Á aðalfundi Framsóknarfélags Grindavíkur, haldinn 11. mars, var tillaga uppstillinganefndar að skipan framboðslista til sveitarstjórnarkosninga 31. maí n.k. lögð fram og samþykkt. Bryndís Gunnlaugsdóttir, bæjarfulltrúi og lögfræðingur, verður oddviti listans líkt og fyrir fjórum árum.
Framboðslistann skipa eftirfarandi:
- Bryndís Gunnlaugsdóttir, bæjarfulltrúi og lögfræðingur
- Ásrún Kristinsdóttir, kennari og deildarstjóri
- Páll Jóhann Pálsson, bæjarfulltrúi, alþingismaður og útvegsbóndi
- Hjörtur Waltersson, framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Grindavíkur
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttir, gjaldkeri
- Hilmar Helgason, skipstjóri og bæjarfulltrúi
- Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri
- Guðmundur Grétar Karlsson, framhaldsskólakennari
- Sæbjörg Erlingsdóttir, leiðbeinandi á leikskóla
- Anton Guðmundsson, matreiðslumaður og slökkviliðsmaður
- Eva Björg Sigurðardóttir, snyrtifræðingur
- Hörður Sigurðsson, sjómaður
- Unnar Á. Magnússon, vélsmiður
- Sæbjörg M. Vilmundardóttir, heldri borgari
Í síðustu sveitarstjórnarkosningum hlaut Framsóknarflokkurinn 3 bæjarfulltrúa.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.