Kristinn Rúnar Tryggvason, varaþingmaður, fór í störfum þingsins yfir stöðu íslensks landbúnaðar.
„Svo virðist vera að staða bænda í allri Evrópu hafi verið virt að vettugi í of langan tíma og að þessari sögulegu og bráðnauðsynlegu starfsstétt hafi lengi verið tekið sem sjálfsögðum hlut. Staðreyndin er sú að án bóndans er enginn matur.
Sagði hann landbúnaðinn og fæðuöryggi þjóðar varða alla landsmenn. Þar undir eru neytendamál, lýðheilsumál og byggðamál.
„Það er nauðsynlegt að við horfum til hagsmuna okkar Íslendinga í þessum málum og styrkjum veikar stoðir innlendrar landbúnaðarframleiðslu. Þrotlaus vinna bænda er ekki sjálfgefin. Innlend framleiðsla hefur hvorki stærðina né burði til að viðhalda samkeppni við erlenda verksmiðjuframleiðslu sem fylgir ekki sömu reglum og stöðlum og lögð er á starfsemina hér á landi, t.d. hvað varðar sýklalyfjaónæmi,“ sagði Kristinn Rúnar.
Matvælaainnflutningur hefur stóraukist og haft lamandi áhrif á innlenda framleiðslu.
„Tollvernd Íslands í þessu samhengi þarfnast úrbóta sem allra fyrst. Þar eigum við langt í land. Aukin tollvernd og endurskoðun verðlagsgrunnsins myndi jafna aðstöðu milli innlendrar og erlendrar matvælaframleiðslu sem þjónar bæði hagsmunum bænda og neytenda. Að auki er nauðsynlegt að eftirlit með innfluttum vörum verði eflt til muna.“
„Það gengur ekki að vara komi hingað flokkuð inn sem hakkefni þegar um mun dýrari vöru er að ræða. Tollasamningur okkar við ESB þarfnast endurskoðunar en markmið hans á að vera að skapa íslenskum landbúnaði eðlileg og sambærileg samkeppnisskilyrði gagnvart erlendum stórverksmiðjum sem hann etur kappi við. Það er nánast ómögulegt að keppa við slíkar verksmiðjur þar sem allt önnur lögmál gilda.“
„Ég lýk máli mínu með því að endurtaka að ef það er enginn bóndi þá er enginn matur,“ sagði Kristinn Rúnar að lokum.
Ræða Kristins Rúnars í heild sinni á Alþingi:
„Íslenskt staðfest“
20/03/2024
„Íslenskt staðfest“„Í gær fann ég mikinn áhuga þingheims á að ræða meira um íslenskan landbúnað þegar búvörulög voru hér til umræðu. Því vil ég nýta tækifærið og ræða um upprunamerki fyrir íslenskar landbúnaðarafurðir, „Íslenskt staðfest“,“ sagði Halldóra K. Hauksdóttir, varaþingmaður, í störfum þingsins.
„Á nýafstöðnu búnaðarþingi kom fram að ýmsir furðuðu sig á því hvers vegna afurðastöðvar og bændur væru ekki búnir að taka þessar merkingar upp almennt. Staðreyndin er sú að því fylgir talsverður kostnaður, enn annar kostnaðarliðurinn sem lagður er beint á bændur sjálfa. Það eru margir bændur sem kjósa að selja vöru sína beint og fara þannig ekki í gegnum afurðastöð eða sölusamtök.“
„Til þess að merkið verði almennt og til þess að jafna stöðu á milli bænda, óháð því hvernig varan er markaðssett, finnst mér eðlilegt að stjórnvöld kæmu að kostnaði við rekstur þessa upprunamerkis því að það er ekki síður hugsað fyrir neytendur en bændur. Það er eðlileg krafa neytenda í dag að þekkja uppruna vörunnar og hvernig staðið er að framleiðslu hennar,“ sagði Halldóra.
Áætlað er að kostnaður við eftirlit og rekstur merkisins verði um 70–100 milljónir á ári. „[Þ]að er meira en bændur eru tilbúnir að taka einir á sig.“
„Ég hef þó trú á því að með aðkomu stjórnvalda tækju bændur almennt þátt í verkefninu sem uppfylla skilyrðin um að matvaran eigi íslenskan uppruna. Í sögulegu samhengi hafa fáar ef einhverjar starfsgreinar leikið jafn mikilvægt hlutverk í samfélaginu. Þrotlausri vinnu íslenskra bænda hefur verið tekið sem sjálfsögðum hlut í of langan tíma. Það er löngu orðið tímabært að bændur hljóti þá virðingu og þann stuðning sem þeir eiga skilið. Stuðningur af þessu tagi væri mikilvægt skref í þá átt, því að stjórnvöld og samfélagið allt verður að horfast í augu við það að án bónda verður enginn matur,“sagði Halldóra að lokum.
Ræða Halldóru í heild sinni á Alþingi:
Hringferð formanns Framsóknar
20/03/2024
Hringferð formanns FramsóknarFyrstu fundirnir á hringferð formanns Framsóknar, Sigurðar Inga Jóhannssonar, voru haldnir á Akranesi og í Borgarnesi í gær, þriðjudag. Á fundunum voru umræður um samgöngur, þjóðlendur, landbúnað, íslenska tungu, fjarskipti, íslensku krónuna, sjávarútveg, orkumál og langtíma kjarasamningar.
