Félagsfundur Framsóknarfélags Akraness

Mánudagur 7.  febrúar 2022 –

Framsókn og frjálsir verða með fund mánudaginn 7. febrúar kl. 20:00 í Bárunni brugghúsi.

Dagskrá:
  1. Tillaga stjórnar um aðferð við val á frambjóðendum Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022.
  2. Kosning uppstillingarnefndar.
  3. Önnur mál.
Framsókn og frjálsir á Akranesi.

Félagsfundur Framsóknarfélags Dalvíkurbyggðar

Þriðjudagur 1. febrúar 2022 –

Framsóknarfélag Dalvíkurbyggðar boðar til fundar um framboðsmál Framsóknar vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Fundurinn verður í Safnaðarheimilinu þriðjudaginn 1. febrúar kl. 17:00.

Áhugasamir frambjóðendur eru beðnir um að hafa samband við Þorstein Björnsson, í síma 892-3892.

Stjórnin.

 

Félagsfundur Framsóknarfélags Ísafjarðarbæjar

Þriðjudagur 1. febrúar 2022 –

Boðað er til rafræns félagsfundar þriðjudagskvöldið 1. febrúar kl. 19.30. Sendur verður út linkur á mánudag til félagsmanna.

Fundarefni er undirbúningur fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí 2022.

Stjórn Framsóknarfélags Ísafjarðarbæjar

Félagsfundur Framsóknarfélags Árborgar

Fimmtudagur 24. mars 2022 –

Haldinn verður félagsfundur Framsónkarfélags Árborgar fimmtudaginn 24. mars að Eyravegi 15 kl. 20.00.

Dagskrá:
  1.  Samþykkt á framboðslista Framsóknar í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí n.k.
  2.  Önnur mál.
Stjórnin.

Fulltrúaráðsfundur í Hafnarfirði

Fimmtudagur 3. febrúar 2022 –

Hér með er boðað til fundar í fulltrúaráði Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði, fimmtudaginn 3. febrúar nk. kl. 20.00 að Reykjarvíkurvegi 50 (salur Nú-skólans).

Dagskrá:
  1. Ákvörðun um aðferð við val á framboðslista Framsóknarflokksins  í Hafnarfirði í bæjarstjórnarkosningunum í vor.
  2. Önnur mál.

Í ljósi samkomutakmarkana vegna COVID-19 gæti dagsetning eða fyrirkomulag fundarins breyst og verður það þá auglýst eins fljótt og auðið er.

Stjórnin.

Félagsfundur Framsóknarfélaganna á Akureyri

Miðvikudagur 19. janúar 2022 –

Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis og Félag ungra  Framsóknarmanna á Akureyri og nágrenni boða til sameiginlegs félagsfundar miðvikudaginn 19. janúar. Fundurinn verður rafrænn og byrjar stundvíslega kl. 20:30.

Kosið í fulltrúaráð og er óskað eftir bæði almennum framboðum og framboðum í stjórn fulltrúaráðsins.

Slóð inn á fundinn verður send öllum félagsmönnum með tölvupósti en jafnframt er hægt að senda póst á framsoknakn@gmail.com og óska eftir skráningu.

Dagskrá:

1. Kosning í fulltrúaráð.
2. Boðað til fundar fulltrúaráðs.
3. Önnur mál.

Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar og nágrennis
Stjórn Félags ungra Framsóknarmanna á Akureyri og nágrennis

Fulltrúaráðsfundur Framsóknarfélaganna í Kópavogi

Miðvikudagur 15. desember 2021 –

Stjórn Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Kópavogi boðar til fulltrúaráðsfundar n.k. miðvikudag, 15. desember 2021, að Bæjarlind 14-16 í Kópavogi, kl. 19:30.

Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta, en einungis kjörnir fulltrúar félaganna í  fulltrúaráðinu eiga atkvæðisrétt á fundinum.

Dagskrá:
  1. Aðferð við val á lista fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar.
  2. Önnur mál.
Stjórnin.

 

Aðalfundur Framsóknarfélags Seltjarnarness

Miðvikudagur 24. nóvember 2021 –

Aðalfundur Framsóknarfélags Seltjarnarness verður haldinn miðvikudaginn 24. nóvember kl. 17:00 í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu 33 í Reykjavík.

Dagskrá:

1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Staða og horfur í stjórnmálum.
3. Bæjarmál.
4. Önnur mál.

Nýir félagar sérstaklega boðnir velkomnir!

STJÓRNIN.

Opinn félagsfundur Framsóknarfélags Fjarðabyggðar

Mánudagur 1. nóvember 2021 –

Boðað er til opins félagsfundar Framsóknarfélags Fjarðabyggðar mánudaginn 1. nóvember í Þórðarbúð á Reyðarfirði kl. 19.00.

Fundarefni er undirbúningur komandi sveitarstjórnarkosninga ásamt kynningu á grænum orkugarði í Fjarðabyggð.

Boðið verður upp á súpu og nýir félagar boðnir sérstaklega velkomnir.

Stjórn Framsóknarfélags Fjarðabyggðar.

Félagsfundur Framsóknarfélags Reykjanesbæjar

Miðvikudaginn 3. nóvember 2021 –

Félagsfundur í Framsóknarfélagi Reykjanesbæjar verður haldinn
miðvikudaginn 3. nóvember í félagsheimili Framsóknarmanna að Hafnagötu 62 í Reykjanesbæ kl. 20.00.

Fundarefni:
  1.  Umræða og atkvæðagreiðsla um hvað aðferð eigi að hafa við val á
    lista framsóknar til sveitastjórnakosninga.
  2. Gestur fundarins verður Jóhann Friðrik Friðriksson, alþingismaður.
  3. Önnur mál.
Stjórnin.