Frambjóðendaráðstefna Framsóknar verður haldinn 11.-12. apríl nk. í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu 33 í Reykjavík.
Ráðstefnan er opin öllum frambjóðendum Framsóknar, kosningastjórum, starfsfólki og sjálfboðaliðum vegna sveitarstjórnarkosninganna. Mjög mikilvægt er að sem flestir frambjóðendur mæti. Þátttaka í frambjóðendaráðstefnunni er endurgjaldslaus.
Við undirbúning ráðstefnunnar er nauðsynlegt að þátttakendur skrái sig sem fyrst á skrifstofu Framsóknar í síma 540 4300 eða á netfangið framsokn@framsokn.is.
Frambjóðendaráðstefna Framsóknar 2014
11. og 12. apríl í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu 33 í Reykjavík
— Drög að dagskrá —
Föstudagur 11. apríl 2014
19:30-19:40 Setning og þátttakendur kynna sig
19:40-19:50 Aðkoma skrifstofu að kosningabaráttunni
– Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Framsóknar
19:50-20:10 Staða Framsóknarflokkssins í nútíð og fortíð
– Einar Sveinbjörnsson, fyrrv. bæjarfulltrúi í Garðabæ
20:10-20:40 Fréttatilkynningar, greinarskrif og samskipti við fjölmiðla
– Benedikt Sigurðsson, aðstoðarmaður ráðherra
20:40-20:50 Kaffihlé
20:50-21:10 Notkun samfélagsmiðla í kosningabaráttu
– Margrét Gísladóttir, aðstoðarmaður ráðherra
21:10-21:20 Spurningar og svör
21:20-21:30 Hvernig á að nýta úthringiver í kosningabaráttunni
– Ásgeir Harðarson, ráðgjafi
21:30-21:45 Að ná til kjósenda
– Magnús Heimisson, stjórnmálafræðingur og ráðgjaf í almannatengslum
21:45-22:00 Að toppa á réttum tíma og hámarka árangur
– Eygló Harðardóttir, ráðherra og ritari Framsóknar
Laugardagur 12. apríl 2014
09:30-10:30 Fjölmiðlar, stjórnmál og kosningar
– Birgir Guðmundsson, dósent við Háskólann á Akureyri
10:30-10:40 Kaffihlé
10:40 -10:55 Að ná árangri í kosningum
– Ásgerður Gylfadóttir, bæjarstjóri Hornafirði
10:55-11:10 Maður á mann – virkjum kraftinn
– Sigrún Magnúsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarmanna og fyrrv. borgarfulltrúi
11:10-11:20 Auglýsingaefni og útlit baráttunnar
– Hrannar Jónsson, ráðgjafi Árnasynir
11:20-11:30 Praktískar upplýsingar og utankjörfundaratkvæðagreiðsla
– Einar Gunnar Einarsson, skrifstofustjóri Framsóknar
11:30-11:40 Spurningar og svör
11:40-11:55 Seinni hálfleikur
– Ingibjörg Pálmadóttir fyrrv. ráðherra og alþingismaður
11:55-13:00 Matarhlé
13:00-15:30 Ræður, fundarstjórn, líkamstjáning og vinningslið
– Drífa Sigfúsdóttir fyrrv. forseti bæjarstjórnar og varabæjarstjóri
Að semja ræðu og flytja hana. Fundarstjórn, tillögur, líkamstjáning/framkoma, sjónvarp og vinningslið. Frambjóðendur eru beðnir að undirbúa 2 mínútna ræðu sem þeir flytja fyrir framan hópinn. Ræðan verður tekin upp og rædd. Æfing í fundarstjórn.
15:30-15:45 Kaffihlé
15:45-18:00 Framkoma í útvarpi og sjónvarpi
Farið verður yfir ýmis praktísk atriði fyrir frambjóðendu vegna þátttöku í útvarps- og sjónvarpsþáttum. Tekin verða viðtöl við frambjóðendur. Sjónvarpsumræður. Erfiðar spurningar og framboðsfundir.
18:00 – Ráðstefnuslit: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknar
Boðið verður upp á léttar veitingar í ráðstefnulok
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.