„Átti frábært og gefandi samtal við Skagamenn um Sundabraut, Kjalarnes, íslenska tungu, fjármögnun vegakerfisins, leigubíla, fjarskipti, íslensku krónuna, sjávarútveg, orkumál og þau miklu tíðindi sem langtímakjarasamningar eru,“ sagði Sigurður Ingi að loknum fundinum á Akranesi.
Fyrsta fundi á hringferð minni var að ljúka á Akranesi. Átti frábært og gefandi samtal við Skagamenn um Sundabraut,…
Posted by Sigurður Ingi Jóhannsson on Þriðjudagur, 19. mars 2024
Næstu fundir formanns:
Þriðjudagur 2. apríl:
Hornafirði ‒ kl. 20:00
Miðvikudagur 3. apríl:
Djúpavogi ‒ kl. 12:00
Egilsstöðum ‒ kl. 17:00
Norðfirði ‒ kl. 20:00
Fimmtudagur 4. apríl:
Vopnafirði ‒ kl. 12:00
Húsavík ‒ kl. 17:00
Akureyri ‒ kl. 20:00
Mánudagur 8. apríl:
Ísafirði ‒ kl. 20:00
Þriðjudagur 9. apríl:
Blönduósi ‒ kl. 12:00
Sauðárkróki ‒ kl. 20:00
Fimmtudagur 11. apríl:
Vík ‒ kl. 12.00
Hella ‒ kl. 17.00
Hvolsvelli ‒ kl. 20.00
„Öðrum fundi á hringferð minni var að ljúka í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þangað voru mættir Borgfirðingar og nærsveitamenn og áttu góð og oft hressileg samtöl um til dæmis samgöngur, þjóðlendur, fiskeldi, kjarasamninga, landbúnað, tengingu Vestur- og Suðurlands, Sundabraut, kolefnisspor á villigötum, framboðshvetjandi aðgerðir á húsnæðismarkaði og reiðvegi,“ sagði Sigurður Ingi að loknum fundinum í Borgarnesi.
Öðrum fundi á hringferð minni var að ljúka í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þangað voru mættir Borgfirðingar og…
Posted by Sigurður Ingi Jóhannsson on Þriðjudagur, 19. mars 2024
Blessuð sértu, sveitin mín
20/03/2024
Blessuð sértu, sveitin mínSérstaða íslenskra matvara er einstök á heimsvísu þar sem lyfja- og eiturefnanotkun í landbúnaði á Íslandi er með því minnsta sem þekkist í heiminum, auk þess sem notkun vaxtarhormóna er bönnuð. Það er risastórt heilbrigðismál að komið sé í veg fyrir útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi með ströngum ráðstöfunum, en við sjáum að sýklalyfjaónæmi er ört vaxandi ógn í heiminum.
Í fyrra fékk íslenskt lambakjöt upprunavottun frá Evrópusambandinu. Um er að ræða vottun með tilvísun til uppruna eða „Protected Designation Of Origin“ (PDO), og fær íslenskt lambakjöt nú að bera merki vottunarinnar í markaðssetningu. Það á að stuðla að neytendavernd, auka virði afurða og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti.
Aukinn innflutningur vinnur gegn bændum
Innflutningur á kjöti hefur færst í vöxt á undanförnum árum og er það bæði selt í matvöruverslunum hérlendis og einnig á veitingamarkaði, meðal annars mötuneytum og veitingahúsum. Færst hefur og í vöxt að minni kjötvinnslur kaupi slíkar afurðir og endurselji á veitingamarkaði, þíði kjötið sem kemur frosið til landsins, leggi í kryddlög og selji svo til stóreldhúsa og matvöruverslana. Slíkt athæfi, ásamt öðrum innflutningi á kjötvörum, vinnur gegn rekstrarumhverfi íslenskra bænda og getur um leið verið afar villandi fyrir neytendur þar sem pakkningar sem erlenda kjötið eru í eru oft á tíðum með íslenskum fánaröndum eða allavega íslenskt nafn á kjötvinnslunni.
Stórauka þarf stuðning við bændur og draga þarf markvisst fram sérstöðu íslenskra matvæla með áherslu á rekjanleika, heilnæmi og gæði. Mikið hefur verið rætt og ritað um landbúnaðinn á undanförnum árum og hafa íslenskir bændur verið að keppa í ójöfnum leik í samkeppni við innflutning þar sem vinnuafl er mun ódýrara víðast hvar annars staðar í heiminum. Íslenskum bændum fækkar með hverju árinu sem líður; íslensku sveitirnar eru að deyja út, meðalaldur bænda hækkar og enginn tekur við. Fæðuöryggið og sjálfbærni þjóðar undir
Fæðuöryggið og sjálfbærni þjóðar undir
Ég held að við séum komin á þann stað að grípa þurfi til róttækra aðgerða til að stuðla að tilvist matvælaframleiðslu á íslandi. Tel ég að við þurfum að innleiða löggjöf sem gerir að verkum að óheimilt verði að flytja inn til landsins kjötafurðir frá öðrum löndum. Einnig að auka verndartolla á öðrum landbúnaðarvörum sem framleiddar eru hérlendis, meðal annars grænmeti og mjólkurafurðum, með það að markmiði að stórefla innlenda matvælaframleiðslu. Eina rétta í stöðunni væri að leggja áherslu á að auka tollvernd á íslenskum landbúnaðarafurðum til að tryggja tækifæri til atvinnuþróunar á landsbyggðinni. Við sem þjóð þurfum á því að halda og landsbyggðin þarf á því að halda.
