Elsa Lára Arnardóttir, alþingismaður, vakti athygli á tillögum velferðarvaktarinnar um húsnæðismál á Alþingi í liðinni viku. Tillögur velferðarvaktarinnar lúta m.a. að því að komið verði á húsnæðisbótum til að jafna stöðu þeirra sem eru á leigumarkaði og þeirra sem búa í eigin húsnæði. En velferðarvaktin skilaði niðurstöðum til Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, í lok janúar.
„Eins og margir vita þá er kerfið þannig í dag að það eru bæði húsaleigubætur og vaxtabætur en ekkert jafnræði er á milli kerfanna hvað varðar umfang stuðning við þessa tvo hópa og það þarf að bæta. Auk þessa er fjallað um í tillögunum að fjárhæðir húsnæðisbóta muni miðast við heildartekjur heimilis en ekki fjölda fullorðinna heimilismanna, en innkoma efnaminni foreldra skerðist oft verulega við það þegar börn ná 18 ára aldri,“ sagði Elsa Lára.
Ræða Elsu Láru Arnardóttur:
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.
Categories
Húsnæðisbætur miðist við heildartekjur heimilis
08/02/2015
Húsnæðisbætur miðist við heildartekjur heimilis