Sveitarfélagið Árborg
13/05/2020
Sveitarfélagið Árborg13/05/2020
Sveitarfélagið Árborg13/05/2020
Sveitarfélagið HornafjörðurÁsgerður Kristín Gylfadóttir, hjúkrunarfræðingur og formaður bæjarráðs skipar fyrsta sæti listans, í öðru sæti er Björgvin Óskar Sigurjónsson, byggingartæknifræðingur og bæjarfulltrúi, í þriðja sæti er Gunnar Ásgeirsson, vinnslustjóri hjá Skinney Þinganesi og í fjórða sæti er Gunnhildur Imsland, heilbrigðisgagnafræðingur hjá HSU á Höfn.
Listann skipar kraftmikill hópur með fjölbreyttan bakgrunn sem brennur fyrir öflugu og góðu samfélagi í Sveitarfélaginu Hornafirði. Framundan eru fundir með íbúum um málefni sveitarfélagsins þar sem áhugasömun gefst tækifæri til að taka þátt í sefnu framboðsins og þau verkefni sem framundan eru.
Listinn í heild sinni:
1. Ásgerður Kristín Gylfadóttir, 53 ára. Hjúkrunarfræðingur og formaður bæjarráðs.
2. Björgvin Óskar Sigurjónsson, 40 ára. Byggingartæknifræðingur og bæjarfulltrúi.
3. Gunnar Ásgeirsson, 31 árs. Vinnslustjóri hjá Skinney-Þinganesi.
4. Gunnhildur Imsland, 53 ára Heilbrigðisgagnafræðingur hjá HSU á Höfn.
5. Íris Heiður Jóhannsdóttir, 46 ára. Framkvæmdastjóri IceGuide ehf.
6. Finnur Smári Torfason, 35 ára. Tölvunarfræðingur hjá Kivra.
7. Þórdís Þórsdóttir, 39 ára. Sérkennari hjá Grunnskóla Hornafjarðar.
8. Bjarni Ólafur Stefánsson, 36 ára. Vinnslustjóri hjá Skinney-Þinganesi.
9. Guðrún Sigfinnsdóttir, 50 ára. Móttökuritari hjá HSU á Höfn.
10. Arna Ósk Harðardóttir, 53 ára. Skrifstofumaður hjá Rafhorn ehf.
11. Lars Jóhann Andrésson Imsland, 47 ára. Framkvæmdastjóri East Coast Travel ehf.
12. Aðalheiður Fanney Björnsdóttir, 50 ára. Leikskólakennari á Sjónarhóli á Höfn.
13. Nejra Mesetovic, 25 ára. Ferðamálafræðingur og verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Suðurlands.
14. Ásgrímur Ingólfsson, 54 ára. Skipstjóri á Ásgrími Halldórssyni SF-250 og forseti bæjarstjórnar.
13/05/2020
Suðurnesjabær1. Anton Guðmundsson, 29 ára, matreiðslumeistari, Sandgerði.
2. Úrsúla María Guðjónsdóttir, 27 ára, meistaranemi í lögfræði, Garði.
3. Sunneva Ósk Þóroddsdóttir, 25 ára, sjávarútvegs- og viðskiptafræðingur og gæðastjóri, Sandgerði.
4. Sigfríður Ólafsdóttir, 27 ára, meistaranemi í félagsráðgjöf og sjálfboðaliði hjá Frú Ragnheiði á Suðurnesjum, Garði.
5. Gísli Jónatan Pálsson, 38 ára, trésmiður og nemi í húsasmíði, Sandgerði.
6. Elvar Þór Þorleifsson, 34 ára, umsjónarmaður farþegaafgreiðslu Icelandair, Garði.
7. Baldur Matthías Þóroddsson, 28 ára, sundlaugarvörður í Íþróttamiðstöðinni Garði, Sandgerði.
8. Agata Maria Magnússon, 37 ára, starfsmaður farþegaafgreiðslu Icelandair, Garði.
9. Elías Mar Hrefnuson, 33 ára, Sandgerði.
10. Óskar Helgason, 48 ára, pípulagningarnemi, Sandgerði.
11. Hulda Ósk Jónsdóttir, 42 ára, nemi í kennslufræði og starfsmaður á leikskóla, Sandgerði.
12. Karel Bergmann Gunnarsson, 27 ára, flugöryggisvörður hjá Isavia, Garði.
13. Ólafía Guðrún Lóa Bragadóttir, 57 ára, Garði.