Með því að auka matvælaframleiðslu hérlendis getum við styrkt fæðuöryggi þjóðarinnar. Við þurfum aðgerðir strax og setja í gang markvissa vinnu til þess að minnka innflutning á matvælum hingað til lands, með sjálfbærni og minni útblástur gróðurhúsalofttegunda að leiðarljósi.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga
Engið, fjöllin, áin þín,
yndislega sveitin mín,
heilla mig og heim til sín
huga minn úr fjarlægð draga
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
(Sigurður Jónsson frá Arnarvatni)
Anton Guðmundsson, formaður bæjarráðs og oddviti Framsóknar í Suðurnesjabæ.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 20. mars 2024.
19/03/2024
Fjölgun opinberra starfa á höfuðborgarsvæðinu er stærsta byggðaaðgerðin sem ráðist hefur verið íKristinn Rúnar Tryggvason, varaþingmaður, flutti jómfrúarræðu sína á Alþingi í dag, undir liðnum störf þingsins. Ræddi hann byggðamál og byggðaðgerðir og nátengt atriði, landbúnaðarmál, í ræðu sinni. Rakti hann að aukinn fólksfjöldi kalli á stærri íbúasvæði, en benti réttilega á að þróunin á Íslandi sé ýktari en gerist og gengur í nágrannarlöndum.
„Hér eru nærri 80% landsmanna á stórhöfuðborgarsvæðinu á meðan sambærilegar tölur fyrir nágrannalöndin eru 25–40%. Það er margt sem skýrir þessa þróun. Í áratugi hefur nánast öll stjórnsýsla verið byggð upp hér á þessu svæði með öllum þeim margfeldisáhrifum sem því fylgir. Atvinnutækifæri og þjónusta eru því fjölbreyttari og laða að. Þá eru opinber störf langflest á þessu svæði. Þetta eru stærstu byggðaaðgerðir sem ráðist hefur verið í,“ sagði Kristinn Rúnar.
Sagðist hann ekki þurfa að tíunda hér á Alþingi hversu mikilvægt það væri að halda landinu sem mest í byggð. Það væri til lítils að fara um landið ef innviðirnir væru engir, en þeir væru þó víða í algeru lágmarki.
Landbúnaður og byggðamál eru nátengd
„Nýleg skýrsla sýnir að streita, þunglyndi og depurð er meiri en gengur og gerist hjá samanburðarhópum meðal íslenskra bænda. Fyrir utan vinnuálag og fjárhagsáhyggjur upplifa bændur sig í sífelldri vörn, ekki bara hvað varðar innflutning og tollamál, heldur er einnig neikvæð umræða og árásir af hálfu hins opinbera þar sem land er tekið af bændum á mjög hæpnum forsendum, ýmist í nafni þjóðlendumála eða landgræðslunnar,“ sagði Kristinn Rúnar og hélt svo áfram, „[s]íðan er ráðist á heilu búgreinarnar, m.a. héðan úr þessum sal, með ótrúlegum stóryrðum og af vanþekkingu.“
„Ég skora á alla sem hér vinna að snúa nú bökum saman og styðja við byggð og landbúnað í landinu. Þar sem ég sé fram á talsvert frí frá þingstörfum treysti ég á að þið berjist fyrir þessum málum, landi og þjóð til heilla“ sagði Kristinn Rúnar að lokum.
Ræða Kristins Rúnars í heild sinni á Alþingi:
„Virðulegi forseti. Það er eðlilegt að byggð þróist og borgarsvæðið stækki með auknum fólksfjölda. En þróunin á Íslandi er ýktari en gerist og gengur í kringum okkur. Hér eru nærri 80% landsmanna á stórhöfuðborgarsvæðinu á meðan sambærilegar tölur fyrir nágrannalöndin eru 25–40%. Það er margt sem skýrir þessa þróun. Í áratugi hefur nánast öll stjórnsýsla verið byggð upp hér á þessu svæði með öllum þeim margfeldisáhrifum sem því fylgir. Atvinnutækifæri og þjónusta eru því fjölbreyttari og laða að. Þá eru opinber störf langflest á þessu svæði. Þetta eru stærstu byggðaaðgerðir sem ráðist hefur verið í.
Það er hins vegar mikið í húfi að halda landinu sem mest í byggð. Ég þarf ekki að tíunda það hér hvers vegna. Ég nefni þó ferðaþjónustuna. Það væri ekki vænlegt að fara um landið ef engir innviðir væru þar fyrir hendi og eru þeir nú víða í algeru lágmarki. Landbúnaður og byggðamál eru nátengd. Nýleg skýrsla sýnir að streita, þunglyndi og depurð er meiri en gengur og gerist hjá samanburðarhópum meðal íslenskra bænda. Fyrir utan vinnuálag og fjárhagsáhyggjur upplifa bændur sig í sífelldri vörn, ekki bara hvað varðar innflutning og tollamál, heldur er einnig neikvæð umræða og árásir af hálfu hins opinbera þar sem land er tekið af bændum á mjög hæpnum forsendum, ýmist í nafni þjóðlendumála eða landgræðslunnar. Síðan er ráðist á heilu búgreinarnar, m.a. héðan úr þessum sal, með ótrúlegum stóryrðum og af vanþekkingu.
