Íþrótta- og æskulýðsstarfi komið í gegnum COVID-19
Ráðist verður í aðgerðir til þess að styðja við starf íþrótta- og æskulýðsfélaga sem raskast hefur verulega vegna afleiðinga sóttvarnaráðstafana COVID-19. Þátttaka barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi hefur fjölþætt gildi og er mikilvægt að íþrótta- og æskulýðsfélög geti hafið óbreytta starfsemi sem fyrst þegar faraldrinum lýkur. Þá hefur faraldurinn einnig haft mikil áhrif á starf eldri flokka og afreksstarf í íþróttum. Stuðningur stjórnvalda á þessu sviði verður einn sá mesti á Norðurlöndunum. Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra: „Virkni og vellíðan fara saman; um allt land er blómlegt íþrótta- og æskulýðsstarf mikilvægur þáttur í hverju samfélagi. Um það starf viljum við standa vörð og tryggja að iðkendur á öllum aldri geti sem best sinnt sínum áhugamálum áfram.“ Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra: „COVID-19 faraldurinn hefur haft mikil áhrif á íþrótta- og æskulýðsstarf í landinu og sóttvarnaraðgerðir hafa raskað starfsemi íþróttafélaga. Íþrótta- og æskulýðsstarf hefur jákvæð og þroskandi áhrif á börn og ungmenni og því er mjög mikilvægt að við stöndum vörð um það góða starf. Með þessum umfangsmiklu aðgerðum tryggjum við að íþrótta- og æskulýðsstarf geti haldið áfram með þeim hætti sem við þekkjum þegar faraldrinum líkur. Þetta er skynsöm fjárfesting sem skilar sér margfalt til baka fyrir samfélagið allt.“
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ: „Aðgerðir stjórnvalda til stuðnings íþrótta- og æskulýðsstarfinu í landinu eru gríðarlega mikilvægar og stuðla að því að íþróttahreyfingin geti haldið úti sínu faglega starfi og sett aukinn kraft í starfsemina þegar öllum takmörkunum verður aflétt. Með þessu er líka búið að koma upp öryggisneti þannig að ef framhald verður á takmörkunum vegna farsóttarinnar þá er tryggt að íþróttahreyfingin getur staðið skil á launum og verktakagreiðslum, sem er undirstaða starfseminnar.”
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ: „Það er svo mikilvægt að standa vörð um skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf með öllum ráðum, í því er fólginn lykillinn að lýðheilsu þjóðarinnar. Það hefur því verið aðdáunarvert að sjá breiðu samstöðuna fyrir aðgerðum stjórnvalda. Það sýnir að samstarf skilar mestum árangri, það er samfélaginu til góða.“
Aðgerðirnar eru eftirfarandi:
Greiðslur vegna launakostnaðar íþróttafélaga
Til að tryggja að sem minnst röskun verði á íþróttastarfi til lengri tíma litið og félög geti viðhaldið ráðningasambandi við starfsfólk sitt verður veittur styrkur sem nemur launakostnaði þess, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, hafi hlutaðeigandi íþróttafélagi verið gert að fella tímabundið niður starfsemi vegna opinberra sóttvarnaráðstafana á tímabilinu frá 1. október 2020 til og með 30. júní 2021.
Vinnumálastofnun mun annast framkvæmd þessa og er ráðgert að opnað verði fyrir umsóknir í janúar næstkomandi og verður úrræðið kynnt nánar á fundi Vinnumálastofnunar með íþróttahreyfingunni milli jóla- og nýárs. Ráðgert er að heildargreiðslur vegna þessarar aðgerðar nemi um einum milljarði kr.
Viðbótarframlag til stuðnings íþróttafélögum
Veitt verður stuðningsframlag til íþróttafélaga, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, og verður sami háttur hafður á og við úthlutun styrkja til félaganna í vor. Framlag sem nemur 300 milljónum kr. verður skipt milli íþróttafélaga sem starfrækja skipulagt íþróttastarf fyrir börn og unglinga 6-18 ára. Tillit verður tekið til fjölgreinafélaga og getur úthlutun til einstaks íþróttafélags getur ekki orðið hærri en 3% af veltu félagsins samkvæmt staðfestum reikningsskilum 2019. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands gerir tillögu til ráðherra um úthlutunina. Stuðningur þessi kemur til viðbótar 450 milljónum kr. sem úthlutað var til rúmlega 200 íþrótta- og ungmennafélaga í sumar sem lið í fjárfestingarátaki stjórnvalda.