14. Gunnlaug María Óskarsdóttir, 20 ára, stuðningsfulltrúi, Sandgerði.
15. Jóhanna Óttars Sigtryggsdóttir, 37 ára, leikskólaliði og hópstjóri á leikskólanum Sólborg, Sandgerði.
16. Guðrún Sif Pétursdóttir, 31 árs, hópstjóri og kjarnastýra á leikskóla, Sandgerði.
17. Rebekka Ósk Friðriksdóttir, 27 ára, snyrtifræðingur, Sandgerði.
18. Jón Sigurðsson, 72 ára, bóndi, Sandgerði.
13/05/2020
Reykjanesbær1. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri í íslensku sem öðru máli og varaþingmaður
2. Bjarni Páll Tryggvason, forstöðumaður hjá Isavia
3. Díana Hilmarsdóttir, forstöðumaður Bjargarinnar
4. Róbert Jóhann Guðmundsson, málarameistari
5. Trausti Arngrímsson, viðskiptafræðingur
6. Sighvatur Jónsson, tölvunarfræðingur og fjölmiðlamaður
7. Aneta Zdzislawa Grabowska, einkaþjálfari, zumba kennari og snyrtifræðingur.
8. Sigurður Guðjónsson, framkvæmdastjóri, bílasali
9. Friðþjófur Helgi Karlsson, skólastjóri
10. Bjarney Rut Jensdóttir, lögfræðingur
11. Birna Ósk Óskarsdóttir, grunnskólakennari
12. Unnur Ýr Kristinsdóttir, verkefnastjóri hjá KFUM og K á Íslandi
13. Gunnar Jón Ólafsson, verkefnastjóri í eldvarnareftirliti
14. Andri Fannar Freysson, tölvunarfræðingur
15. Birna Þórðardóttir, viðurkenndur bókari hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
16. Halldór Ármannsson, trillukall
17. Karítas Lára Rafnkelsdóttir, ráðgjafi hjá Björginni
18. Eva Stefánsdóttir, verkefnastjóri hjá Icelandair og MBA nemi
19. Ingibjörg Linda Jones, hjúkrunarnemi og starfsmaður Heilbrigðisstofnunnar Suðurnesja
20. Sævar Jóhannsson, húsasmíðameistari
21. Kristinn Þór Jakobsson, viðskiptafræðingur og innkaupastjóri
22. Jóhann Friðrik Friðriksson, Alþingismaður
13/05/2020
Nýtt sveitarfélag á AusturlandiMeð öflugu fólki í öflugum flokki – traustur fjárhagur er lykillinn að farsælli sameiningu. Við höfum til að bera þá reynslu og þekkingu sem þarf til að stýra fjármálum sveitarfélagsins af ábyrgð. Með því að sýna skynsemi í rekstri munum við geta fjárfest í uppbyggingu skóla og leikskóla því góð aðstaða fyrir börn og ungmenni gerir sveitarfélagið aðlaðandi fyrir fjölskyldur að setjast hér að.
Þannig blómstrar fjárhagur sveitarfélagsins. En þetta gerist ekki af sjálfu sér.
Framboðslisti fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í nýju sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar, var samþykktur á almennum félagsfundi Framsóknarfélags Múlaþings sem fram fór í gær. Kosið verður til sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags 19. september næstkomandi.
Framboðslisti Framsóknar hefur tekið lítils háttar breytingum frá listanum sem búið var að samþykkja vegna áður boðaðra kosninga í vor.
Vilhjálmur Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri á Seyðisfirði, færist úr þriðja sæti upp í annað sæti. Jónína Brynjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, færist úr fimmta sæti upp í það þriðja og Helga Erla Erlendsdóttir, fyrrverandi skólastjóri á Borgarfirði, fer að eigin ósk úr öðru sæti í það fimmta.
Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, leiðir framboðslistann og Eiður Ragnarsson, ferðaþjónustubóndi og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, skipar fjórða sæti framboðslistans.
Framboðslisti Framsóknar var samþykktur samhljóða og mikill hugur er í Framsóknarfólki fyrir komandi kosningar. Sérstakur gestur fundarins var Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, sem færði fundinum og frambjóðendum kveðjur frá þingflokki Framsóknarmanna.
