Landstjórn Framsóknar samþykkti í vor að boða til haustfundar miðstjórnar í Norðvestur kjördæmi og var 12. – 13. nóvember fyrir valinu. Fundurinn verður haldinn í Edinborgarhúsinu og hefst kl. 10:00 á laugardagsmorgun og stendur fram yfir hádegi á sunnudeginum. Kvöldverðarhóf verður á laugardagskvöldinu.
Hægt verður að fá gistingu á Hótel Ísafirði og Holt Inn.
Hægt er að panta gistingu á Hótel Ísafirði með því að senda tölvupóst á lobby@hotelisafjordur.is kóðinn er „fundur Framsóknar“.
Til að bóka á Holt Inn senda tölvupóst á holtinn@holtinn.is „Framsókn“.
Upplýsingar um gistinguna:
Hótel Ísafjörður:
• tveggja manna herbergi 20.000.- m/morgunmat nóttin
• eins manns herbergi 16.500 m/morgunmat nóttin
Holt Inn:
• Um þrjár herbergistegundir er að ræða, verðin eru eftirfarandi með morgunmat: 15.173.-, 16.618.- og 19.508.-
Við hvetjum fólk til að panta sem fyrst til þess að hægt sé að bregðast við ef tryggja þarf fleiri herbergi.
Aðalmenn í miðstjórn eru vinsamlegast beðnir um að staðfesta komu eða forföll til skrifstofu Framsóknar í síma 540-4300 eða á netfangið framsokn@framsokn.is. Mikilvægt er að vita um forföll í tíma til að geta boðað varamenn á fundinn.
Á haustfundi skal taka félagsstarf flokksins á komandi starfsári sérstaklega til umræðu.
Fastanefndir miðstjórnar munu flytja skýrslu um störf sín og jafnframt skulu miðstjórnarmenn kjósa úr sínum hópi til eins árs í senn:
a) fjóra fulltrúa í fræðslu- og kynningarnefnd Framsóknarflokksins og tvo til vara og
b) fjóra fulltrúa í málefnanefnd Framsóknarflokksins og tvo til vara.
Fræðslu- og kynningarnefnd.
Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og fjórir meðstjórnendur skv. a-lið gr. 10.4. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja og hafa umsjón með framkvæmd kynningar- og fræðslumála Framsóknarflokksins.
Málefnanefnd.
Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og fjórir meðstjórnendur skv. b-lið gr. 10.5. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja og hafa umsjón með málefnastarfi og stefnumótunarvinnu Framsóknarflokksins.
Miðstjórnarmenn eru hvattir til að gefa kost á sér í þessar nefndir og senda framboð á netfangið framsokn@framsokn.is.
Framsókn