Styrkir til æskulýðsfélaga
Félagasamtök sem standa fyrir skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni munu geta sótt um styrki vegna tekjutaps félaga vegna afleiðinga COVID-19. Til úthlutunar verða alls 50 milljónir kr. og verður styrkurinn auglýstur á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins í janúar. Umsóknum um styrki skal vera hægt að sýna fram á veruleg neikvæð áhrif á afkomu félagsins. Stuðningur þessi kemur til viðbótar 50 milljón kr. stuðningi sem auglýstur var til félaganna í júní síðastliðinn.
„Ég bið Alþingi Íslendinga að standa með íslenskum landbúnaði og huga að matvælaöryggi, ekki bara til skamms tíma heldur til lengri tíma!“
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar, talaði skýrt í ræðu á Alþingi rétt í þessu, í atkvæðagreiðslu um búvörulög. Þar hvatti hún þingheim til að standa með íslenskum landbúnaði á algjörum tímamótum. Sagði hún að tryggja yrði matvælaöryggi, allar þjóðir heims einblíni á það, ekki aðeins hér á Íslandi, heldur alls staðar.
„Allir eru að hugsa um hvernig megi koma í veg fyrir að það eigi sér stað mengun milli dýra og samskipta við mannfólkið. Eitt af því sem við höfum gert gríðarlega vel hér á Íslandi er að huga að þessu,“ sagði Lilja Dögg.
Mikilvægt að aðstoða og hvetja fyrirtæki til framþróunar og arðbærra fjárfestinga!
Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, er fyrsti flutningsmaður tillögu til þingsályktunar um ríkisábyrgð á viðspyrnulán til atvinnuþróunar. „Vaxandi atvinnuleysi, samdráttur í landsframleiðslu, versnandi hagvaxtarhorfur og samdráttur í atvinnuvegafjárfestingu kalla á viðbrögð stjórnvalda. Við þessar aðstæður er sérstaklega mikilvægt að aðstoða og hvetja fyrirtæki til framþróunar og arðbærra fjárfestinga í takt við samfélagsbreytingar á meðan heimsfaraldurinn gengur yfir og til að mæta breytingum sem óhjákvæmilega munu fylgja í kjölfar hans. Samfélagið þarf á virkri atvinnuþróun, fjölgun starfa og auknum gjaldeyristekjum að halda. Aðstæður kalla á að stjórnvöld fari í aðgerðir sem styrkja atvinnulífið í bráð og lengd. Auk hvata og stuðnings við nýsköpun þarf aðgerðir til að halda atvinnulífinu gangandi, koma í veg fyrir stöðnun og skapa nýjar tekjur og störf hratt,“ segir í greinargerð tillögunar.
Tillögugreinin hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að hafa forgöngu um að hrinda í framkvæmd tímabundinni aðgerð sem hvetji til fjárfestinga í atvinnuþróun og greiði fyrir aðgengi atvinnuþróunarverkefna að lánsfjármagni á tímum efnahagslegs samdráttar af völdum heimsfaraldurs kórónuveiru. Aðgerðin felist í ríkisábyrgð á lán sem lánastofnanir veiti lögaðilum til atvinnu- og gjaldeyrisskapandi atvinnuþróunarverkefna. Útfærsla verkefnisins, þ.m.t. tillögur að nauðsynlegum lagabreytingum, liggi fyrir eigi síðar en 1. febrúar 2021. Miðað verði við að aðgerðin komi til framkvæmdar fyrir 1. mars 2021.“
Meðflutningsmenn með þingsályktuninni eru Halla Signý Kristjánsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Willum Þór Þórsson og Þórunn Egilsdóttir.
Markmið tillögunnar er að tryggja að atvinnu- og gjaldeyrisskapandi verkefni hafi aðgengi að lánsfé og styðja þannig við viðspyrnu framsækinna fyrirtækja. Í þessu skyni verði komið á fót kerfi þar sem ríkið ábyrgist að hluta lán til slíkra verkefna. Ábyrgðunum er ætlað að draga úr óvissu og áhættu þess fjármagns sem fer í arðbæra fjárfestingu á tímum samdráttar af völdum heimsfaraldurs kórónuveiru.