B-lista Framsóknarflokks fyrir sveitarstjórnarkosningar í nýju sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar, 19. september næstkomandi skipa:
***
Við sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi verður til víðfeðmt sveitarfélag með fjóra ólíka byggðakjarna. Þessi samfélög munu halda í sína sérstöðu en framundan er að samþætta og samræma margt sem enn liggur ekki fyrir hvernig á að framkvæma, það er í höndum næstu sveitarstjórnar. Stefnumótun og framtíðarsýn er eitt það mikilvægasta sem kjörnir fulltrúar þurfa að horfa til á næsta kjörtímabili. Við bökum nefnilega yfirleitt kökur eftir uppskriftum.
Ábyrg fjármálastefna skiptir öllu máli fyrir nýja sveitarfélagið. Staðreyndin er sú að það verður hægara sagt en gert að ná utan um heildarfjármál þess þar sem sameiningin á sér stað á tímum Covid-19. Það er stærsti óvissuþátturinn þegar kemur að næsta vetri.
Það sem er mikilvægast er að sameiningin sjálf heppnist vel, að kjörnir fulltrúar og starfsmenn sveitarfélagsins vinni vel þá gríðarlega miklu og mikilvægu vinnu að sameina sveitarfélögin. Kjörnir fulltrúar þurfa því að taka margar stefnumótandi ákvarðanir um stóra sem smáa þætti er varða framtíðina.
Það þarf að tryggja að stjórnsýslan fái það svigrúm og stuðning sem hún þarf til að vinna verkin sem framundan eru, undir styrkri leiðsögn þeirra sem hafa til þess lýðræðislegt umboð. Til að taka góðar stefnumótandi ákvarðanir þarf samtal, samtal við kjósendur og starfsfólk sveitarfélagsins. Við vitum það nefnilega að nýja sveitarfélagið hefur á að skipa öflugu starfsfólki með mikla reynslu. Það að skapa góðan vinnuanda og gott starfsumhverfi fyrir þau er grundvallaratriði .
Frambjóðendur á lista Framsóknarfélags Múlaþings hafa gríðarlega mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum, þekkja vel sveitarfélögin fjögur sem eru að sameinast og einsetja sér það markmið að klára sameininguna með farsælum hætti. Við vitum að verkefnið er ærið, umsvifamikið og krefjandi – þess vegna bjóðum við okkur fram. Framsóknarflokkurinn er framkvæmdaflokkur, við hikum ekki við að horfa til framtíðar, móta okkur stefnu – og halda okkur við hana.
Jónína Brynjólfsdóttir, viðskiptalögfræðingur með MLM gráðu í forystu og stjórnun frá Bifröst og skipar hún skipar 3. sæti lista Framsóknarfélags Múlaþings til sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Greinin birtist fyrst á visir.is 10. september 2020.
***
Það eru áhugaverðir tímar framundan á Austurlandi. Nýtt sveitarfélag að verða að veruleika með sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Sveitarstjórnarkosningar þann 19. september. Fyrsta verkefni nýrrar sveitarstjórnar verður að ljúka sameiningarferlinu, ákveða nafn nýja sveitarfélagsins og virkja nýtt stjórnskipulag.
Eitt af verkefnum sveitarstjórnar í nýja sveitarfélaginu verður, í samráði við íbúa, að móta þá framtíðarsýn sem lá til grundvallar kosningu um sameiningu sveitarfélaganna. Hana þarf að móta í samráði við íbúana. Vinna þarf nýtt aðalskipulag sem tekur til nýja sveitarfélagsins í heild. Það er mikilvægt að í því verði tekið á nýtingu, náttúruvernd og varðveislu. Áhersla verði lögð á sjálfbærni, samfélagsábyrgð og bætt búsetuskilyrði. Setja þarf aukinn kraft í gerð skipulagsáætlana með það að markmiði að atvinnulíf og íbúabyggð geti þróast við öruggar hentugar aðstæður sem tryggi lífsgæði og velferð íbúanna. Í því sambandi þarf að horfa sérstaklega til áskorana í samgöngumálum með tilliti til atvinnu-, menningar- og mannlífs, með öðrum orðum almennra búsetuskilyrða. Mikilvægur hluti af þeirri framtíðarsýn verður strandskipulag eða nýtingaráætlun sem jafnframt tekur mið af og styður við uppbyggingu og þróun hafna sveitarfélagsins.
