Umræða um menntamál sem farið hefur fram í samfélaginu síðustu vikur gleður mig mjög. Menntun er undirstaða framfara og ef við þróum ekki aðferðir við að fræða og fræðast þá blasir við stöðnun og glötuð tækifæri.
Þegar við veltum fyrir okkur breytingunum sem orðið hafa í samfélaginu síðustu ár – og áratugi. Segjum bara breytingar sem hafa orðið frá árinu 2000 til að vera með eitthvað viðmið. Fyrsti iPhone síminn var gefinn út árið 2007. Í upphafi aldarinnar voru bankar, tryggingafélög og pósthús á hverju götuhorni. Fartölvunotkun var ekki almenn og fjarvinna mögulega ekki orð í íslensku. Það sem hefur gerst á þessum fyrsta fjórðungi nýrrar aldar hefur haft gríðarlega afgerandi áhrif á okkar daglega líf í leik og starfi.
Hvernig þurfa menntastofnanir framtíðarinnar að vera?
Þessar breytingar kalla á að undirstöður samfélagsins eins og menntakerfið þróist með. Ekki bara hvað er kennt heldur hvernig það er kennt. Við þurfum að greina hvar við höfum staðið okkur vel. Af því að það er alveg augljóst að menntakerfið okkar hefur vaxið með þeim áskorunum sem það hefur staðið frammi fyrir síðustu áratugi. Auk þeirra samfélagslegu og tæknilegu breytinga sem við höfum gengið í gegnum þá eru skólarnir búnir að laga sig að hugmyndafræðinni um skóla án aðgreiningar, mikil fólksfjölgun og þar með talin fjölgun innflytjenda með sértækar þarfir hefur átt sér stað, ný aðalnámsskrá, breytt matskerfi og svo mætti lengi telja.
Við þurfum líka að skoða hvað hefur ekki gengið vel og við þurfum að vera heiðarleg í þeirri skoðun. Það væri nú eitthvað skrítið ef allar ákvarðanir sem við höfum tekið siðustu árin sem varðar menntakerfið væru svo frábærar að það þyrfti bara ekkert að breyta þeim.
En það virkaði fyrir mig
Það er einhvernvegin þannig að þegar við ræðum málin opinberlega þá erum við fljót að skiptast í lið og enn fljótari að sammælast um einfalda leið til að leysa málið. En viðfangsefnið er ekki einfalt og lausnirnar verða ekki einfaldar heldur.
Það er auðvelt fyrir leikmann eins og mig að grípa í að tala fyrir lausnum sem ég skil eins og innleiðingu á samræmdum prófum. Það er kerfi sem ég þekki. Það er kerfi sem ég ólst upp við. Ef það virkaði þá af hverju virkar það þá ekki núna? En á meðan við skiptumst á skoðunum um hluti sem er auðvelt að hafa skoðun á og skiptir okkur í fylkingar þá missum við af tækifæri til að fara á dýptina í umræðunni. Auðvitað þarf að mæla árangur í skólastarfi eins og í öllu öðru starfi. En hvernig á að gera það er ákvörðun sem fagfólkið verður að koma að. Við þurfum að hlusta á þau og þeirra ráðleggingar en skólafólk verður líka hlusta á reynslu úr öðrum áttum og skoða hvaða reynsla og þekking getur nýst okkur til að byggja upp áherslur í menntakerfi framtíðarinnar.
Aldís Stefánsdóttir, formaður fræðslunefndar Mosfellsbæjar.
Greinin birtist fyrst á visir.is 15. ágúst 2024.