Suðurnesjabær, sem varð til við sameiningu Sandgerðis og Garðs árið 2018, hýsir nú tæplega 4.000 íbúa. Þar er hins vegar ekki um neina heilsugæslu að ræða né hjúkrunarheimili og þurfa því íbúar að leita til annarra sveitarfélaga eftir heilbrigðisþjónustu. Ef mið er tekið af stærð er bæjarfélagið eina sveitarfélagið á Íslandi sem stendur í þeim sporum. Gríðarlega hefur fjölgað í sveitarfélaginu á undanförnum árum og er sveitarfélagið með stórt og mikið verkefni í fanginu sem snýr að vegalausum börnum þar sem flugstöð Leifs Eiríkssonar er staðsett í Suðurnesjabæ og fellur því þessi málaflokkur sjálfkrafa á barnavernd sveitarfélagsins með tilheyrandi kostnaði sem það hefur í för með sér.
Bæjaryfirvöld og íbúar í Suðurnesjabæ hafa lengi kallað eftir því að þjónustan verði endurvakin líkt og hún var hér á árum áður til að tryggja grunnþjónustu í vaxandi samfélagi sem er nú orðið næststærsta sveitarfélag Suðurnesja. Sveitarfélagið hefur nú þegar boðið fram hentugt húsnæði undir starfsemina sem bæði er vel staðsett, með nægum bílastæðum og fyrsta flokks aðgengi á jarðhæð.
Í ályktun Alþingis um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 kemur fram að heilsugæsluþjónusta sé veitt öllum. Heilsugæslunni er ætlað stórt hlutverk í heilbrigðisþjónustu við landsmenn samkvæmt lögum. Hún á að vera fyrsti viðkomustaður fólks í heilbrigðiskerfinu þar sem notendur eiga kost á almennum lækningum, hjúkrun, endurhæfingu, heilsuvernd og forvörnum. Jafnframt kemur fram að heilsugæsluþjónusta er veitt í öllum heilbrigðisumdæmum og skipulögð af heilbrigðisstofnun hvers heilbrigðisumdæmis. Starfsstöðvar heilsugæslu eru víða og aðgengi að jafnaði nokkuð gott á landsbyggðinni.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um heilsugæslur á landsbyggðinni sem kom út 2018 kemur fram að 18 heilsugæslusel séu staðsett á landinu og eru þau rekin af heilbrigðisstofnunum hvers heilbrigðisumdæmis. Sem stendur er HSS eina heilbrigðisstofnunin á landsbyggðinni sem ekki starfrækir heilsugæslusel. Nauðsynlegt er að tryggja getu HSS til þess að opna á ný þjónustur heilsugæslusela á Suðurnesjum samfara auknum áherslum á aðgengi og fyrirbyggjandi þjónustu í heilbrigðiskerfinu.
Bæjaryfirvöld í Suðurnesjabæ eru öll boðin og búin að hefja formlegar viðræður við heilbrigðisráðuneytið og forsvarsmenn HSS við fyrsta tækifæri svo að hægt sé að undirbúa húsnæðið sem Suðurnesjabær hefur upp á að bjóða undir slíka starfsemi.
Um er að ræða stórt réttlætismál fyrir íbúa Suðurnesjabæjar, að heilbrigðisþjónusta verði í boði í sveitarfélaginu líkt og í öllum öðrum sveitarfélögum á Íslandi af þessari stærð.
Það er einlæg von mín að heilbrigðisráðherra og þingmenn í Suðurkjördæmi muni beita sér fyrir því að hafnar verði formlegar viðræður við Suðurnesjabæ við fyrsta tækifæri svo að hægt sé að marka skýra stefnu og sýn sem mun stuðla að opnun heilbrigðisþjónustu í Suðurnesjabæ.
Anton Guðmundsson, oddviti Framsóknar og formaður bæjarráðs í Suðurnesjabæ.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 22. júní 2023.