Bættar samgöngur hafa verið forgangsverkefni framsóknarmanna á Austurlandi, ekki síst á Seyðisfirði. Áratuga barátta Seyðfirðinga fyrir bættum samgöngum með jarðgöngum, góð samvinna við nágrannasveitarfélög og skýr sýn um leiðina til þess, er að skila okkur Fjarðarheiðargöngum.
Samkvæmt gildandi samgönguáætlun er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist árið 2022 en nú er unnið að undirbúningi framkvæmdanna. Á þeim tíma sem ég, ásamt öðrum kjörnum fulltrúum, hef unnið að málinu hafa verið setnir óteljandi fundir með vegamálastjóra og starfsmönnum Vegagerðarinnar, alþingismönnum, embættismönnum og ráðherrum, bæði fyrr og síðar. Oft þótti þokast lítið og stundum afturábak, en nú er málið að verða komið á framkvæmdastig. Það er mjög ánægjulegt. Alltaf var okkur vel tekið þó að við þættum sjálfsagt stundum nokkuð fylgin okkur.
Framkvæmdir við Fjarðarheiðargöng verða unnar á grundvelli metnaðarfullrar samgönguáætlunar fyrir árin 2020 til 2034 sem núverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og formaður Framsóknarflokksins, lagði fyrir Alþingi. Svo metnaðarfull er hún hvað Austurland varðar að auk ganganna um Fjarðarheiði liggur leiðin áfram með göngum frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar og þaðan til Norðfjarðar og eru þá önnur verkefni á svæðinu ótalin. Hliðstæða finnst vart. Tenging byggðanna á Austurlandi með þessum jarðgöngum verður bylting í öllu tilliti. Nokkuð sem ég og samstarfsfólk í bæjarstjórn og áhugafólk sáum sem heldur fjarlægt markmið á eftir Fjarðarheiðargöngum en er nú þegar komið á áætlun.
Markmiðið með Fjarðarheiðargöngum hefur alltaf verið skýrt, að rjúfa vetrareinangrun, og auka þar með öryggi íbúa, að auka umferðaröryggi og að samgöngur á landi væru greiðar allt árið. Það verður hlutverk nýrra sveitarstjórnar að fylgja málinu eftir í samvinnu við ríkisvaldið, svo og uppbyggingu annarra samgönguinnviða sem eru í áætluninni, heilsársvegar um Öxi, Borgarfjarðarvegar, og nýrrar brúar yfir Lagarfljót. Þessar samgönguframkvæmdir eru nauðsynlegar til að vel takist til með sameininguna og því þarf að fylgja þeim eftir af festu. Jafnframt þarf að vinna að uppbyggingu og aukinni vegþjónustu um víðfeðmt sveitarfélag og á leiðum að og frá.
Sérstaklega þarf að setja aukinn þunga í uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar sem millilandaflugvallar og tryggja fjármagn til hennar. En einnig að jafna aðstöðumun við Keflavíkurflugvöll að því marki sem er í valdi stjórnvalda.
Brýnt er að stjórnvöld taki af vafa um að Reykjavíkurflugvöllur verði staðsettur til frambúðar í Vatnsmýrinni með hliðsjón af því að margvísleg nauðsynleg þjónusta á vegum ríkisins er byggð upp eða hefur verið flutt til höfuðborgarinnar sem hefur það í för með sér að landsmenn utan höfuðborgarsvæðisins þurfa að sækja hana með flugsamgöngum. Þar vegur þyngst fyrir almenning, heilbrigðisþjónustuna.
Ávinningurinn af uppbyggingu samgönguinnviða verður sterkara atvinnusvæði með aukinni nýsköpun og fleiri áhugaverðum atvinnutækifærum, öflugra menningar- og listalífi svo og íþrótta- og félagsstarfi og bættu aðgengi að þjónustu. Það er mikilvægt að áform stjórnvalda séu tímasett og skýr þannig að vinna við frekari mótun framtíðarsýnar og skipulagsáætlanir geti tekið mið af þeim.
Forsendur þess að sameiningin skili tilætluðum árangri er að staðfest loforð og samþykktir stjórnvalda um varanlega samgöngutengingu allra fjögurra byggðarlaganna verði að veruleika, það er nýbygging Axarvegar, Borgarfjarðarvegar og lagning jarðganga undir Fjarðarheiði milli Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs. Að því þarf að vinna í samfellu og sleitulaust.
Vilhjálmur Jónsson, bæjarfulltrúi á Seyðisfirði og skipar 2. sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Greinin birtist fyrst á austurfrett.is 10. september 2020.