Ég skora á alla sem hér vinna að snúa nú bökum saman og styðja við byggð og landbúnað í landinu. Þar sem ég sé fram á talsvert frí frá þingstörfum treysti ég á að þið berjist fyrir þessum málum, landi og þjóð til heilla.“
14/03/2024
Tónlistarauðlegð ÍslandsÍsland státar af öflugu tónlistarlífi sem eftir er tekið á erlendri grundu. Slík þróun gerist ekki á einni nóttu heldur liggur þar að baki afrakstur mikillar vinnu í gegnum áratugina. Það er til að mynda áhugavert að kynna sér sögu Tónlistarfélags Reykjavíkur sem stofnað var árið 1932. Félagið ruddi mikilvægar brautir í menningarlífinu en tilgangur þess var að bæta aðstöðu íslenskra tónlistarmanna bæði til náms og starfs en alls almennings til tónnautnar. Félagið á sér í raun lengri sögu, en undanfarar þess eru Hljómsveit Reykjavíkur, stofnuð 1925, og Tónlistarskólinn í Reykjavík, stofnaður 1930. Saga félagsins veitir innsýn í þann mikla metnað sem ríkti í tónlistarlífinu vel fyrir sjálfstæði þjóðarinnar, en Tónlistarfélagið kom til dæmis að því að fá eina virtustu tónlistarmenn samtímans til landsins að spila á tónleikum. Með tíð og tíma efldist tónlistarstarf víða um land með stofnun fleiri tónlistarfélaga og tónlistarskóla, má þar nefna Tónlistarskóla Akureyrar sem stofnaður var árið 1946 og Tónlistarskóla Ísafjarðar sem var settur á laggirnar árið 1948. Þannig hefur í áratugi ríkt metnaður fyrir tónlistarnámi, með frábærum kennurum í broddi fylkingar og góðu aðgengi að slíku námi sem skipt hefur sköpum fyrir menningarlíf þjóðarinnar.
Á Íslensku tónlistarverðlaununum í vikunni endurspeglaðist meðal annars sá mikli kraftur sem býr í tónlistarlífinu hér á landi. Við höfum einnig fylgst með glæsilegum árangri íslenskra tónlistarmanna á alþjóðlegum vettvangi undanfarið. Má þar nefna eftirtektarverðan árangur Íslendinga á Grammy-verðlaunahátíðinni í febrúar síðastliðnum, þar sem söngkonan Laufey Lín Jónsdóttir hlaut verðlaunin eftirsóttu fyrir plötu sína Bewitched, og tilnefningu tónlistarmannsins Ólafs Arnalds til verðlauna í sínum flokki. Á fjórum árum hafa Íslendingar unnið fern Grammy-verðlaun af tíu tilnefningum. Það verður að teljast afbragðsgott fyrir þjóð sem telur tæplega 400.000. Í samhenginu við mannfjöldann má einmitt geta þess að í vikunni bárust fregnir af því lagið Little Talks eftir íslensku hljómsveitina Of Monsters and Men náði að rjúfa eins milljarðs múrinn í hlustunum á streymisveitunni Spotify.
Á undanförnum árum hafa stjórnvöld stigið stór skref til þess að efla umgjörð tónlistarlífsins í landinu enn frekar með nýrri löggjöf og stefnu um tónlist, nýrri Tónlistarmiðstöð sem og Tónlistarsjóði. Ég er sannfærð um að breytingarnar muni treysta enn frekar þann góða grunn sem er til staðar og verði til þess að okkar hæfileikaríku tónlistarmenn fái enn meiri byr í seglin með nýjum tækifærum til framtíðar.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknar.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 14. mars 2024.
13/03/2024
Höfum alla burði til að framleiða eigið rafeldsneyti úr innlendri endurnýjanlegri orkuLíneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, var málshefjandi í sérstakri umræðu um rafeldsneytisframleiðslu á Alþingi í vikunni. Sagði hún að spara mætti gjaldeyri og auka orkusjálfstæði Íslendinga enn frekar og skapa ákveðið forskot. Það verði þó ekki gert nema með skýrum „áherslum stjórnvalda varðandi rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi, svo sem varðandi þýðingu eða vægi hennar í orkuskiptum, hver áætluð innanlandsþörf er, stefnu um framleiðslu umfram innanlandsþörf og öflun eða framboð orku til framleiðslunnar og mögulega samstarfsaðila og eignarhald.“ Rafeldsneyti getur t.d. verið vetni, ammoníak, metanól eða metan.
„Við verðum að horfa til framtíðar og til allra þátta orkuskiptanna. Rafmagn notast ekki beint til orkuskipta á stærri farartækjum, stórum flutningabílum, vinnuvélum, stærri skipum eða í millilandaflugi.
Í stað rafmagns á rafgeymum þarf eldsneyti til að knýja þessi farartæki. Þess vegna þarf að tryggja aðgengi að eldsneyti ef full orkuskipti eiga að nást í samgöngumál á Íslandi og til og frá landinu,“ sagði Líneik Anna.
