Kjördæmaþing framsóknarfélaganna í Reykjavík hefur samþykkt tillögu kjörstjórnar um skipan í efstu sjö sæti framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Framsóknarflokkurinn í Reykjavík gengur til kosninga undir kjörorðunum Reykjavík fyrir alla.
Efstu sjö sætin skipa:
- Óskar Bergsson, rekstrarfræðingur og húsasmíðameistari
- Guðrún Bryndís Karlsdóttir, sjúkraliði og verkfræðingur
- Valgerður Sveinsdóttir, lyfjafræðingur
- Guðlaugur Gylfi Sverrisson, vélfræðingur
- Hafsteinn Ágústsson, kerfisstjóri
- Hallveig Björk Höskuldsdóttir, öryggisstjóri
- Trausti Harðarson, viðskiptafræðingur
Fjölmörg mál bíða úrlausnar í Reykjavík sem munu gera borgina að betri stað til að búa á. Það er ekki nóg að hlusta á borgarbúa, en heyra ekki hvað þeir segja. Ekki síst á það við skipulagsmál, en stórar ákvarðanir þarf að taka á næstunni svo þróun borgarinnar verði til hagsbóta fyrir alla Reykvíkinga, ekki bara suma. Liður í því er staðsetning flugvallarins í Reykjavík, en að mati Framsóknarflokksins verður að tryggja núverandi staðsetningu hans, ekki síst ef borgin á að þjóna hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna.
Skipulagsmál eru umhverfismál og þau verður að nálgast með umræðu við þá sem í borginni búa. Skipuleggja þarf borgina þannig að búseta nærri vinnustað sé raunhæfur möguleiki. Sem dæmi má nefna að tæp 80% af öllum störfum í Reykjavík eru í vestur hluta hennar, þessu þarf að breyta.