Framsóknarfélag Fjarðabyggðar samþykkti einróma tillögu uppstillingarnefndar að lista Frjálsra og Framsóknar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Fjarðabyggð, á fjölmennum fundi í Þórðarbúð á Reyðarfirði mánudagskvöldið 31. mars.
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar leiðir listan en Eiður Ragnarsson viðskiptafulltrúi, Pálína Margeirsdóttir verslunarmaður, Hulda Sigrún Guðmundsdóttir skólaliði og Svanhvít Yngvadóttir kennari skipa næstu fjögur sæti. Guðmundur Þorgrímsson núverandi bæjarfulltrúi og verktaki skipar heiðurssæti listans.
Framboðslistinn er skipaður eftirtöldum:
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar, Norðfirði
- Eiður Ragnarsson, viðskiptafullrúi, Reyðarfirði
- Pálína Margeirsdóttir, verslunarmaður, Reyðarfirði
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, skólaliði, Fáskrúðsfirði
- Svanhvít Yngvadóttir, kennari, Eskifirði
- Guðjón Björn Guðbjartsson, nemi, Norðfirði
- Tinna Hrönn Smáradóttir, iðjuþjálfi, Fáskrúðsfirði
- Þuríður Lilly Sigurðardóttir, nemi, Reyðarfirði
- Einar Björnsson, forstjóri, Eskifirði
- Jón Kristinn Arngrímsson, matráður, Reyðarfirði
- Anton Helgason, framkvæmdastjóri, Stöðvarfirði
- Anna Sigríður Karlsdóttir, þroskaþjálfi, Reyðarfirði
- Sigfús Vilhjálmsson, útvegsbóndi, Mjóafirði
- Svanhvít Aradóttir, forstöðuþroskaþjáfi, Norðfirði
- Svanbjörg Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Eskifirði
- Krzysztof Zbigniew Sakaluk, ráðsmaður, Norðfirði
- Þorbergur N. Hauksson, varaslökkvistjóri, Eskifirði
- Guðmundur Þorgrímsson, verktaki, Fáskrúðsfirði
Á framboðslistanum eru 8 konur og 10 karlar. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum hlaut Framsóknarflokkurinn tvo sveitarstjórnarfulltrúa.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.