Að morgni 24. febrúar síðastliðins vaknaði heimsbyggðin upp við fréttir sem settu hugmyndir okkar um öruggt líf í Evrópu til hliðar. Hugmyndir og vonir um að mannréttindi og lýðræði séu virt í milliríkjasamskiptum. Við urðum vör við það að einræðisherra sem dulbýr sig sem lýðræðislegan leiðtoga stærstu þjóðar Evrópu virðist vera alveg sama um réttindi og sjálfstæði ríkja og hvað þá grundvallarmannréttindi fólks, hvort sem það séu hans eigin þegna eða annarra ríkja.
Sáttmáli hinna Sameinuðu þjóða
Þann 26. júní árið 1945, í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar var stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna undirritaður.
Þar segir: „Vér, hinar sameinuðu þjóðir, staðráðnar í að bjarga komandi kynslóðum undan hörmungum ófriðar, sem tvisvar á ævi vorri hefur leitt ósegjanlegar þjáningar yfir mannkynið, að staðfesta að nýju trú á grundvallarréttindi manna, virðingu þeirra og gildi, jafnrétti karla og kvenna og allra þjóða, hvort sem stórar eru eða smáar, að skapa skilyrði fyrir því, að hægt sé að halda uppi réttlæti og virðingu fyrir skyldum þeim, er af samningnum leiðir og öðrum heimildum þjóðarréttar, að stuðla að félagslegum framförum og bættum lífskjörum án frelsisskerðingar og ætlum í þessu skyni að sýna umburðarlyndi og lifa saman í friði, svo sem góðum nágrönnum sæmir, að sameina mátt vorn til að varðveita heimsfrið og öryggi.“
Nóg komið!
Yfirstandandi hernaðaraðgerðir rússnesku ríkisstjórnarinnar gagnvart úkraínsku þjóðinni stríðir gegn öllu því sem Sameinuðu þjóðirnar standa fyrir og stofnsáttmálans. Ofbeldið verður að stöðva og mannréttindalöggjöf og alþjóðleg mannréttindi verða að vera virt, lýðræði og samtal sé í forgrunni. António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að rússnesk yfirvöld verði að draga herlið sitt út úr Úkraínu án tafar og leiðtogar þjóðanna beiti sér fyrir því að friður verði í Evrópu á ný. Það er ekki í boði að gera ekkert og með því myndum við grafa undan því sem Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar utan um í upphafi.
Mikilvægi samstöðunnar
Samstaða vestrænna þjóða á fyrstu dögum þessara átaka og afdráttarlaus stuðningur við úkraínsku þjóðina. Íslensk stjórnvöld hafa sýnt það afdráttarlaust vilja sinn til að aðstoða úkraínsku þjóðina og hafa gripið til aðgerða með skýrum hætti. Það skiptir máli í samfélagi þjóða að við stöndum saman gegn hvers konar ógn gagnvart einstaka þjóðum og að við leggjum okkur fram við það að tryggja öryggi og frið í alþjóðasamfélaginu.
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi stendur með úkraínsku þjóðinni og fordæmir harðlega árás rússneskra yfirvalda. Við eigum öll þann skilyrðislausa grundvallarrétt að lifa öruggu lífi, án áreitis og að mannréttindi okkar séu virt til hlítar!
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknar og formaður Félags UN á Íslandi.
Greinin birtist fyrst á mbl.is 5. mars 2022.