Gunnar Smári Egilsson, oddviti Sósíalistaflokksins, svarar grein minni Sitt er hvað, samvinna og samvinna í ítarlegu og löngu máli eins og hans er von og vísa. Gunnar Smári er góður penni og beittur og endurskrifar sögu Framsóknar eins og hún sé á tiltölulega beinni leið til helvítis. Eins og áður er Sósíalistaflokkurinn fastur í fortíðinni enda er tal flokksmanna um arðrán, auðvald og kúgun, ómur frá upphafi síðustu aldar. Samvinnan sem Gunnari Smára er svo ofarlega í huga er samvinna sósíalista, sósíalista einna, ekki samvinna ólíkra afla um hvernig best sé að bæta samfélagið.
Stjórnmál eru ekki trúarbrögð
Í huga sósíalista virðist vera eitt einfalt svar við öllu og það er svar þeirra sjálfra. Að þessu leyti er hugarheimur þessa ysta vinstris ekki ólíkt hugarheimi þeirra sem liggja lengst til hægri með sína óheftu markaðshyggju. Um þá óheftu markaðshyggju má segja að hún hefur beðið skipbrot tvisvar sinnum á síðustu þrettán árum. Óheftur markaður skóp hrunið og óheftur markaður réði ekki við heimsfaraldurinn. Í bæði skipti hefur almenningur þurft að hlaupa undir bagga. Um sósíalismann þarf ekki að hafa mörg orð því saga síðustu aldar er öðrum þræði hörmungarsaga þeirrar öfgastefnu. Yst til hægri og yst til vinstri eru stjórnmál trúarbrögð þeirra sem telja sig hafa fundið hinn eina stóra sannleik. Í mínum huga eru stjórnmál ekki trúarbrögð heldur mikilvægt tæki til að bæta samfélagið.
Framsókn: Framsækinn miðjuflokkur
Framsókn er framsækinn miðjuflokkur. Í því felst að Framsókn vinnur með það besta úr báðum heimum, heimum vinstrisins og hægrisins. Við erum frjálslynt umbótaafl eins og Hermann Jónasson talaði um á sinni tíð og útskýrði frjálslyndi með þessum orðum: „Þetta felur í sér að flokkurinn er fordómalaus um úrlausnir aðsteðjandi vandamála á hverjum tíma. Hann vill beita aðferðum þekkingar og vísinda til að ryðja framþróuninni braut á grundvelli þeirra þjóðfélagslegu gilda sem stefna hans byggist á.“
Fortíðarþrá sósíalista
Ég heyri engan samvinnutón í trúarjátningu sósíalista. Ég heyri bara tón sundrungar. Sama hver spurningin er þá er svarið alltaf öfgakennd krafa um að brjóta niður og byggja svo upp á forsendum sósíalista. Alltumlykjandi er síðan fortíðarþráin, hvað allt var gott í gamla daga en ömurlegt í dag. Hvert sem litið er í stefnumálum sósíalista er afturhvarf til fortíðar, krafan um að gera Ísland gott aftur.
Hið jákvæða afl hvers og eins
Við búum í góðu samfélagi en alltaf má gera betur. Það gerum við með því að byggja á hinu jákvæða afli sem býr í hverjum og einum. Það gerum við með því að skapa umhverfi þar sem allir geta blómstrað – á eigin forsendum en ekki annarra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Greinin birtist fyrst á visir.is 3. september 2021.