Vor og sumar hafa verið þeim sem búa um sunnanvert landið ákaflega upplitsdjarft og er langt gengið þegar fólk er farið að kvarta yfir rigningarleysi. Eitthvað er nú að rætast úr því þessa dagana.
Þessi bjarta sumarbyrjun kemur eftir langan þingvetur þar sem margt hefur drifið á daga. Stærsta mál vetrarins. Síðastliðið haust spáðu margir miklu gjörningaveðri á vinnumarkaði með hörðum vinnudeilum og verkföllum. Ríkisstjórnin tók strax við upphaf samstarfsins upp gott og markvisst samtal við aðila vinnumarkaðarins og ávöxturinn var lífskjarasamningurinn sem kynntur var í Ráðherrabústaðnum. Í þeim samningum lék ríkisstjórnin stórt hlutverk. Í þeim samningum voru mál Framsóknar í brennidepli og mikilvægur þáttur í lausninni. Vil ég þar sérstaklega nefna húsnæðismálin með „svissnesku leiðina“ í fararbroddi, lengingu fæðingarorlofs og þá ekki síður stórt skref, gríðarstórt skref, í átt að afnámi verðtryggingar, sem Framsókn hefur barist fyrir margar síðustu kosningar. Ég leyfi mér að fullyrða að án Framsóknar í ríkisstjórn hefðu þessar gríðarlegu samfélagsbætur ekki náð fram að ganga.
Öflug ráðuneyti Framsóknar
Þau ráðuneyti sem við höfum yfir að ráða hafa verið öflug það sem af er kjörtímabilinu. Það er stórsókn í mennta- og menningarmálum þar sem áhersla á íslenskuna og kennarastarfið hefur verið áberandi. Félagsmálin með húsnæðismál og málefni barna hafa verið áberandi í félagsmálaráðuneytinu og í ráðuneyti samgangna og sveitarstjórnarmála hefur áherslan verið lögð á stórsókn í samgöngum um allt land sem felst í því að auka öryggi á vegum og aukin lífsgæði um allt land, skosku leiðina í innanlandsflugi, fyrstu flugstefnu Íslands og fyrstu stefnumótun fyrir sveitarstjórnarstigið hér á landi.
Rauða ljósið fært í lög
Á síðustu dögum þingsins voru ný lög um póstþjónustu samþykkt og meðal mikilvægustu þátta þeirrar nýju löggjafar er að sendingarkostnaður er jafnaður um land allt. Lögin höfðu verið í vinnslu í 12 ár og afar ánægjulegt að sjá þau samþykkt á Alþingi.
Önnur lög sem hafa tekið langan tíma í vinnslu og strandað á þingi nokkrum sinnum eru umferðarlögin sem samþykkt voru á vorþingi. Þetta er mikilvæg og umfangsmikil löggjöf þar sem er til að mynda í fyrsta sinn fært í lög að bannað sé að aka móti rauðu ljósi. Í þessum nýju lögum er einnig gert ráð fyrir að tækninni muni fljúga fram og settur rammi um sjálfkeyrandi bíla svo eitthvað sé nefnt.
Lög um netöryggi voru einnig lögð fram og samþykkt í vetur leið. Þar er tekist á við gríðarlega mikilvægt mál í samtímanum og unnið að því að tryggja öryggi almennings og upplýsinga.
Það var stór stund þegar nýr Herjólfur sigldi inn í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum um miðjan júní. Þetta er glæsileg ferja sem á eftir að nýtast vel. Ekki er síst ánægjulegt að um er að ræða fyrstu rafvæddu ferjuna á Íslandi og er til merkis um alvöruna í stefnu ríkisstjórnarinnar í orkuskiptum í samgöngum.
Blómlegar byggðir
Byggðamál hafa fengið sinn verðskuldaða sess í störfum ráðuneytis og stjórnsýslu og vinna eftir byggðaáætlun sem samþykkt var fyrir ári hafin af krafti. Einn þáttur byggðaáætlunar er stuðningur við verslun í strjálbýli. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að opna verslun Verzlunarfjelags Árneshrepps fyrir skemmstu og óhætt að segja að sá stuðningur sem verslunin fær úr byggðaáætlun mælist vel fyrir og er fámennu samfélagi mikilvægur.
