Ýmsir hafa áhyggjur af stefnu stjórnvalda um leiðréttingu skulda og afnám gjaldeyrishaftanna. Enn er fullyrt að allt fari hér á versta veg ef kröfuhöfum verður ekki tryggður hámarkshagnaður af eignum sínum á kostnað ríkissjóðs og heimilanna. Nú síðast breytti S&P horfum ríkissjóðs úr stöðugum í neikvæðar.
Að gefnu tilefni er því rétt að ítreka eftirfarandi. Stefna stjórnvalda er að leiðrétta stökkbreytt verðtryggð lán heimilanna. Skuldaleiðréttingin mun ekki auka skuldir ríkissjóðs. Nánari útfærsla mun liggja fyrir í nóvember. Bæði bein niðurfærsla höfuðstóls og skattalegar aðgerðir kunna að verða fyrir valinu í samræmi við stefnu stjórnarflokkanna. Mögulegt verður að beita fjárhæðartakmörkunum og öðrum skilyrðum til að tryggja jafnræði og skilvirkni úrræðanna.
Stjórnvöld telja rétt að þeir sem orsökuðu hækkun verðtryggðra skulda greiði fyrir leiðréttinguna. Því sé rétt að það svigrúm sem myndast samhliða uppgjöri þrotabúanna verði nýtt til að koma til móts við heimilin.
Forsætisráðherra og Seðlabanki Íslands buðu lánshæfismatsfyrirtækinu S&P sérstakan fund til að fara ítarlega yfir áform um skuldaleiðréttingu, grundvöll hennar og fjármögnun. Fyrirtækið ákvað að þiggja ekki það boð en þrátt fyrir það byggir það m.a. ákvörðun sína á að ekki liggi fyrir nægar upplýsingar um fyrirætlanir stjórnvalda. Afstaða þeirra er því ófagleg og illa grundvölluð, en kemur kannski ekki á óvart.
Við vissum ætíð að þetta yrði ekki auðvelt. Gífurlegir hagsmunir eru undir að stoppa baráttu okkar fyrir heimilum landsins. Ef smáríki á borð við Ísland kynni að leiðrétta skuldir heimilanna á kostnað fjármagnseigenda, þá gæti kannski fleirum dottið í hug að gera það sama!
Kannski skýrir þetta mismunandi afstöðu S&P til skuldaleiðréttingar og Icesave-samninganna á sínum tíma. Þá taldi S&P það bæta lánshæfismat Íslands að auka skuldir ríkissjóðs um 200 milljarða króna vegna Icesave. Yrðu samningarnir ekki samþykktir myndi matið hins vegar hugsanlega lækka umtalsvert.
Ísland mun standa við skuldbindingar sínar og stjórnvöld munu standa við loforð sitt. Loforðið er að lækka skuldir. Skuldir heimilanna, skuldir ríkisins og skuldir þjóðarbúsins. Það upplýsist hér með.
Eygló Harðardóttir