Vaxandi atvinnuleysi, samdráttur í landsframleiðslu, versnandi hagvaxtarhorfur og samdráttur í atvinnuvegafjárfestingu kalla á viðbrögð stjórnvalda. Flutningsmenn hafa skoðað ýmsar leiðir til opinbers stuðnings við atvinnuþróun, svo sem styrki, skattaívilnanir og ríkisábyrgðir. Ákveðið var að leggja til ríkisábyrgðir á lán sem lánastofnanir veiti lögaðilum til lítilla og meðalstórra atvinnu- og gjaldeyrisskapandi verkefna. Forsenda tillögunnar er að hún leiðir ekki til útgjalda úr ríkissjóði um leið og aðgerðin hefst. Ef vel tekst til skila verkefni sem heppnast tekjum í ríkissjóð umfram útgjöld vegna verkefna sem ekki lifa út lánstímann, jafnvel verulegum tekjum umfram ætluð útgjöld. Aðgerðin krefst því ekki útgjalda úr ríkissjóði, nema ef fleiri ábyrgðir falla á ríkissjóð en áætlanir gera ráð fyrir. Eigi aðgerðin að ná markmiðum sínum þurfa ríkisábyrgðir til hennar að nema að lágmarki 10–15 milljörðum kr.
Atvinnuleysi fer vaxandi og spár gera ráð fyrir að atvinnuleysi verði allt að 8% í árslok 2020 og allt að 10% um mitt ár 2021.
Endurskoðuð tekjuáætlun ríkissjóðs fyrir árið 2020 gerir ráð fyrir 140 milljarða kr. lækkun frá samþykktum fjárlögum og samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2021 er gert ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu lækki um 2,7 prósentustig samanborið við árið 2019.
Samdráttur landsframleiðslunnar var um 5,7% á fyrri helmingi ársins 2020 og ef nýjustu spár Seðlabankans ganga eftir nær landsframleiðslan ekki því stigi sem hún var árið 2019 fyrr en á árinu 2023. Útlit er fyrir að 8,5% samdráttur verði á árinu öllu. Horfur fyrir næsta ár hafa að sama skapi versnað enda ekki enn ljóst hvenær tök nást á farsóttinni. Á öðrum ársfjórðungi varð 38,8% samdráttur í vöru- og þjónustuútflutningi milli ára sem er mesti samdráttur sem mælst hefur á einum ársfjórðungi frá upphafi mælinga. Horfur um þróun vöruútflutnings seinni hluta ársins og næsta ár hafa einnig versnað eftir því sem líður á faraldurinn.
Þá liggur fyrir að atvinnuvegafjárfestingar, þ.e. fjárfestingar í einkaaðilum í atvinnurekstri, höfðu dregist saman um 4,7% milli ára á fyrri helmingi 2020. Samdráttur almennrar atvinnuvegafjárfestingar á fyrri hluta ársins (fjárfestingar utan stóriðju, skipa og flugvéla) var enn meiri eða tæplega 18% milli ára og stóriðjufjárfesting dróst saman um 30%. Hlutfall atvinnuvegafjárfestingar af landsframleiðslu hefur því lækkað hratt undanfarið og er nú komið niður fyrir meðaltal undanfarins aldarfjórðungs. Útlit er fyrir að þessi samdráttur haldi áfram og gangi nýjasta spá Seðlabankans eftir verður atvinnuvegafjárfesting tæplega fimmtungi minni í ár en í fyrra. Þá benda kannanir til að fjárfesting atvinnuveganna standi nánast í stað á næsta ári.
Við þessar aðstæður er sérstaklega mikilvægt að aðstoða og hvetja fyrirtæki til framþróunar og arðbærra fjárfestinga í takt við samfélagsbreytingar á meðan heimsfaraldurinn gengur yfir og til að mæta breytingum sem óhjákvæmilega munu fylgja í kjölfar hans. Samfélagið þarf á virkri atvinnuþróun, fjölgun starfa og auknum gjaldeyristekjum að halda.
Aðstæður kalla á að stjórnvöld fari í aðgerðir sem styrkja atvinnulífið í bráð og lengd. Auk hvata og stuðnings við nýsköpun þarf aðgerðir til að halda atvinnulífinu gangandi, koma í veg fyrir stöðnun og skapa nýjar tekjur og störf hratt.
Ríkisstjórnin hefur nú þegar bætt verulega í fjárveitingar til nýsköpunar og unnið er að endurskipulagningu nýsköpunarumhverfisins í ljósi aðstæðna og í samræmi við stjórnarsáttmála. Nýsköpun og hvers konar hagnýting hugvits er mikilvæg forsenda fjölbreytts atvinnulífs, sterkrar samkeppnisstöðu, hagvaxtar og velferðar þjóða, ekki síst í ljósi þeirra þjóðfélagsbreytinga sem vænta má í atvinnu- og menntamálum vegna örra tæknibreytinga. Ný vísinda- og tæknistefna og yfirlýsing um 50% aukningu fjárveitinga til nýsköpunar næsta ár er mikið fagnaðarefni og grunnur framtíðartekna. Það sama má segja um Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóð, sbr. lög nr. 65/2020, og tímabundin mótframlagslán til sprota- og nýsköpunarfyrirtækja frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, sbr. lög nr. 83/2020. Samspil sértækra aðgerða til að efla nýsköpun og almennra aðgerða, á borð við frestun gjalddaga opinberra gjalda, stuðningslán með ríkisábyrgð og nú síðast tekjufallsstyrki, er nauðsynlegt til að viðhalda fyrirtækjum og verkefnum sem eiga framtíð fyrir sér og munu skapa þjóðarbúinu tekjur og störf um ókomin ár. Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir er þörf á almennari hvötum til tekju- og atvinnusköpunar sem komast hratt til framkvæmda.