Á sumarfundi ríkisstjórnar á síðasta ári var nýtt þjónustukort kynnt formlega en það er stórt stökk í að opna almenningi leið að upplýsingum um þjónustu á Íslandi á myndrænan og gagnvirkan hátt. Verkinu, sem hefur verið í umsjón Byggðastofnunar, hefur miðað vel og á eftir að veita almenningi og stjórnvöldum kærkomna yfirsýn yfir þjónustu sem stendur landsmönnum til boða um allt land.
Í stjórnarsáttmála er sagt frá stefnu ríkisstjórnar er miðar að því að gera stjórnsýsluna og stofnanir hennar nútímalegri og vinsamlegri landinu í heild sinni og það er að ákveðinn hluti starfa skuli auglýstur án staðsetningar. Við í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu erum stolt af því að hafa riðið á vaðið og auglýst starf lögfræðings í ráðuneytinu án staðsetningar og ráðið í stöðuna einstakling sem hefur aðsetur á Sauðárkróki. Það er gríðarlega mikilvæg byrjun á því að við undirbúum okkur undir fjórðu iðnbyltinguna og ólíkar væntingar fólks til atvinnu að geta boðið upp á störf án staðsetningar. Það eru einnig verðmæti fólgin í því að stjórnsýslan njóti krafta fólks af öllu landinu til að tryggja að sjónarhornið sé ekki einskorðað við það sem einu sinni var póstnúmer 150 Reykjavík.
Framsókn fyrir íslenskan landbúnað
Það hefur auðvitað verið tekist á á Alþingi eins og heilbrigt verður að teljast. Eitt af þeim málum sem mjög hafa brunnið á okkur í Framsókn er hið svokallaða hráa kjöts-mál þar sem íslenska ríkið hafði verið dæmt til að afnema frystiskyldu á innfluttu kjöti. Og hvað gerðum við í Framsókn í þeirri stöðu? Við hófum sókn og börðumst fyrir því að Ísland yrði fyrsta landið í heiminum til að banna dreifingu á matvælum sem innihalda tilgreindar sýklalyfjaónæmar bakteríur. Þessi sókn okkar snýst um sérstöðu íslensks landbúnaðar sem skapar einstaka stöðu okkar hvað varðar lýðheilsu en sýklalyfjaónæmi er ásamt loftslagsbreytingum helsta ógn við líf og heilsu manna og dýra í heiminum.
Í þessu máli sýndum við svo ekki verður um villst að við erum framsækinn og framsýnn flokkur. Fyrir örfáum misserum, jafnvel mánuðum, hefði ekki verið jarðvegur fyrir slíkar ákvarðanir en með því að beita kröftum okkar til að gefa vísindamönnum hljómgrunn, til dæmis með fjölmennum fundi í vetur, hefur almenningur vaknað til vitundar um gæði íslensks landbúnaðar og einstaka stöðu Íslands í heiminum.
Sterkari girðingar um hagsmuni Íslands
Orkupakkinn hefur reynt mjög á ríkisstjórnarflokkana enda um orkuauðlindir landsins að ræða. Á miðstjórnarfundi Framsóknar síðasta haust var ályktað um meðferð málsins sem eftir það fékk aðra og ítarlegri umfjöllun. Settar voru sterkari girðingar til að vernda hagsmuni Íslands. Með þessari umræðu komust orkumálin fyrir alvöru á dagskrá.
Það sem hefur verið kallað eftir af þjóðinni er að íslenskir stjórnmálamenn standi vörð um íslenskar orkuauðlindir og það fyrirkomulag sem hefur ríkt hér sem felst einna helst í því að orkufyrirtækin eru að langstærstum hluta í samfélagslegri eigu.
Það hefur einnig verið mjög skýrt ákall um að erlendir aðilar geti ekki gert stórinnkaup á íslensku landi. Þar er sýn okkar skýr. Það er ekki í boði að stóreignamenn og braskarar geti vaðið um héruð og keypt upp jarðir og réttindi þeim tengd. Í því er unnið hörðum höndum að styrkja lagaumhverfi í kringum jarðir.