„Íslendingar ættu að hafa alla burði til að framleiða eigið rafeldsneyti úr innlendri endurnýjanlegri orku, spara þannig gjaldeyri og auka orkusjálfstæði enn frekar. Raunar má segja að Íslendingar gætu haft ákveðið forskot inn á þennan markað, en ekkert gerist af sjálfu sér.“
Fjöldi álitaefna þarf að ræða
„Framleiðsla af þessu tagi yrði stórframleiðsla raforku á alþjóðasamkeppnismarkaði og framleiðslan félli því í flokk stórnotenda eins og stóriðja. Þá er ljóst að viðskipta- og tækniumhverfið er býsna flókið. Framleiðsla er eitt og notkun innan lands annað og það er ekkert sem segir að framleiðsla og innleiðing notkunar innan lands haldist í hendur í upphafi, hvorki hvað varðar magn né tegund eldsneytis,“ sagði Líneik Anna og hélt áfram, „[þ]ví velti ég fyrir mér hvort fram hafi farið greining á ávinningi af því að framleiða rafeldsneyti á Íslandi og hvaða áskoranir og tækifæri kunni að fylgja slíkri framleiðslu í ljósi sjálfbærni og skuldbindinga Íslands í loftslagsmálum.
- Hafa stjórnvöld látið greina innanlandsþörfina og hvort innanlandsþörf ein geti staðið undir hagkvæmri framleiðslu?
- Ef grundvöllur framleiðslunnar kallar á framleiðslu til útflutnings samhliða, hversu mikla endurnýjanlega orku úr íslenskri náttúru erum við sem samfélag tilbúin að nota til framleiðslu eldsneytis til útflutnings?“
Ræða Líneikar Önnu í heild sinni á Alþingi:
„Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir að koma hér til að ræða um rafeldsneytisframleiðslu. Sumum kann að þykja sérstakt að setja þessa umræðu í forgang í ljósi stöðu á raforkumarkaði þessi misserin. En það verður að segjast eins og er að fátt bar hærra í kjördæmaviku okkar þingmanna í Norðausturkjördæmi en raforkuskortur sem sett hefur fyrirtæki í þá stöðu að auka olíunotkun eða draga úr framleiðslu þannig að við verðum af gjaldeyristekjum alla daga. Þrátt fyrir þessa stöðu, sem auðvitað er afleit, vil ég leggja á það áherslu að samhliða því að greiða úr viðfangsefnum dagsins í dag verðum við að horfa til framtíðar og til allra þátta orkuskiptanna. Rafmagn notast ekki beint til orkuskipta á stærri farartækjum, stórum flutningabílum, vinnuvélum, stærri skipum eða í millilandaflugi. Í stað rafmagns á rafgeymum þarf eldsneyti til að knýja þessi farartæki. Þess vegna þarf að tryggja aðgengi að eldsneyti ef full orkuskipti eiga að nást í samgöngumál á Íslandi og til og frá landinu.
Ýmsar áskoranir fylgja því að binda orkuna í rafeldsneyti. Þar er t.d. mikilvægt að sem minnst orka tapist í vinnsluferlinu, eldsneyti taki ekki of mikið pláss, sé auðvelt í flutningi og framleiðslan valdi ekki mengun eða óafturkræfum umhverfisáhrifum. Rafeldsneyti getur t.d. verið vetni, ammoníak, metanól eða metan. Íslendingar ættu að hafa alla burði til að framleiða eigið rafeldsneyti úr innlendri endurnýjanlegri orku, spara þannig gjaldeyri og auka orkusjálfstæði enn frekar. Raunar má segja að Íslendingar gætu haft ákveðið forskot inn á þennan markað, en ekkert gerist af sjálfu sér. Þess vegna er mikilvægt að ræða þennan þátt orkuskiptanna hér í þingsal og í umræðunni kalla ég eftir áherslum stjórnvalda varðandi rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi, svo sem varðandi þýðingu eða vægi hennar í orkuskiptum, hver áætluð innanlandsþörf er, stefnu um framleiðslu umfram innanlandsþörf og öflun eða framboð orku til framleiðslunnar og mögulega samstarfsaðila og eignarhald.
Ég geri mér ljóst að fjöldi álitaefna kunni að vera uppi en það eru einmitt þau sem við þurfum að ræða. Framleiðsla af þessu tagi yrði stórframleiðsla raforku á alþjóðasamkeppnismarkaði og framleiðslan félli því í flokk stórnotenda eins og stóriðja. Þá er ljóst að viðskipta- og tækniumhverfið er býsna flókið. Framleiðsla er eitt og notkun innan lands annað og það er ekkert sem segir að framleiðsla og innleiðing notkunar innan lands haldist í hendur í upphafi, hvorki hvað varðar magn né tegund eldsneytis. Því velti ég fyrir mér hvort fram hafi farið greining á ávinningi af því að framleiða rafeldsneyti á Íslandi og hvaða áskoranir og tækifæri kunni að fylgja slíkri framleiðslu í ljósi sjálfbærni og skuldbindinga Íslands í loftslagsmálum. Hafa stjórnvöld látið greina innanlandsþörfina og hvort innanlandsþörf ein geti staðið undir hagkvæmri framleiðslu? Ef grundvöllur framleiðslunnar kallar á framleiðslu til útflutnings samhliða, hversu mikla endurnýjanlega orku úr íslenskri náttúru erum við sem samfélag tilbúin að nota til framleiðslu eldsneytis til útflutnings?
