Sveitarstjórnarkosningar 14. maí 2022
Kosningarréttur við sveitarstjórnarkosningar.
Kosningarrétt við kosningar til sveitarstjórnar á:
a. hver íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á skráð lögheimili í sveitarfélaginu,
b. hver danskur, finnskur, norskur og sænskur ríkisborgari, enda fullnægi hann að öðru leyti skilyrðum a-liðar,
c. hver erlendur ríkisborgari, annar en greinir í b-lið, sem átt hefur skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, enda fullnægi hann að öðru leyti skilyrðum a-liðar.
Hafi námsmaður, sbr. 4. mgr.
9. gr. laga um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, flutt lögheimili sitt frá landinu til Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Grænlands, Noregs eða Svíþjóðar samkvæmt Norðurlandasamningi um almannaskráningu telst hann ekki hafa glatað kosningarrétti sínum í því sveitarfélagi sem hann átti skráð lögheimili í við brottför, enda fullnægi hann að öðru leyti skilyrðum a-liðar 1. mgr. og leggi fram umsókn skv. 3. mgr. um að neyta kosningarréttar síns. Sama gildir um maka, sambúðarmaka og börn þeirra sem dveljast með þeim í viðkomandi landi.