Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður Framsóknar í Norðausturkjördæmi, segir leiðarljósið vera samvinnu og samfélagslega ábyrgð í verkum Þingflokks Framsóknarmanna á Alþingi í vetur. Unnið verði að bættum hag fjölskyldna af festu svo þær njóti skilvirkari þjónustu og farsælla samfélags. Lykillinn að árangri sé samvinna. Þetta kemur fram í grein hennar í Morgunblaðinu á dögunum.
„Félags- og barnamálaráðherra vinnur að umbótum á fæðingarorlofskerfinu til að auka rétt foreldra með lengingu orlofs, hækkun á mánaðarlegum hámarksgreiðslum og endurskoðun á forsendum greiðslna,“ segir Líneik Anna.
„Heildstæðar aðgerðir mennta- og menningarmálaráðherra hafa skilað sér í stóraukinni aðsókn að kennaranámi sem undirbyggir enn öflugra menntakerfi til framtíðar. Í haust verður lagt fram frumvarp sem mun umbylta lánaumhverfi námsmanna.“
Categories
Leiðarljósið verður samvinna og samfélagsleg ábyrgð
16/09/2019
Leiðarljósið verður samvinna og samfélagsleg ábyrgð