Slá þarf hreinni og sterkari tón í hagsmunagæslu
Eftir átök vetrarins hlýtur öllum að vera ljóst að við þurfum að leggja mun meiri áherslu á hagsmuni Íslands í allri vinnu varðandi EES-samninginn. Orkupakki þrjú kom á sjóndeildarhringinn fyrir meira en tíu árum og algjörlega óeðlilegt að málið hafi ekki komist inn í almenna umræðu fyrr en á síðasta ári. Það er líka alvarlegt hvernig haldið var á málum varðandi innflutning á kjöti á sínum tíma. Þeir sem koma að vinnu við EES-samninginn fyrir Íslands hönd verða að gera sér fulla grein fyrir því að hag smunir Íslands ganga öllum hagsmunum framar við samningaborðið. Það er síðan íslenskra stjórnmála að skilgreina betur ríka hagsmuni Íslands og slá hreinni og sterkari tón í hagsmunagæslunni.
Framfarir byggðar á samvinnu
Íslendingar hafa notið þess að ríkisstjórnir hafa verið samsteypustjórnir en ekki tveggja turna stjórnmál eins og við sjáum frá Bandaríkjunum og Bretlandi. Þær miklu framfarir sem þjóðin hefur upplifað á einni öld eru ekki afrakstur öfga heldur samvinnu. Það er mín trú að samvinna sé grundvöllur góðs samfélags. Traust er skapað með heiðarlegum vinnubrögðum en ekki með því að ala á ófriði og sundrungu. Sú ríkisstjórn sem nú er við völd er sérstök að því leyti að í henni eru þrír flokkar sem allir standa fyrir ákveðnar hugsjónir miðju, vinstri og hægri í íslenskum stjórnmálum. Stjórnin er mynduð til að standa að mikilvægum framfaraverkefnum í íslensku samfélagi og til að skapa meiri sátt í samfélaginu. Sú sátt einkennist ekki af doða og framtaksleysi heldur því að sköpuð er umræða um mikilvæg málefni og þau leidd til lykta. Um það snýst lýðræðið.
Bjóðum unga fólkið velkomið í stjórnmálin
Minn ferill í stjórnmálum hófst á sveitarstjórnarstiginu. Það er stundum eins og sá hluti stjórnmálanna sem sveitarstjórnarstigið er gleymist í umræðunni. Á því stigi eru mörg mikilvægustu svið stjórnmálanna stunduð í mikilli nálægð við íbúa. Eitt af þeim verkefnum sem ég hef veitt forystu sem ráðherra er að hefja vinnu við fyrstu stefnumótunina fyrir sveitarstjórnarstigið. Sú vinna er vel á veg komin og verður lögð fyrir þingið í haust. Þau átök sem við höfum horft upp á í stjórnmálum víða um heim snúa að því að almenningur upplifir sig valdalausan og að stjórnmálamennirnir séu fjarlægir. Það er því mikilvægt að stjórnmálamenn í sveitarstjórnum séu öflugir í því að virkja fólk til þátttöku og að íbúar láti til sín taka því ef það er eitthvað sem einkennir íslensk stjórnmál þá er það að hver og einn getur haft mikil áhrif í því að móta samfélagið. Þetta sjáum við augljóslega nú þegar unga fólkið okkar hefur upp raust sína og hvetur stjórnvöld áfram varðandi loftslagsmál. Það er ánægjulegt að sjá þetta sterka unga fólk stíga fram með áhyggjur sínar og einnig hugmyndir varðandi hvernig við tökumst á við hlýnun jarðar.
Loftslagsváin er staðreynd. Pólitíkin snýst ekki um að afneita eða taka undir. Pólitíkin snýst um hvernig við ætlum að vinna úr stöðunni. Ég vil því hvetja ungt fólk til að stíga óhrætt inn á vettvang stjórnmálanna og inn í starf flokkanna. Við ungt fólk sem þetta les vil ég segja að kraftur ykkar bætir samfélagið, verið óhrædd við að hafa samband, þið finnið Framsókn á Facebook, netfangið hjá okkur er framsokn@framsokn.is og símanúmerið 540-4300.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarmálaráðherra.
Greinin birtst fyrst í Morgunblaðinu 29. júní 2019.