Síðasta áratuginn hefur hagvöxtur verið borinn uppi af nýjum störfum og atvinnuþróun á breiðum grunni, svo sem í iðnaði, sjávarútvegi og afleiddum tæknigeira, fiskeldi, kvikmyndagerð og síðast en ekki síst ferðaþjónustu. Fyrir áratug voru flestir sem borið hafa þessa þróun uppi í öðrum störfum. Um allt land er því fólk sem hefur gripið tækifærin sem gefist hafa síðasta áratug. Margt af þessu fólki er nú tilbúið til nýrra verka.
Tillögunni er ætlað að greiða fyrir því að þessi mannauður, fyrirtækin og fjármagnið sem til eru í landinu geti skapað tekjur til að mæta kostnaði einstaklinga og samfélags af heimsfaraldrinum. Viðfangsefni tillögunnar er að skapa hvata og draga úr tregðu til fjárfestinga í gjaldeyrisskapandi atvinnuþróun hvort sem er í tækni, framleiðslu, þjónustu eða undirbúningi verkefna í ferðaþjónustu þar sem stuðst er við þekkta tækni eða nýsköpun. Tillögunni er ætlað að bregðast við vísbendingum um að niðursveiflan í hagkerfinu magnist vegna þess að fyrirtæki hafi ekki aðgang að lánsfjármagni fyrir góð og arðbær verkefni. Með aðgerð af þessu tagi senda stjórnvöld skýr skilaboð um að framtíðin á Íslandi sé björt og stíga nauðsynlegt skref til að örva atvinnulífið, draga úr atvinnuleysi og glæða hagkerfið.
Hvatinn sem felst í ríkisábyrgðum ætti að geta nýst fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum þó að verkefnin sem ráðist verður í verði flest lítil eða meðalstór. Þetta eru verkefni sem lánveitendur teldu vænlegan fjárfestingarkost í hefðbundnu árferði en gjalda nú fyrir óvissuna. Íslenskt samfélag hefur ekki efni á að bíða eftir að faraldurinn líði undir lok heldur þarf framþróun og nýting tækifæra að halda áfram. Aðgerðinni er ekki ætlað að raska samkeppni og þróun sem er á innlendum markaði heldur styðja við þróun og uppbyggingu í sem flestum greinum sem geta skapað verðmæti og gjaldeyristekjur fyrir samfélagið. Má þar nefna iðnað, skapandi greinar, þróun umhverfislausna, landbúnað, fiskeldi, kvikmyndagerð, sjávarútveg og afleiddan tæknigeira, heilbrigðisþjónustu og lyfjaiðnað, auðlindanýtingu o.fl.
Umfang aðgerðar
Hlutfall ríkisábyrgðar, hámarksupphæð láns, heildarupphæð ábyrgða og tímalengd.
Mikilvægt er að hvatningin sem felst í aðgerðinni nái til margra lögaðila en lánin geti þó orðið nógu há til að hafa raunveruleg áhrif á atvinnuþróun. Því er nauðsynlegt að ákvarða hámark á fjárhæð hvers láns og á fjölda lána til sama eða tengdra aðila. Í því ljósi gæti talist eðlilegt að fjárhæð ábyrgðar yrði að hámarki 200 millj. kr. og að hver lögaðili gæti aðeins hlotið viðspyrnulán með ríkisábyrgð vegna eins atvinnuþróunarverkefnis.
Útfærslan verður að stuðla að því að lán með ríkisábyrgð dreifist til sem fjölbreyttastra verkefna í samfélaginu. Ríkisábyrgð er að jafnaði ekki veitt á fulla lánsupphæð og samkvæmt viðmiðum OECD gæti verið ráðlegt að veita ábyrgð fyrir allt að 70% lánsfjárhæðar samkvæmt nánari útfærslu.
