Smellið hér til þess að lesa stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
22/05/2013
Stjórnarsáttmáli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks22/05/2013
Stjórnarsáttmáli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks13/05/2013
Kjörbréf gefið út fyrir þingmenn FramsóknarLandskjörstjórn hefur í samræmi við úrslit alþingiskosninganna 27. apríl 2013 gefið út kjörbréf 63 þingmanna og jafnmargra varamanna.
Fyrir Framsóknarflokk:
Ásmundur Einar Daðason, 3. þm. Norðvest.
Elsa Lára Arnardóttir, 6. þm. Norðvest.
Eygló Harðardóttir, 2. þm. Suðvest.
Frosti Sigurjónsson, 2. þm. Reykv. n.
Gunnar Bragi Sveinsson, 1. þm. Norðvest.
Haraldur Einarsson, 8. þm. Suðurk.
Höskuldur Þór Þórhallsson, 3. þm. Norðaust.
Jóhanna María Sigmundsdóttir, 7. þm. Norðvest.
Karl Garðarsson, 8. þm. Reykv. s.
Líneik Anna Sævarsdóttir, 5. þm. Norðaust.
Páll Jóhann Pálsson, 5. þm. Suðurk.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 1. þm. Norðaust.
Sigrún Magnúsdóttir, 7. þm. Reykv. n.
Sigurður Ingi Jóhannsson, 1. þm. Suðurk.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, 3. þm. Suðurk.
Vigdís Hauksdóttir, 2. þm. Reykv. s.
Willum Þór Þórsson, 5. þm. Suðvest.
Þorsteinn Sæmundsson, 10. þm. Suðvest.
Þórunn Egilsdóttir, 8. þm. Norðaust.
30/04/2013
Fleiri skemmtilegar staðreyndir um þingflokk FramsóknarFylgi Framsóknar hefur ekki verið meira síðan í kosningum 1979 en þá hlaut Framsókn 24,9% og 17 þingmenn. Framsókn fékk síðast 19 þingmenn árið 1963.
Hérna eru nokkar skemmtilegar staðreyndir til viðbótar um þingflokk Framsóknar:
29/04/2013
Staðreyndir um hin nýja þingflokk FramsóknarGaman er að skoða nokkrar staðreyndir um hin nýja þingflokk Framsóknar.
Aðrar skemmtilegar staðreyndir um þingflokk framsóknarmanna:
Fleiri skemmtilegar staðreyndir um þingflokk Framsóknar verða birtar á morgun.
28/04/2013
Framsókn fékk 19 þingmennFramsókn fékk 19 þingmenn, alla kjördæmakjörna í Alþingiskosningum 2013.
Þeir eru:
– Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
– Höskuldur Þór Þórhallsson
– Líneik Anna Sævarsdóttir
– Þórunn Egilsdóttir
– Gunnar Bragi Sveinsson
– Ásmundur Einar Daðason
– Elsa Lára Arnardóttir
– Jóhanna María Sigmundsdóttir
– Sigurður Ingi Jóhannsson
– Silja Dögg Gunnarsdóttir
– Páll Jóhann Pálsson
– Haraldur Einarsson
– Eygló Harðardóttir
– Willum Þór Þórsson
– Þorsteinn Sæmundsson
– Vigdís Hauksdóttir
– Karl Garðarsson
– Frosti Sigurjónsson
– Sigrún Magnúsdóttir
Til þess að kynnast þingmönnum Framsóknar nánar má skoða youtube rás framsóknar eða lesa um þá hér
27/04/2013
Kosningavaka í Reykjavík27/04/2013
Kosningavaka og kjördagur í Kraganum26/04/2013
Af hverju FramSókn?Á laugardag 27. apríl, göngum við til kosninga til Alþingis. Kosningar eru alltaf mikilvægar – en aldrei sem nú.
Heimili landsins eru grunnstoðir samfélagsins. Framsókn mun berjast fyrir framtíð þeirra. Að nýta ekki ofurhagnað vogunarsjóða og annarra kröfuhafa bankanna væri glapræði. Við Framsóknarmenn ætlum að setja á oddinn leiðréttingu stökkbreyttra verðtryggðra lána heimilanna og afnám verðtryggingar. Samhliða þeirri aðgerð er lausn „snjóhengjunnar“ svokölluðu, sem er forsenda fyrir afnámi gjaldeyrishafta.
