Kjörstjórn hefur ákveðið vegna Covid-19 heimsfaraldursins sem orsakað hefur erfiðleika við framkvæmd prófkjörs í kjördeildum að fresta kosningunni til 8. maí 2021. Frestunin byggir á heimild í 47. gr. X. kafla í reglum um lokað prófkjör.
Eftirfarandi breytingar verða á dagsetningum:
- Framboðsfrestur til þátttöku í prófkjörinu rennur út 15 dögum fyrir valdag eða föstudaginn 23. apríl 2021 kl. 12.00 á hádegi.
- Kjörskrá verður gerð samkvæmt félagatali 8. apríl 2021, eða 30 dögum fyrir kjördag. (Frestur til skráningar á félagatal er til miðnættis 8. apríl 2021.)
Framboðum skal skila til formanns kjörstjórnar, Helgu Hauksdóttur, á netfangið hauksdottir.helga@gmail.com. Formaður veitir einnig frekari upplýsingar um prófkjörið.
Kosið verður um 5 efstu sæti listans. Sjá nánar inn á framsokn.is.