Það liggur fyrir að erlendir fjárfestar sem hafa sérþekkingu á framleiðslu rafeldsneytis telja framleiðslu fýsilega hér á landi og hafa töluverðan áhuga á að fjárfesta, bæði í orkuöflun og innviðum til framleiðslu. Þessir sömu aðilar búa líka yfir mikilvægri þekkingu á framleiðslunni og a.m.k. sumir hafa yfirsýn um framtíðarþörf og uppbyggingu markaða á heimsvísu. Í því ljósi álít ég mikilvægt að við ræðum kosti og galla erlendra fjárfestinga á þessu sviði og hvort og þá hvernig stjórnvöld hvetji til fjárfestinga í rafeldsneytisframleiðslu. Ef rafeldsneytisframleiðsla á að verða að veruleika þarf meiri orku og hefur verið horft til nýtingar vindorkunnar í því sambandi. Nýting vindorku kallar á jöfnunarraforku frá vatnsafli. Það er því ljóst að lög og reglur varðandi virkjun vindsins og sátt um afgjald vegna orkuframleiðslu til nærsamfélaga mun hafa áhrif á áform um framleiðslu rafeldsneytis.
Að lokum vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Er eitthvað í núverandi lagaumgjörð sem stendur í vegi fyrir rafeldsneytisframleiðslu hér á landi og hvaða ákvarðanir þurfa stjórnvöld og löggjafinn að taka til þess að slík framleiðsla gæti hafist?“
13/03/2024
„Mér fannst umræðan ná nýrri lægð síðustu vikurnar“Brynja Dan Gunnarsdóttir, varaþingmaður, fór í störfum þingsins yfir mikilvægi aðgerðaráætlunar gegn hatursorðræðu og að sveitarfélög búi yfir skýru verklagi og viðbragði við rasisma.
„Á síðasta þingi var lögð fram aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu sem náði því miður ekki fram að ganga en það þýðir ekki að ráðuneytin og sveitarfélögin geti ekki farið í fræðslu fyrir sína starfsmenn um þessi mál. Þess vegna hef ég lagt fram fyrirspurnir til innviðaráðherra um fræðslu hjá sveitarfélögum og til allra ráðherra um fræðslu innan þeirra ráðuneyta,“ sagði Brynja Dan.
„Ég vil einhvern veginn aldrei vera viðkvæm eða setja sjálfa mig inn í þessa jöfnu en það er víst þannig að minn veruleiki er að vissu leyti annar en ykkar flestra og ég á til að mynda önnur samtöl við barnið mitt en þið flest sem hér inni sitja,“ sagði Brynja Dan og hélt áfram, „[é]g bý við forréttindastöðu þegar kemur að mörgu en ég finn sterkt í ýmsum aðstæðum að ég er oft ein eða ein af mjög fáum með annan húðlit. Ísland hefur verið einstaklega einsleitt samfélag en það er sem betur fer að breytast. Það væri svo frábært ef öll sveitarfélög væru með verklag, forvarnir og aðgerðaáætlun þegar upp kemur rasismi í skólum, leikskólum, innan íþróttahreyfingarinnar eða annars staðar í samfélaginu. Það myndi veita öryggi, traust og utanumhald fyrir jaðarsetta hópa.“
„Ég hvet því allar sveitarstjórnir til að taka þessu alvarlega, að setja af stað einhvers konar aðgerðaáætlun sem unnin er með fagfólki, taka af skarið og vera leiðandi. En staðreyndin er sú að þeir sem eru af erlendu bergi brotnir búa við annan veruleika og það þarf að hafa skýrt verklag og viðbragð við rasisma.
Að því sögðu vil ég nota tækifærið og hrósa Menntaskólanum að Laugarvatni fyrir afdráttarlausa afstöðu og vönduð vinnubrögð í síðustu viku þegar mál af þessum toga kom upp,“ sagði Brynja Dan að lokum.
***
Ræða Brynju Dan í heild sinni á Alþingi:
„Virðulegi forseti. Á síðasta þingi var lögð fram aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu sem náði því miður ekki fram að ganga en það þýðir ekki að ráðuneytin og sveitarfélögin geti ekki farið í fræðslu fyrir sína starfsmenn um þessi mál. Þess vegna hef ég lagt fram fyrirspurnir til innviðaráðherra um fræðslu hjá sveitarfélögum og til allra ráðherra um fræðslu innan þeirra ráðuneyta. En af hverju er ég að tala um þetta núna? Jú, því að mér fannst umræðan ná nýrri lægð síðustu vikurnar. Ég vil einhvern veginn aldrei vera viðkvæm eða setja sjálfa mig inn í þessa jöfnu en það er víst þannig að minn veruleiki er að vissu leyti annar en ykkar flestra og ég á til að mynda önnur samtöl við barnið mitt en þið flest sem hér inni sitja. Ég bý við forréttindastöðu þegar kemur að mörgu en ég finn sterkt í ýmsum aðstæðum að ég er oft ein eða ein af mjög fáum með annan húðlit. Ísland hefur verið einstaklega einsleitt samfélag en það er sem betur fer að breytast. Það væri svo frábært ef öll sveitarfélög væru með verklag, forvarnir og aðgerðaáætlun þegar upp kemur rasismi í skólum, leikskólum, innan íþróttahreyfingarinnar eða annars staðar í samfélaginu. Það myndi veita öryggi, traust og utanumhald fyrir jaðarsetta hópa. Ég hvet því allar sveitarstjórnir til að taka þessu alvarlega, að setja af stað einhvers konar aðgerðaáætlun sem unnin er með fagfólki, taka af skarið og vera leiðandi. En staðreyndin er sú að þeir sem eru af erlendu bergi brotnir búa við annan veruleika og það þarf að hafa skýrt verklag og viðbragð við rasisma.
