„Framkvæmdarstjórn LFK starfar fyrir allar konur í flokknum til að auka veg þeirra til áhrifa í stjórnmálum, en vill ekki skapa fordæmi þess eðlis að taka stöðu í einstökum framboðsmálum. Framkvæmdastjórn LFK fylgist með hlut kvenna innan Framsóknarflokksins og mun hvetja uppstillingarnefndir og kjörnefndir áfram í sinni vinnu við að tryggja hlut kvenna í forystusætum. Hvetur Framkvæmdastjórn LFK konur áfram um allt land til þess að auka hlut kvenna, fylgjast með og vera í sambandi við framkvæmdastjórnina um gang mála. Að lokum vill framkvæmdastjórn LFK taka undir þau skilaboð sem bárust öllum formönnum félaga frá Jafnréttisnefnd flokksins varðandi jöfn kynjahlutföll.“
Categories
LFK hvetur konur áfram!
21/02/2014
LFK hvetur konur áfram!