Samkvæmt nýju tölum Hagstofu Íslands var mannfjöldi á Íslandi 383.726 þann 1. janúar 2024 og hafði íbúum fjölgað um 8.508 frá 1. janúar 2023, eða um 2,3%.
Í ný birtum tölum má sjá að 365.256 (95%) búa í byggðakjörnum og 18.470 (5%) í dreifbýli. Á höfuðborgarsvæðinu eru 244.177 íbúar (64% landsmanna) en aðeins 139.549 (36%) utan höfuðborgarsvæðis. Landsbygðin á mikið inni og búum við svo vel að vera fámenn þjóð í stóru landi. það er mikilvægt nú sem aldrei fyrr að byggja upp sterka innviði á landsbyggðinni. Tryggja þarf fólki um allt land öruggar og greiðar samgöngur og aðra þjónustu hins opinbara. Og stuðla þarf með markvissum hætti að opinber störf dreifist jafnar um landið.
Landsbyggðin býður upp á aukin lífsgæði, aukin tækifæri sérstaklega fyrir ungt fólk sem hefur sótt sér þekkingu og menntun, landsbyggðin þarf á því fólki að halda. Það eru mikil lífsgæði að þurfa ekki að sitja fastur í bíl á milli staða, koma barninu sínu með skjótum hætti í leikskóla og eiga möguleika á að eignast húsnæði á viðráðanlegu verði. Við þurfum breytta byggðastefnu sem setur byggðamál í öndvegi og leggur áherslu á jafnrétti óháð búsetu. Við þurfum að taka tillit til byggðasjónarmiða þvert á öll málefnasvið og styðja við nýsköpun og atvinnuuppbyggingu fyrirtækja og einstaklinga um allt land.
Hlutfallsleg fólksfjölgun mest á Suðurnesjum og Suðurlandi
Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 4.888 fleiri þann 1. janúar 2024 en fyrir ári. Það jafngildir 2,0% fjölgun íbúa á einu ári. Hlutfallsleg fólksfjölgun var mest á Suðurnesjum og Suðurlandi þar sem fjölgaði um 4,1% á síðasta ári. Í öðrum landshlutum var fólksfjölgun undir landsmeðaltali, á Vesturlandi fjölgaði um 2,0%, á Vestfjörðum fjölgaði um 1,0%, á Norðurlandi eystra um 1,3% og á Austurlandi um 1,9%. Minnst fjölgun var á Norðurlandi vestra en þar fjölgaði einungis um 47 einstaklinga eða 0,6%.
63% mannfjöldans býr á Stór-Reykjavíkursvæðinu
Um 63% mannfjöldans bjó á Stór-Reykjavíkursvæðinu 1. janúar 2024, þ.e. samfelldri byggð frá Hafnarfirði til Mosfellsbæjar, alls 239.733. Næst stærsta þéttbýlið var í Keflavík og Njarðvík, þar sem bjuggu 21.847 íbúar og á Akureyri og nágrenni, eða 19.847 íbúar. Alls bjuggu 22.385 einstaklingar í strjálbýli, eða 5,8% mannfjöldans, en með strjálbýli er átt við sveit eða byggðakjarna með færri en 200 íbúa.
Með samvinnuhugsjónir að leiðarljósi bæði eflum við og styrkjum landsbyggðina með því að hafa trú á lífi í öllum byggðarkjörnum á Íslandi.
Anton Guðmundsson, formaður bæjarráðs Suðurnesjabæjar.
Greinin birtist fyrst á visir.is 10. apríl 2024.