Átakshópur um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði kynnti nýverið tillögur sínar. Hópurinn skilaði af sér 40 tillögum sem allar eru til þess fallnar að bæta stöðu á húsnæðismarkaði. Tillögurnar varða allt frá almennu íbúðakerfi, húsnæðisfélögum og leiguvernd, til skipulags- og byggingarmála, samgönguinnviða og ríkislóða, auk upplýsingamála og eftirlitsmála ýmiss konar.
Niðurstaða hópsins er að töluverður skortur er á húsnæði hér landi, hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli, en sem stendur vantar á bilinu 5.000-8.000 íbúðir á landinu öllu. Um 10.000 nýjar íbúðir eru á leið á markaðinn á næstu þremur árum en vegna fyrirsjáanlegrar fólksfjölgunar mun okkur vanta í kringum 2.000 íbúðir í upphafi árs 2022.
„Vinna hópsins gekk vel og ég hef sagt að hún sé mikilvægur liður í samtali ríkisstjórnarinnar, sveitarfélaga og heildasamtaka á vinnumarkað fyrir yfirstandandi kjaraviðræður. Allir hagsmunaaðilar eru sammála um að tryggja þurfi aukið framboð íbúða á hagkvæman og skjótvirkan hátt og bæta stöðu þeirra sem standa höllum fæti á húsnæðismarkaði, ekki síst stöðu leigjenda.“ Þetta skrifar Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, í grein í Morgunblaðinu 26. janúar.
„Verkefnið fram undan er stórt en í góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðar og aðra hagsmunaaðila er ég sannfærður um að við getum náð tilætluðum árangri. Húsnæðistillögurnar sem kynntar voru eftir samráð stjórnvalda og aðila vinnumarkaður eru góðar. Þær sýna okkur að samtal og samvinna getur skilað árangri. Stjórnvöld eru tilbúinn til samtals um frekari útfærslur þessara tillagna og um önnur mikilvæg mál sem tengjast kjaramálum. En forsenda slíks er auðvitað alltaf sú að aðilar vinnumarkaðar nái saman um skynsamlegar lausnir sín á milli. Ég er sannfærður um að ef allir leggjast á eitt er mögulegt að ná hagstæðri niðurstöðu þessara mála.“
Grein Ásmundar Einars Daðasonar í heild sinni má lesa hér.