Að því sögðu vil ég nota tækifærið og hrósa Menntaskólanum að Laugarvatni fyrir afdráttarlausa afstöðu og vönduð vinnubrögð í síðustu viku þegar mál af þessum toga kom upp.“
13/03/2024
Samstaða um aukna velsældSkrifað hefur verið undir langtíma kjarasamning milli Samtaka atvinnulífsins og SGS, Eflingar og Samiðnar – breiðfylkingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði. Það er rétt að hrósa samningsaðilum fyrir þeirra góðu vinnu og þann metnað sem lagður var í það verkefni að ná saman. Samningarnir skipta okkur sem samfélag gríðarlega miklu máli, sér í lagi í baráttunni við að ná niður verðbólgu. Hér hefur fólk ákveðið að standa bak í bak með það að markmiði að bæta lífskjör hér á landi, lækka vexti, minnka verðbólgu og auka kaupmátt.
Á samningstímanum verða lagðir allt að 80 milljarðar í aðgerðir sem eiga að m.a. að stuðla að heilbrigðari húsnæðismarkaði og fjölskylduvænna samfélagi samhliða. Með þessum aðgerðum munu ráðstöfunartekjur fjölskyldna aukast verulega á samningstímanum, eða um allt að 500 þúsund krónur á ári.
Mikill ávinningur
Ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga lögðu lóð á vogarskálarnar við gerð þessara samninga með aðgerðum til næstu fjögurra ára. Hér vilja allir leggjast á eitt við að auka velsæld. Almennt má segja að kjarasamningarnir samrýmist þeim spám sem hafa komið út nýlega og gera ráð fyrir áframhaldandi markverðri lækkun verðbólgu í ár sem tryggja á lækkun vaxta.
Mikill ávinningur er af lækkun á vaxtastigi hvort sem er fyrir heimilin í landinu, fyrirtæki, ríki og sveitarfélög. Fyrir heimili sem skuldar 40 m.kr. húsnæðislán er 1% lækkun um 400 þús. kr. á ári. Ef við horfum til sveitarfélaganna má gera ráð fyrir að 1% lækkun á vöxtum samsvari um 5,7-6,0 milljörðum króna. Þá er rétt að það komi fram að skuldir ríkissjóðs eru með föstum kjörum. Það þýðir að vaxtalækkun hefur eingöngu áhrif á nýjar lántökur. Fyrir hvern 1 milljarð sem ríkið tekur að láni þýða 1% lægri vextir 10 m.kr. lægri vaxtagjöld á ári. Það er fljótt að safnast saman við hverja prósentulækkun og til mikils að vinna.
Öruggt heimili fyrir alla
Aukinn stöðugleika á húsnæðismarkaði og vinna gegn auknum kostnaði almennings vegna húsnæðis er forgangsmál og nú þegar er búið að fjármagna þær aðgerðir. Heilbrigður húsnæðismarkaður er mikilvæg kjarabót fyrir almenning í landinu. Til að mæta auknum vaxtakostnaði heimila nú um stundir verða á árinu 2024 greiddir út allt að 7 milljarðar króna í sérstakan vaxtastuðning til heimila með íbúðalán. Stuðningurinn tekur mið af vaxtagjöldum ársins 2023 og kemur til viðbótar almennum vaxtabótum. Þessu til viðbótar og til að daga úr íþyngjandi húsnæðiskostnaði leigjenda verða húsnæðisbætur hækkaðar frá 1. júní nk. og munu grunnfjárhæðir húsnæðisbóta til leigjenda hækka um 25%, auk þess sem tillit verður tekið til fjölskyldustærðar þannig að greiddar verða húsnæðisbætur fyrir allt að sex heimilismenn í stað fjögurra áður.
Fyrir fjölskyldurnar í landinu
Sérstök áhersla er lögð á stuðla að fjölskylduvænna samfélagi með aðgerðum sem miða að því að auka velsæld barnafjölskyldna. Auka á framlög til barnabóta um 18 milljarða króna á samningstímanum. Barnabætur verða hækkaðar og dregið verður úr tekjuskerðingum sem mun fjölga þeim foreldrum sem fá stuðning um 10.000. Þá verður útfærð leið til að skólamáltíðir grunnskólabarna verði gjaldfrjálsar frá og með ágúst 2024. Þessum lið fögnum við sérstaklega enda mikilvægt að öll börn eigi kost á hollum og staðgóðum skólamáltíðum. Hér er um lýðheilsu- og jafnréttismál að ræða. Við í Framsókn höfum í gegnum árin lagt mikla áherslu á að bæta fæðingarorlofskerfið og með þeim aðgerðum sem hér hafa verið lagðar til verða hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hækkaðar í þremur áföngum á næstu tveimur árum. Þá munu stjórnvöld og sveitarfélögin taka höndum saman og vinna með markvissum hætti að því að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla á samningstímanum með því að tryggja öllum börnum leikskólavist.
Markvisst er unnið að því að draga úr kostnaði við að sækja heilbrigðisþjónustu fjarri heimabyggð. Á síðasta ári bætti heilbrigðisráðherra við þriðju flugferðinni og með þessum aðgerðum eru þær nú orðnar fjórar. Þá á að gera breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna sem lúta að því að létta vaxtabyrði og draga úr skyndilegum og ófyrirséðum hækkunum vegna verðbólgu og vaxta á afborganir námslána. Þá líkt og lengi hefur verið kallað eftir á að afnema ábyrgðarmannakerfi námslána. Fleiri aðgerðir eru hér lagðar til og um þær má lesa á vef Stjórnarráðsins, en allar miða þær að sama marki; styðja með öflugum hætti við fólkið í landinu og lækkun verðbólgu og vaxta.
