Framboðslistar Framsóknar, Samfylkingar og Viðreisnar hafa náð samkomulagi um myndum meirihluta í Mosfellsbæ. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Segir að samkomulag hafi náðst um það að Halla Karen Kristjánsdóttir, oddviti Framsóknar, verði formaður bæjarráðs. Þá verður Anna Sigríður Guðnadóttir, oddviti Samfylkingarinnar, forseti bæjarstjórnar en Lovísa Jónsdóttir, oddviti Viðreisnar, mun taka við embættinu að ári liðnu.
Framsóknarflokkurinn fékk fjóra fulltrúa í sveitarstjórnarkosningunum en Samfylkingin og Viðreisn einn hvor.
„Samstarf flokkanna byggist á stefnuskrám þeirra og verður málefnasamningur formlega kynntur við undirritun, sem boðað verður til fyrir fyrsta fund nýrrar bæjarstjórnar. Framboðin þrjú eru sammála um að leggja til á fyrsta fundi bæjarráðs að bæjarstjóri Mosfellsbæjar verði ráðinn og að leitað verði ráðgjafar utanaðkomandi aðila til að aðstoða við ráðningarferlið,“ segir í tilkynningunni.
Frekari upplýsingar um kosningarnar af vefnum kosningasaga:
Í bæjarstjórnarkosningum buðu fram Framsóknarflokkur, Viðreisn, Sjálfstæðisflokkur, Vinir Mosfellsbæjar, Miðflokkur, Samfylking og Vinstrihreyfingin grænt framboð. Bæjarfulltrúum fjölgaði úr 9 í 11.
Framsóknarflokkurinn hlaut 4 bæjarfulltrúa en hafði engan fyrir, Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 4 eins og síðast, Vinir Mosfellsbæjar hlutu 1, Samfylkingin 1 og Viðreisn 1. Miðflokkurinn og Vinstrihreyfingin grænt framboð misstu sína bæjarfulltrúa. Vinum Mosfellsbæjar vantaði 36 atkvæði til að fella fjórða mann Sjálfstæðisflokksins og Vinstrihreyfingunni grænu framboð vantaði 63 atkvæði til þess sama og til að halda sínum bæjarfulltrúa.
Úrslit:
Mosfellsbær | Atkv. | % | Fltr. | Breyting | |
B-listi Framsóknarflokks | 1.811 | 32,20% | 4 | 29,26% | 4 |
C-listi Viðreisnar | 444 | 7,89% | 1 | -3,35% | 0 |
D-listi Sjálfstæðisflokks | 1.534 | 27,28% | 4 | -11,92% | 0 |
L-listi Vinir Mosfellsbæjar | 731 | 13,00% | 1 | 2,37% | 0 |
M-listi Miðflokksins | 278 | 4,94% | 0 | -4,03% | -1 |
S-listi Samfylkingar | 505 | 8,98% | 1 | -0,56% | 0 |
V-listi Vinstri grænna | 321 | 5,71% | 0 | -3,92% | -1 |
Í-listi Íbúasamtaka og Pírata | -7,86% | 0 | |||
Samtals gild atkvæði | 5.624 | 100,00% | 11 | -0,01% | 2 |
Auðir seðlar | 125 | 2,17% | |||
Ógild atkvæði | 15 | 0,26% | |||
Samtals greidd atkvæði | 5.764 | 61,18% | |||
Kjósendur á kjörskrá | 9.422 |
Kjörnir bæjarfulltrúar | |
1. Halla Karen Kristjánsdóttir (B) | 1.811 |
2. Ásgeir Sveinsson (D) | 1.534 |
3. Aldís Stefánsdóttir (B) | 906 |
4. Jana Katrín Knútsdóttir (D) | 767 |
5. Dagný Kristinsdóttir (L) | 731 |
6. Sævar Birgisson (B) | 604 |
7. Rúnar Bragi Guðlaugsson (D) | 511 |
8. Anna Sigríður Guðnadóttir (S) | 505 |
9. Örvar Jóhannsson (B) | 453 |
10. Lovísa Jónsdóttir (C) | 444 |
11. Helga Jóhannesdóttir (D) | 384 |
Næstir inn | vantar |
Guðmundur Hreinsson (L) | 36 |
Bjarki Bjarnason(V) | 63 |
Sveinn Óskar Sigurðsson (M) | 106 |
Leifur Ingi Eysteinsson (B) | 107 |
Ólafur Ingi Óskarsson (S) | 263 |
Valdimar Birgisson (C) | 324 |