***
Eitt af meginhlutverkum þeirra sem skipa forystusveit kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum er að vera málsvari sveitarfélagsins út á við. Það er oft mikil þörf á því gagnvart opinberum stofnunum, fjölmiðlum og fyrirtækjum en allra helst reynir þó á þetta hlutverk þegar kemur að samskiptum við Alþingi og ríkisstjórn.
Það er erfitt að kasta tölu á þann fjölda funda og símtala sem ég hef í gegnum árin átt til að tala um málefni sveitarfélagsins. Þessi vinna er sjaldnast mjög sýnileg. Ekki það að nokkur hafi neitt að fela, ekki er um neitt baktjaldamakk að ræða. En það er óendanlega mikilvægt að rödd sveitarfélagsins heyrist víða og ekki bara á opinberum vettvangi, heldur einmitt á smærri fundum og í samtölum innan ráðuneyta og þingflokka, svo einhver dæmi séu tekin.
Þetta hlutverk kjörins fulltrúa er eitt hið ánægjulegasta við starfið, en getur jafnframt verið einn erfiðasti hluti þess. Ég hef lagt mig fram um að tala fyrir hagsmunum sveitarfélagsins með gildum rökum og af skynsemi. Oft næst fram skilningur á stöðu sveitarfélagsins og góður árangur í hagsmunabaráttunni. Þá er ég glaður.
Í önnur skipti finnst manni eins og verið sé að tala við grjót, alveg sama hvernig er reynt. Það er gremjulegt og á þeim stundum getur sú hugsun lagst þungt á hvort tíma manns og orku er vel varið.
Á þessum árum hef ég lært það að gefast ekki upp. Þar sem maður kemur að lokuðum dyrum í eitt skipti getur rofað til og allt staðið upp á gátt næst þegar reynt er. Ef maður hefur trú á málstaðnum þýðir ekki að leggja árar í bát heldur þarf að reyna aftur, og aftur, og aftur. Stundum vinnast hálfir sigrar, þá er mikilvægt að kunna að gleðjast yfir litlu, og stundum stórsigrar.
Blessunarlega horfum við í nýju sameinuðu sveitarfélagi nú fram á byltingu í samgöngumálum með Fjarðarheiðargöngum, nýjum Axarvegi og klæðningu á Borgarfjarðarveg. Allt eru þetta mál sem hefur þurft að tala fyrir árum saman en eru nú í augsýn þökk sé þrotlausri vinnu margra aðila.
En það er líka margt framundan sem þarf að tala fyrir og Framsóknarflokkurinn vill vera leiðandi í þessari baráttu. Við viljum sjá frekari uppbyggingu á Egilsstaðaflugvelli. Við viljum sjá staðbundið háskólanám verða að veruleika í fjórðungnum og fjölbreyttari fjarnámskosti fyrir íbúa hér. Við þurfum bætta hafnaraðstöðu víða í sveitarfélaginu og fleira og fleira. Nýtt sveitarfélag mun þurfa sterka rödd til að tala sínu máli. Ég gef kost á mér til að vera þessi rödd og bið um þinn stuðning til þess.
Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs og skipar fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins við komandi sveitarstjórnarkosningar.
Greinin birtist fyrst á austurfrett.is 7. september 2020.
***
Framboðslisti fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í nýju sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar, var samþykktur á almennum félagsfundi Framsóknarfélags Múlaþings sem fram fór í gær. Kosið verður til sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags 19. september næstkomandi.
Framboðslisti Framsóknar hefur tekið lítils háttar breytingum frá listanum sem búið var að samþykkja vegna áður boðaðra kosninga í vor.
Vilhjálmur Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri á Seyðisfirði, færist úr þriðja sæti upp í annað sæti. Jónína Brynjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, færist úr fimmta sæti upp í það þriðja og Helga Erla Erlendsdóttir, fyrrverandi skólastjóri á Borgarfirði, fer að eigin ósk úr öðru sæti í það fimmta.
Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, leiðir framboðslistann og Eiður Ragnarsson, ferðaþjónustubóndi og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, skipar fjórða sæti framboðslistans.
Framboðslisti Framsóknar var samþykktur samhljóða og mikill hugur er í Framsóknarfólki fyrir komandi kosningar. Sérstakur gestur fundarins var Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, sem færði fundinum og frambjóðendum kveðjur frá þingflokki Framsóknarmanna.