Við munum beita okkur fyrir uppbyggingu alls atvinnulífsins – við þurfum aukna fjárfestingu og hagvöxt. Við viljum úthýsa atvinnuleysi úr samfélaginu. Tækifærin í suðurkjördæmi og öllu Íslandi eru gríðarleg hvort sem er í hefðbundnum atvinnugreinum til sjávar og sveita, ferðaþjónustu eða orkugeiranum. Þá er þekkingariðnaðurinn með mannshugann óþrjótandi auðlind. Þá auðlind viljum við virkja til að fá fram fjölbreytt atvinnulíf og betri lífskjör. Hér á Suðurnesjum er eimreið ferðaþjónustannar á Íslandi – flugstöð Leifs Eiríkssonar – hún mun eflast og þjónusta í kringum hana mun koma Suðurnesjum vel. Álverið í Helguvík þarf að rísa og munum við Framsóknarmenn gera það sem við getum til að það verkefni gangi eftir. Fjölbreytt atvinnulíf vex í kringum stórverkefni og stórfyrirtæki – það mun gerast á Suðurnesjum líka.
Með því að setja X við B sýnir þú stuðning í verki til að koma stefnu okkar Framsóknarmanna í framkvæmd. Þannig getum við skapað saman aðstæður til sóknar í atvinnumálum, byggt upp heilbrigðiskerfið og löggæsluna og leiðrétt kjör aldraðra og öryrkja.
Og – með leiðréttingu skulda og afnámi verðtryggingar, lyftum við saman okinu af heimilunum. Sækjum fram saman – XB.
Með sumarkveðju,
Sigurður Ingi Jóhannsson
25/04/2013
Takk fyrir mig!Verðtryggða húsnæðislánið mitt hefur hækkað um 350.000 krónur á 28 dögum. Takk fyrir mig. Staðan er svipuð og jafnvel mun verri hjá þúsundum annarra heimila.
Mánaðamótin eru orðin tími skelfingar hjá íbúðareigendum, enda stjórnar vísitala neysluverðs lífi þeirra. Þetta er eins og að vera sífellt í rússneskri rúllettu. Allt að helmingur íslenskra heimila er tæknilega gjaldþrota. Við erum að tala um tugþúsundir heimila. Þeim fjölgar sífellt, miðstéttin er að hverfa og þúsundir Íslendinga sjá fram á skuldaánauð í framtíðinni.
Takk fyrir skjaldborgina, kæru stjórnvöld. Takk, þið fastapennar blaðanna og netmiðla sem sjáið Ísland breytast í eyðimörk nema verðtrygging húsnæðislána fái að haldast. Takk fyrir hina farsælu efnahagsstjórn sem hefur leitt til stöðugleika í efnahagsmálum, eða hitt þó heldur. Og svo þarf alveg sérstaklega að þakka þeim sem sjá enga aðra lausn en að afsala Evrópusambandinu fullveldi þjóðarinnar – enda erum við auðvitað fullkomlega ófær um að sjá um okkur sjálf. Svo er þetta allt krónunni að kenna, enda er hún ekkert annað en verkfæri djöfulsins. Lifir sjálfstæðu lífi og hefur það eina markmið að ganga frá heimilum landsins og skapa verðbólgu. Auðvitað er það henni að kenna að verðtryggð lán heimila landsins hafa hækkað um 23 milljarða króna á einum mánuði. Það hefur ekkert að gera með skelfilega hagstjórn. Eða hvað?
Stjórnarflokkarnir þegja þunnu hljóði, enda fullkomið ráðaleysi þegar kemur að skuldum heimilanna. Minni spámenn þessara flokka tala áfram um nauðsyn þess að viðhalda verðtryggingu, enda megi annars fastlega búast við ragnarökum. Sjálfstæðismenn hvetja til minna vægis verðtryggingar. Á mannamáli þýðir það að flokkurinn ætlar ekki að hrófla við henni.
Hagnaður bankanna
Á sama tíma birtast fréttir af góðum hagnaði bankanna, sem er fenginn með peningaprentun sem á sér enga stoð í veruleikanum. Peningaprentun sem leiðir einungis til meiri þenslu og verðbólgu. Laun bankastjóranna hafa tekið stökk á undanförnum tveimur árum og að óbreyttu verður stemningin í bankakerfinu fljótlega orðin meiri en nokkru sinni fyrr – bíðum bara í tvö til þrjú ár. Stjórnvöld hafa horft opinmynnt á, án þess að aðhafast nokkuð. Reyndar er það ekki alveg rétt – forsætisráðherra hefur þó sagt að hún skilji ekkert í launum skilanefnda.
Það er ekki bara almennt verðlag sem er stjórnlaust. Þannig hafa stjórnvöld staðið fyrir gegndarlausum gjaldskrár- og skattahækkunum allt kjörtímabilið, sem hafa farið beint út í verðlagið og kynt undir verðbólgu og þar með hækkun skulda heimilanna. Bankarnir hafa skálað, lífeyrissjóðirnir líka. Núna um mánaðamótin bættist síðan það nýjasta við, sykurskatturinn. Stjórnvöldum er ekkert óviðkomandi. Þau vilja hafa puttana í því hvað við borðum og drekkum. Þessi forsjárhyggja þýðir að verðtryggð húsnæðislán hækka um 1 milljarð króna, enda fer hækkunin beint í neysluvísitöluna. Takk fyrir mig.
