Categories
Fréttir

„Hefur ásótt svo marga eins og draugur“

Deila grein

08/03/2023

„Hefur ásótt svo marga eins og draugur“

Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður, ræddi Endóvikuna, í störfum þingsins, en vikunni er ætlað að vekja athygli á sjúkdómnum endrómetríósu. Sjúkdómurinn hefur einnig verið kallaður legslímuflakk og er mikilvægt að hann hljóti athygli og vinna að vitundarvakningu og fræðslu. „Þetta er skæður sjúkdómur og það er löngu tímabært að við viðurkennum alvarleika hans og bregðumst við af fullri alvöru.“

„Endómetríósa, eða endó til styttingar, hrjáir konur og einstaklinga sem fæðast í kvenlíkama. Sjúkdómurinn er þeim þungbær, hann er krónískur fjölkerfasjúkdómur og afar sársaukafullur. Af þeim sem hafa sjúkdóminn eru um 60% með einkenni og um 20% með mjög sár einkenni,“ sagði Halla Signý.

Því er einstaklega ánægjulegt að sjá heilbrigðiskerfið taka meðhöndlun sjúkdómsins föstum tökum.

„Fræðsla hefur bæst til muna og ekki er lengur hvíslað um sjúkdóminn. Ásamt þessu hefur hæstv. heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, staðfest samning Sjúkratrygginga Íslands við Klíníkina um kaup á aðgerðum vegna sjúkdómsins. Samningurinn er stórt skref sem kemur til með að bæta líf margra. Á sama tíma fá einstaklingar sem sjúkdómurinn hrjáir loksins viðurkenningu á því sem raunverulega er að hrjá þá. Sjúkdómurinn er ekki lengur túrverkir sem á bara að harka af sér heldur er þetta alvarlegur og sársaukafullur sjúkdómur sem hægt er að meðhöndla,“ sagði Halla Signý.


Ræða Höllu Signýjar í heild sinni á Alþingi:

„Virðulegi forseti. Endóvikan hófst í gær. Hvað er Endóvika? Jú, það er vika til vitundarvakningar og fræðslu sem vekur verðskuldaða athygli á endrómetríósu, sem einnig kallast legslímuflakk, sjúkdómur sem ekki mátti tala um í áranna raðir. Endómetríósa, eða endó til styttingar, hrjáir konur og einstaklinga sem fæðast í kvenlíkama. Sjúkdómurinn er þeim þungbær, hann er krónískur fjölkerfasjúkdómur og afar sársaukafullur. Af þeim sem hafa sjúkdóminn eru um 60% með einkenni og um 20% með mjög sár einkenni. Endó leiðir til yfirborðsþekju endómetríósufrumna á líffærin sem bregðast við mánaðarlegum hormónabreytingum kvenlíkamans og valda bólgum og jafnvel innvortis blæðingum. Þetta er ekki tæmandi talning einkenna en þau eiga það öll sameiginlegt að reynast sársaukafull. Þetta er skæður sjúkdómur og það er löngu tímabært að við viðurkennum alvarleika hans og bregðumst við af fullri alvöru.

Því er einstaklega ánægjulegt að sjá heilbrigðiskerfið taka meðhöndlun sjúkdómsins föstum tökum. Fræðsla hefur bæst til muna og ekki er lengur hvíslað um sjúkdóminn. Ásamt þessu hefur hæstv. heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, staðfest samning Sjúkratrygginga Íslands við Klíníkina um kaup á aðgerðum vegna sjúkdómsins. Samningurinn er stórt skref sem kemur til með að bæta líf margra. Á sama tíma fá einstaklingar sem sjúkdómurinn hrjáir loksins viðurkenningu á því sem raunverulega er að hrjá þá. Sjúkdómurinn er ekki lengur túrverkir sem á bara að harka af sér heldur er þetta alvarlegur og sársaukafullur sjúkdómur sem hægt er að meðhöndla.

Ég vil hvetja þingmenn til að sækja sér auknar upplýsingar og fræðast um þennan sjúkdóm sem hefur ásótt svo marga eins og draugur, færa hann í ljósið og styðja við þau sem sjúkdómurinn hrjáir, bæði persónulega og hér á þingi.“