Tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista Framsóknar & félagshyggju í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 14. maí var borinn upp til atkvæða á fjölmennum félagsfundi hjá Framsóknarfélagi Þingeyinga í dag, laugardaginn 12. mars. Tillagan var samþykkt samhljóða og hlaut mikið lof. Fullt var út úr dyrum á fundinum og mikill kraftur í félögum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Framsóknarflokkurinn er með þrjá fulltrúa af níu í sveitarstjórn og hafa þeir fulltrúar verið ötullir fulltrúar samfélagsins.
Oddviti listans er Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri og kennari á Húsavík, sem hefur setið níu ár í sveitarstjórn auk þess að vera varafulltrúi um tíma og sinnt þingstörfum. Soffía Gísladóttir skipar annað sætið og er búsett í Lindarbrekku í Kelduhverfi. Hún kemur ný inn á listann en hún þekkir svæðið vel sem forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi Eystra og Austurlandi og hefur einnig sinnt þingstörfum. Eiður Pétursson, vélstjóri á Húsavík og starfar fyrir Landsvirkjun, skipar þriðja sætið. Hann er varafulltrúi framboðsins í dag og hefur setið í fjölskylduráði sveitarfélagsins á kjörtímabilinu. Þar á eftir koma Bylgja Steingrímsdóttir, Eysteinn Heiðar Kristjánsson og Hanna Jóna Stefánsdóttir.
Framboðslistinn:
- Hjálmar Bogi Hafliðason, Húsavík
- Soffía Gísladóttir, Kelduhverfi,
- Eiður Pétursson, Húsavík
- Bylgja Steingrímsdóttir, Húsavík
- Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Húsavík
- Hanna Jóna Stefánsdóttir, Húsavík
- Stefán Haukur Grímsson, Kópaskeri
- Heiðar Hrafn Halldórsson, Húsavík
- Brynja Rún Benediktsdóttir, Húsavík
- Unnsteinn Ingi Júlíusson, Húsavík
- Birna Björnsdóttir, Raufarhöfn
- Aðalgeir Bjarnason, Húsavík
- Guðlaug Anna Ívarsdóttir, Öxarfirði
- Bergur Elías Ágústsson, Húsavík
- Aðalheiður Þorgrímsdóttir, Reykjahverfi
- Óskar Ásgeirsson, Húsavík
- Unnur Erlingsdóttir, Húsavík
- Kristján Kárason, Húsavík