Sú fylgisaukning sem Framsóknarflokkurinn hefur séð í skoðanakönnunum að undanförnu er ekki tilviljun. Hann er eini flokkurinn sem er með klára stefnu í verðtryggingamálum – hún skal í burtu. Afnám verðtryggingar dugar hins vegar ekki eitt og sér – jafnframt þarf að grípa til annarra aðgerða til að tryggja stöðugleika í efnahagslífi og stöðugra gengi. Það verður gert.
Það er með hreinum ólíkindum að nokkur stjórnmálaflokkur skuli geta mælt með því óréttlæti sem viðgengst í þessu landi. Það er með ólíkindum að nokkur maður skuli geta stungið niður penna og mælt með þeirri gegndarlausu eignaupptöku sem á sér stað um hver mánaðamót með verðtryggingunni. Val kjósenda er því einfalt í komandi kosningum – X-B.
Karl Garðarsson
24/04/2013
Ert þú þolinmóði skuldarinn?Við í Framsóknarflokknum erum stolt af því öfluga starfi sem við höfum unnið síðastliðin misseri við að móta stefnu flokksins okkar sem byggð hefur verið á mikilli greiningarvinnu og aðkomu fjölda fólks og sérfræðinga til að leita leiða til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag. Við höfum sett okkur skýrar siðareglur og tekist á við þann fortíðarvanda sem flokkurinn glímdi við. Við teljum að í öllum ákvarðanatökum okkur eigum við að hafa það meginsjónarmið að leiðarljósi að setja manngildi ofar auðgildi og aðeins þannig getum við virkjað þann kraft og auð sem í þjóðinni okkar býr og við hvetjum þig kjósandi góður til að taka upplýsta ákvörðun á kjördag þar sem sömu meginsjónarmið verða höfð að leiðarljósi.
Í dag dynja á kjósendum okkar allskonar lausnir á skuldavanda heimilanna, svo mikið að mörgum þykir nóg um. Við fögnum því að ráðamenn þjóðarinnar og þeir sem er að sækja um vinnu á Alþingi til næstu fjögurra ára hafa nú loksins viðurkennt og gert sér grein fyrir því að um raunverulegan vanda er að ræða. Frá árinu 2009 hefur Framsóknarflokkurinn verið meðvitaður um þennan vanda og lagði fram tillögur til lausnar á honum á þeim tíma. Þær tillögur fengu ekki hljómgrunn á sínum tíma, en flestir stjórnmálaflokkar hafa í dag viðurkennt að rétt og gerlegt hefði verið að leiðrétta hann með tillögum Framsóknarflokksins á þeim tíma. Vegna aðgerðarleysis stjórnvalda þá hefur þessi vandi nánast útrýmt millistéttinni á Íslandi, valdið því að eldra fólk hefur skuldsett sig langt umfram getu, með því að gangast í ábyrgðir eða veita veð í fasteignum sínum fyrir íbúðakaupum erfingja sinna og sem hefur líka valdið því að kynslóðin sem kemur til með að erfa landið finnur mjög þröngar leiðir, ef nokkrar til að eignast þak yfir höfuðið.
Í umræðum um lausnir í skuldamálum höfum við lagt áherslu á að leiðrétta stökkbreytt húsnæðislán. Við viljum nýta það svigrúm sem skapast við uppgjör þrotabúa gömlu bankanna til að leiðrétta stökkbreytt, verðtryggð húsnæðislán og ástæðan er sú að það er ekkert sem réttlætir að lánþegar sitji einir uppi með afleiðingar stökkbreytingar lána af völdum efnahagshrunsins. Um slíkt réttlætismál er að ræða að þjóðinni ber skylda til að standa saman eins og einn maður, eins og hún hefur sýnt að hún gerir þegar hamfarir hafa átt sér stað.