B-lista Framsóknarflokks fyrir sveitarstjórnarkosningar í nýju sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar, 19. september næstkomandi skipa:
13/05/2020
VopnafjarðahreppurFramboðslisti Framsóknar og óháðra á Vopnafirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí hefur verið lagður fram. Sigríður Bragadóttir, fyrrv. bóndi, leiðir listann. Í öðru sæti er Bárður Jónasson, tæknistjóri og sveitarstjórnarmaður og í því þriðja er Axel Örn Sveinbjörnsson, vélstjóri.
Framboðslisti Framsóknar og óháðra á Vopnafirði:
13/05/2020
Fjarðabyggð1. Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri, Norðfirði
2. Þuríður Lillý Sigurðardóttir bóndi, Reyðarfirði
3. Birgir Jónsson framhaldsskólakennari Eskifirði
4. Arnfríður Eide Hafþórsdóttir mannauðs- og öryggisstjóri, Fáskrúðsfirði
5. Elís Pétur Elísson framkvæmdastjóri, Breiðdal
6. Pálína Margeirsdóttir bæjarfulltrúi og ritari, Reyðarfirði
7. Bjarni Stefán Vilhjálmsson verkstjóri, Stöðvarfirði
8. Karen Ragnarsdóttir skólastýra, Norðfirði
9. Kristinn Magnússon rafvirki og íþróttafræðingur, Breiðdal
10. Margrét Sigfúsdóttir grunnskólakennari, Mjóafirði
11. Ívar Dan Arnarsson tæknistjóri, Reyðarfirði
12. Tinna Hrönn Smáradóttir iðjuþjálfi, Fáskrúðsfirði
13. Þórhallur Árnason aðalvarðstjóri, Eskifirði
14. Guðfinna Erlín Stefánsdóttir forstöðumaður og stuðningsfulltrúi, Fáskrúðsfirði
15. Bjarki Ingason rafvirkjanemi, Norðfirði
16. Bjarney Hallgrímsdóttir grunnskólakennari, Eskifirði
17. Jón Kristinn Arngrímsson matráður, Reyðarfirði
18. Elsa Guðjónsdóttir sundlaugavörður, Fáskrúðsfirði
13/05/2020
Norðurþing13/05/2020
DalvíkurbyggðListann skipa einstaklingar alls staðar að úr sveitarfélaginu með víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og er kynjahlutfall jafnt á listanum. Málefnavinna fer í gang á næstu dögum og verður nánar upplýst um þann undirbúning síðar. Mikil tilhlökkun og gleði er ríkjandi í hópnum og vilji til gera gott byggðarlag enn betra.
Áfram veginn!
13/05/2020
AkureyrarbærOddviti flokksins er Sunna Hlín Jóhannesdóttir framhaldsskólakennari og varabæjarfulltrúi.
Gunnar Már Gunnarsson verkefnisstjóri í brothættum byggðum er í öðru sæti listans.
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir forvarnarfulltrúi skipar þriðja sætið.
Sverre Andreas Jakobsson þjónustustjóri fyrirtækjaviðskipta á NA-svæði hjá Arion banka og handboltaþjálfari er í því fjórða.
5. Thea Rut Jónsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur
6. Óskar Ingi Sigurðsson, iðnfræðingur og framhaldsskólakennari
7. Tanja Hlín Þorgeirsdóttir, sérfræðingur
8. Grétar Ásgeirsson, verkstjóri hjá Vegagerðinni á Akureyri
9. Ólöf Rún Pétursdóttir, nemi
10. Andri Kristjánsson, bakarameistari
11. Guðbjörg Anna Björnsdóttir, leikskólastarfsmaður
12. Jóhannes Gunnar Bjarnason, íþróttafræðingur
13. Halldóra Kristín Hauksdóttir, lögmaður
14. Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdarstjóri
15. Ragnhildur Hjaltadóttir, umboðsmaður
16. Ingimar Eydal, skólastjóri sjúkraflutningaskólans
17. Katrín Ásgrímsdóttir, framkvæmdarstjóri
18. Sigurjón Þórsson, leigubílstjóri, iðnaðartæknifræðingur og viðskiptafræðinemi
19. Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, verkefnastjóri
20. Snæbjörn Sigurðarson, sjálfstætt starfandi verkefnisstjóri og frumkvöðull
21. Ingibjörg Isaksen, alþingismaður
22. Páll H. Jónsson, eldri borgari