast mest á aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Því fer fjarri. Hið sanna er að helmingur skuldaniðurfellingarinnar gagnast fólki með heimilistekjur undir sex milljónum króna á ári eins og til dæmis tveimur ASÍ-félögum sem halda heimili saman. 60 prósent upphæðarinnar koma í hlut fólks með heimilistekjur undir átta milljónum á ári, svo sem eins og tveimur kennurum eða tveimur BSRB-félögum. 80 prósent upphæðarinnar renna til fjölskyldna sem skulda meira en helming í íbúðarhúsnæði sínu. Meðalfjárhæð niðurfærslu á hvert heimili er rúmlega 1,1 milljón krónur og tæplega helmingur heimila fær niðurfærslu á bilinu hálf til ein milljón krónur.
Þessir hópar, ASÍ-félagar með meðallaun og BSRB/BHR-fólk með meðallaun þeirra samtaka, sem getið er um hér að framan, eru samkvæmt grein formanns Samfylkingarinnar í Fréttablaðinu sl. mánudag ríka fólkið á Íslandi. Sú skilgreining kemur kannski ekki svo mikið á óvart þegar þess er gætt að ríkisstjórn sú sem formaðurinn sat í hífði láglaunafólk upp í milliskattþrep meðan hún sat að völdum. Þá ráðstöfun hefur núverandi ríkisstjórn þegar leiðrétt og hækkað tekjumark þeirra sem eru í neðsta skattþrepi.
Ríkisstjórnin er þannig alls ósammála formanni Samfylkingarinnar um að þessir hópar myndi hóp ríkra Íslendinga. Skattaráðstafanir ríkisstjórnarinnar munu skila fjölskyldunum í landinu 5 milljörðum króna í auknum ráðstöfunartekjum. Þannig lýsir núverandi ríkisstjórn yfir eindregnum stuðningi við heimilin í landinu og baráttu þeirra fyrir bættum lífskjörum.
Þorsteinn Sæmundsson
Greinin birtist í Fréttablaðinu 14. maí 2014.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.