Kjósendur spyrja sig hvernig er þetta hægt? Margar leiðir eru tækar, en sú sem hugnast okkur í Framsóknarflokknum best er hægt að lýsa í stuttu máli þannig að skuld þrotabús (föllnu bankanna) er eign þess sem á viðkomandi kröfu í búið. Verðmæti krafna í þrotabú ræðst fyrst og fremst af væntingum um hversu mikið fáist úr búinu upp í þær kröfur. Þær væntingar ráðast aðallega af ætluðu verðmæti þeirra eigna sem í búinu eru. Kröfur í Glitni og Kaupþing munu eftir hrun hafa selst á nálægt 5% af nafnvirði. Líklegt er að hinir svonefndu vogunarsjóðir hafi eignast sínar kröfur á verði nálægt því. Talið er að allt að 95% af kröfum í bú gömlu bankanna séu nú í eigu erlendra aðila, að langstærstum hluta vogunarsjóðanna. Í vetur bárust fréttir af því að kröfurnar seldust á 25-30% af nafnverði. Kröfurnar hafa því margfaldast í verði. Þegar þeir keyptu þessar kröfur vissu þeir af gjaldeyrishöftum þeim í gildi eru á Íslandi. Þeir vissu eða máttu vita að þeir þyrftu að semja við íslensk stjórnvöld um það hvernig þeir kæmu eignum sínum úr landi og þannig er íslenska þjóðin í góðri samningsaðstöðu sem okkur ber skylda til að nýta.
Þá er það sanngirnismál að svokölluð „lyklalög“ verði sett sem geri lánþegum mögulegt að afsala eign sinni til lánveitenda án þess að slíkt hið sama leiði til gjaldþrots. Í gegnum tíðina hefur staðan verið sú að fjármálastofnanir og lífeyrisjsóðir hafa lánað gegn fasteignaveðum, en þegar lán hækka vegna verðtryggingar umfram fasteignaverð, eða jafnvel þegar lækkanir verða á fasteignamarkaði, þá hefur það verið lántakinn sem ber áhættuna af því og ef eignin er seld þá standa eftirstöðvarnar eftir sem skuld á lánþegann oft með þeim afleiðingum að hann á sér þá einu leið út úr skuldafeninu að fara í gjaldþrot.
Það er hagsmunamál allra aldurshópa í þjóðfélaginu og ekki síst ófæddrar kynslóðar að afnema verðtryggingu af neytendalánum. Fyrir því eru margar ástæður. Sú fyrsta er sú að verðtrygging leiðir til hærri vaxta vegna þessa að verðtryggð lán hafa verið útbreidd hérlendis og því hafa stýrivaxtahækkanir haft minni áhrif á neyslu og því dregið minna úr þenslu en ella og því má færa rök fyrir því að stýrivextir hafi hækkað meira og verið lengur hærri, en ef verðtrygging hefði ekki verið jafn útbreidd. Önnur er að verðtrygging leiðir sjálfkrafa til meiri verðbólgu þar sem hún hækkar höfuðstól verðtryggðra útlána. Sú hækkun er færð til tekna hjá bönkum, með því hækkar eigið fé bankanna og svigrúm þeirra til peningamyndunar eykst sjálfkrafa. Nýti bankar sér þetta svigrúm til peningamyndunar, eykur það verðbólgu og eftir því sem árin líða magnast áhrif þessarar hringrásar. Í þriðja lagi þá veldur verðtrygging því að erfiðlega gengur að greiða lánin upp og helsta von fasteignaeigenda er sú að verð eigna þeirra hækki hraðar en skuldir. Frá hruni hefur eignaverð nánast staðið í stað á meðan að lán hafa hækkað og þúsundir lánþega hafa því tapað öllum þeim sparnaði sem þeir lögðu í íbúðakaup. Í fjórða lagi þá hvetur verðtrygging beint til verðbólgu þar sem viðskiptabankar eiga meira verðtryggt en þeir skulda og því græða þeir þegar verðbólga hækkar. Ríkissjóður skuldar um 700 milljarða óverðtryggt og hagnast því um 7 milljarða við hvert 1% sem verðbólgan hækkar um. Bankar og stjórnvöld eru í lykilstöðu til að hafa áhrif á verðbólgu, en hafa lítinn hvata til þess. Síðastliðin þrjú ár hafa skattahækkanir stjórnvalda skilað því að skuldir heimilanna hækkuðu um 22 milljarða króna og þykir flestum nóg um og í fimmta lagi þá er engin leið til þess að verðtryggðar skuldir lækki í kreppu og er allt tal um slíkt hugarórar einir. Ekki eru ókostir verðtryggingar hér tæmandi taldir.
Með afnámi verðtryggingar verður jafnframt að huga að því að skapa skilyrði til að auðvelda fólki að flytja lánaviðskpti milli lánastofnana og setja þak á innheimtu lántökugjalda við skuldskeytingu t.d. og afnámi stimpilgjalda í þeim tilfellum.
Okkur sem byggjum þetta land, ber skylda til að standa saman um lausn skuldamála heimilanna og vonum að við fáum umboð þitt ágæti kjósandi til þess.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir
(Meðhöfundur að greininni er Vigdís Hauksdóttir og birtist hún fyrst í Hverfablaði Háaleitis- og Bústaðar)