Framboðslisti Framsóknar í Hafnarfirði var samþykktur á fundi fulltrúaráðs miðvikudaginn 2. mars sl.
Valdimar Víðisson, skólastjóri Öldutúnsskóla og formaður fjölskylduráðs í Hafnarfirði, leiðir lista flokksins og Margrét Vala Marteinsdóttir, forstöðukona búsetukjarna og varaformaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar skipar annað sæti listans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum og að mikill áhugi hafi verið og að 14 framboð hafi borist.
„Ég þakka af heilum hug það traust sem mér er sýnt að leiða lista Framsóknar í Hafnarfirði. Listinn er öflugur og hefur á að skipa fólk með ólíkan bakgrunn og reynslu sem nýtast mun bæjarfélaginu vel í þeim verkefnum sem framundan eru. Við höfum góða sögu að segja eftir síðustu fjögur ár við stjórn bæjarfélagsins, ætlum okkur að vinna áfram á þeim grunni og heyja heiðarlega og málefnalega kosningabaráttu. Við mætum sterk og vel undirbúin til leiks og ætlum að bæta við okkur fylgi,“ segir Valdimar Víðisson, nýr oddviti Framsóknar í Hafnarfirði.
Listi Framsóknar í Hafnarfirði
- Valdimar Víðisson, skólastjóri
- Margrét Vala Marteinsdóttir, forstöðukona búsetukjarna
- Árni Rúnar Árnason, tækjavörður
- Jóhanna Erla Guðjónsdóttir, félagsráðgjafi
- Bjarney Grendal Jóhannesdóttir, grunnskólakennari
- Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður
- Einar Gauti Jóhannesson, sundlaugarvörður
- Jóhanna M. Fleckenstein, framkvæmdastjóri
- Jón Atli Magnússon, rannsóknar- og þróunarstjóri
- Sindri Mar Jónsson, ml. viðskiptalögfræði
- Juliana Kalenikova, öryggisvörður
- Garðar Smári Gunnarsson, fiskiðnaðarmaður
- Anna Karen Svövudóttir, þýðandi og varaþingmaður
- Þórey Anna Matthíasdóttir, ökuleiðsögumaður/rútubílstjóri
- Júlíus Sigurjónsson, sölumaður og plötusnúður
- Linda Hrönn Þórisdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur
- Ágúst Bjarni Garðarsson, alþingismaður og bæjarfulltrúi
- Svanhildur Sveinbjörnsdóttir, eldri borgari
- Erlingur Örn Árnason, lögreglumaður
- Petrea Aðalheiður Ómarsdóttir, BA í félagsráðgjöf
- Guðbjörg Fjóla Halldórsdóttir, nemi í félagsráðgjöf
- Þórarinn Þórhallsson, mjólkurfræðingur
Fréttin birtist fyrst á fjardarfrettir.is 5. mars 2022