Í dag verður tekin langþráð skóflustunga að stækkun flugstöðvar á Akureyri. Hún markar upphaf að nýrri sókn í ferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi sem Framsókn hefur haft í forgrunni í sínum áherslum. Stækkun flugstöðvarinnar leggur grunn að öflugri ferðaþjónustu og býr til öflug tækifæri til að fjölga störfum á svæðinu og auka verðmætasköpun.
Landshlutinn er stór og töfrandi sem magnar Ísland sem eftirsóttan áfangastað og hefur hlutfall erlendra ferðamanna verið að aukast. Framan af gegndi flugvöllurinn á Akureyri hlutverki varaflugvallar en smám saman, vegna ötullar vinnu og vel heppnaðrar markaðssetningar heimamanna, hófst beint flug sem hefur aukist og er nú farið að skipta verulegu máli í efnahagslegu tilliti fyrir svæðið. Stækkun flugstöðvar á Akureyri ásamt flughlaði er meðal fjölbreytta verkefna sem ríkisstjórnin leggur áherslu á að verði hafist handa við strax svo hægt verði að taka á móti stærri flugvélum og snúa hjólum atvinnulífsins í gang aftur.
Stórkostlegt byggðamál
Á síðustu árum hef ég lagt áherslu á að stíga stór skref sem styðja við uppbyggingu innlandsflugvalla og að jafna aðstöðumun íbúa að grunnþjónustu landsmanna. Loftbrúin er hóf sig til flugs síðasta haust er eitt það stórkostlegasta byggðamál síðari tíma og jafnar verulega aðstöðumun þeirra sem búa fjarri höfuðborginni. Jöfnun á aðstöðumun snýst um að búa til tækifæri þar sem íbúar hafa jöfn tækifæri, geta blómstrað og skapa samfélag þar sem hlúð er að atvinnurekstri og sprotum. Ljóst er að það eru ekki eingöngu sveitarfélög á svæðinu sem munu njóta áhrifanna af auknum ferðamannastraumi og beinu flugi til Akureyrar, óbeinu tekjurnar og störfin verða til um land allt. Tími fjárfestinga er núna og fyrir Norður- og Austurland skiptir öllu máli að vera vel í stakk búinn til að taka á móti ferðamönnum nú þegar við sjáum til lands eftir Covid-tímabilið.
Skýr sýn
Í ályktun Framsóknar er sett fram heildarstefna fyrir allt landið um uppbyggingu innviða fyrir flugsamgöngur. Stefnu sem kveður á um hvar eiga að vera flugvellir, hvernig þeir eiga að vera búnir og hverju þeir eiga að geta þjónað. Í framhaldi lagði ég til í samgönguáætlun að mótuð yrði flugstefna um helstu þætti flugs með hagvöxt, flugtengingar og atvinnusköpun í forgrunni. Í flugstefnu er horft til lengri tíma og var stefnan sett á að fjölga hliðum inn til landsins, að dreifa ferðamönnum um landið og fjölga tækifærum til atvinnusköpunar og ferðaþjónustu.
Til að fylgja málinu eftir var skipaður vinnuhópur með fulltrúum tveggja ráðuneyta, Akureyrarbæjar, Eyþings, ferðaþjónustu á Norðurlandi og Isavia. Hópnum var falið að gera tillögu um endurbætur á flugstöðinni til framtíðar, vinna greiningu á markaðssetningu á Norðurlandi sem áfangastað og gera kostnaðaráætlun um mögulega stækkun eða endurbætur. Niðurstöður voru kynntar í mars 2020 og að lokinni fjármögnun flugstöðvarinnar var Isavia falið að hefjast handa við að láta hanna flugstöðina og nú er komið að þessum ánægjulega áfanga að taka fyrstu skóflustunguna. Ég óska íbúum á Norður- og Austurlandi innilega til hamingju með áfangann og megi hann styrkja og efla svæðið til lengri tíma.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 15. júní 2021.