Mál málanna
Allt of lengi höfum við verið að berjast við að ná niður verðbólgunni og vaxtakostnaður hefur rokið upp úr öllu valdi með tilheyrandi hækkunum og þar með minnkandi ráðstöfunartekjum. Með þessum samningum og sér í lagi loforðum ríkis og sveitarfélaga um að halda aftur að gjaldskrárhækkunum er verið að bregðast við með markvissum hætti. Við höfum áður rætt um hvað einkennir gott samfélag, það er að standa saman og rétta fram hjálparhönd. Um þessar mundir reynir á að sýna samstöðu og samfélagslega ábyrgð í því verkefni að ná niður verðbólgu. Því vil viðbótar köllum við eftir að hin „breiðu bök“ standi nú með þjóðinni á vegi til aukinnar velsældar.
Fyrir þetta stendur Framsókn – framtíðin ræðst á miðjunni.
Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknar
Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknar
Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknar
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknar
Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar
Greinin birtist fyrst á visir.is 13. mars 2024.
12/03/2024
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir stórt framfaraskref í þágu barnaSamfélag samvinnu og jafnaðar.
Grunnskóla er ætlað það hlutverk að leggja grunn að virkri þátttöku barna í lýðræðissamfélagi og veita viðeigandi undirbúning og fjölbreytt tækifæri fyrir frekara nám eða störf á vinnumarkaði.
Næring er ein af grunnþörfum mannsins, öll þurfum við góða næringu til þess að geta fengist við verkefni dagsins. Vannæring getur haft varanleg neikvæð áhrif á andlegan og líkamlegan þroska barna og er næring lykilatriði fyrir nemendur og hún á að vera í boði á jafnréttisgrundvelli á grunnskólastiginu án aðgreiningar og endurgjalds.
Öll viljum við að börnin okkar séu vel nærð í amstri dagsins og höfum við í Suðurnesjabæ unnið markvisst að því að auka niðurgreiðslu skólamáltíða á kjörtímabilinu, um síðustu áramót var kostnaðarhlutfall sveitarfélags hækkað úr 50% í 60% og systkinaafsláttur innleiddur þar sem foreldrar borga fyrir 2 börn en 3+ án gjalds Við í Framsókn höfum talað skýrt fyrir því að okkur þykir sjálfsagt að bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum Suðurnesjabæjar og var það eitt af okkar helstu baráttumálum fyrir síðustu kosningar. Með gjaldfrjálsum skólamáltíðum stuðlum við að jafnræði á milli heimila óháð efnahag og stöðu foreldra.
Grunnskólamenntun án aðgreiningar og endurgjalds
Hugsjón okkar Framsóknar í Suðurnesjabæ er sú að á íslandi er skólaskylda og teljum við það í raun hreint og klárt velferðar og jafnréttismál að bjóða upp á raunverulega gjaldfrjálsa grunnskólamenntun á Íslandi án aðgreiningar og endurgjalds. þannig stuðlum við að jafnræði barna óháð stöðu foreldra og tryggjum einnig að börn fái heita máltíð yfir daginn, en það er því miður veruleikinn á íslandi að öll börn búa ekki við slík lífsgæði. Við setjum manngildi ofar auðgildi og viljum að hver og einn hafi sama rétt til menntunar, þroska, grundvallarlífskjara og náttúrugæða óháð uppruna, heilsu og efnahags.
Stutt er síðan að breytingar voru gerðar á lögum um grunnskóla nr. 91 frá 12. júní 2008 en þar kom inn ákvæði í 31. gr laganna sem fjallar um “Kostnað í skyldunámi kemur fram að Kennsla í skyldunámi í opinberum grunnskólum skal veitt nemendum að kostnaðarlausu og er óheimilt að krefja nemendur eða foreldra þeirra um greiðslu fyrir kennslu, þjónustu, námsgögn eða annað efni sem nemendum er gert skylt að nota í námi sínu og samrýmist ákvæðum laga þessara og aðalnámskrá.
Framsókn hvatti sveitarfélög til að styðja gjaldfrjálsar skólamáltíðir
Sveitastjórnarráð Framsóknarflokksins hvatti sveitarstjórnarfólk um land allt til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á vinnumarkaði, sem hafi það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu. Sveitarstjórnarráð Framsóknar studdi að ríki og sveitarfélög myndu tryggja gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum eins og ríkisstjórnin hafði samþykkt.
Við erum að stíga gríðarlega mikilvægt skref með því að innleiða gjaldfrjálsar skólamaltíðir á Íslandi og lýsi ég yfir ánægju með nýja kjarasamninga sem tryggja aukin lífskjör í landinu sem munu leiða af sér lækkun verðbólgu og vaxta, En þeir munu líka um leið tryggja börnunum okkar bjarta framtíð með jöfnu aðgengi að næringarríkum og hollum mat.
Ríki og sveitarfélög ættu að líta á verkefnið sem lausn sameiginlegs viðfangsefnis þjóðfélagsins á grunni samvinnu og jöfnuðar
Framsókn er hreyfiafl framfara í samfélaginu og setur barnafjölskyldur í forgang
Anton Guðmundsson, formaður bæjarráðs og oddviti Framsóknar í Suðurnesjabæ.
Greinin birtist fyrst á visir.is 12. mars 2024.