Til að aðgerðin hafi marktæk áhrif við að örva útlán til atvinnusköpunar telja flutningsmenn að heildarupphæð lána sem njóta ríkisábyrgðar þurfi að lágmarki að nema 10–15 milljörðum kr. Þá telja flutningsmenn að marka þurfi ríkisábyrgð á láni ríflegan gildistíma til að aðgerðin skili tilsettum árangri. Skynsamlegt sé að miða við að ríkisábyrgðar njóti við allan lánstíma lána sem veitt eru til átta ára eða skemmri tíma en falli ella niður að átta árum liðnum frá lánveitingu.
Mat á áhrifum á ríkissjóð
Áhrif aðgerðarinnar á ríkissjóð ráðast af ýmsum þáttum, svo sem eftirspurn eftir lánunum og framgangi þeirra atvinnuþróunarverkefna sem lánin eru veitt til. Vænta má að áhrif á ríkissjóð verði jákvæð bæði í formi sjóðstreymis og endanlegrar afkomu.
Í greinargerð með tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025 (bls. 33), sbr. 2. mál á yfirstandandi löggjafarþingi, kemur fram að svokallaður ríkisfjármálamargfaldari, sem lýsir sambandi ríkisfjármála og hagvaxtar, sé nú áætlaður um 0,3–0,4. Þetta þýðir að á hver króna í ríkisútgjöld af því tagi sem hér er lagt til skilar sér með 30–40% álagi inn í hagkerfið. Á þeim grunni mætti setja fram það markmið að full nýting lánanna skilaði á bilinu 470–630 störfum auk afleiddra starfa.
Flutningsmenn telja samkvæmt þessu að yfirgnæfandi líkur standi til þess að uppsöfnuð áhrif af aðgerðinni á afkomu hins opinbera verði jákvæð þegar fram í sækir. Mikilvægt er að horfa til þess að kostnaður ríkissjóðs af ábyrgðum sem kunna að falla á hann muni vart koma til fyrr en eftir að önnur verkefni hafa skilað þangað tekjum.
Ríkisstyrkir og opinber úrræði vegna heimsfaraldurs
Opinberir styrkir til fyrirtækja í samkeppnisrekstri eru almennt óheimilir innan Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. 1. mgr. 61. gr. EES-samningsins, nema þeir falli undir einhverja af þeim undanþágum sem tilgreindar eru í samningnum. Í b-lið 3. mgr. 61. gr. samningsins er kveðið á um heimild til ríkisstyrkja til að bregðast við alvarlegri röskun á efnahagslífi aðildarríkis. Sambærilegt ákvæði er í b-lið 3. mgr. 107. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (TFEU).
Í ljósi þeirrar stöðu sem hagkerfi heimsins standa frammi fyrir hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heimilað ríkjum sambandsins að veita ríkisaðstoð til fyrirtækja í vanda í mun meira mæli en í venjulegu árferði. Hið sama á við um Eftirlitsstofnun EFTA og EES-ríkin. Aðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til vegna faraldursins til þessa hafa ýmist rúmast innan reglugerða Evrópusambandsins um minni háttar aðstoð (e. de minimis aid) eða hlotið sérstaka undanþágu á grundvelli tímabundinnar heimildar vegna faraldursins.
Við útfærslu tillögunnar þarf m.a. að gæta að reglum um ríkisaðstoð og samspili úrræðisins við aðrar opinberar stuðningsaðgerðir í þeim tilvikum sem þær hafa þegar komið í hlut lántaka viðspyrnulána með ríkisábyrgð til atvinnuþróunar.
Framkvæmd
Aðgerðin beinist að lögaðilum sem sækja um lán vegna atvinnuþróunarverkefna og fjármálastofnunum sem veita lán til atvinnuþróunar.
Afmörkun atvinnuþróunarverkefna
Mikilvægt er að atvinnuþróunarverkefni verði skýrt afmarkað verkefni til þróunar á vöru, þjónustu eða framleiðsluaðferð. Vanda þarf mjög til mótunar skilyrða fyrir því að atvinnuþróunarverkefni falli undir aðgerðina þannig að lán sem veitt er til verkefnisins geti notið ríkisábyrgðar. Þá þarf að skilgreina leiðir fyrir lögaðila til að sýna fram á að verkefni uppfylli skilyrðin og ákveða hvort eða hvernig lagt verði faglegt mat á verkefnin áður en veitt er vilyrði fyrir ríkisábyrgð. Eins þarf að liggja skýrt fyrir hvaða upplýsingum stjórnvöld þurfa á að halda á meðan ríkisábyrgð er í gildi.
Eðlilegt er að byggja skilyrði faglegs mats á eftirfarandi atriðum sem eru grundvöllur þess að markmið tillögunnar náist:
Að verkefnið leiði af sér vöru eða þjónustu sem er gjaldeyrisskapandi.
Að verkefnið sé atvinnuskapandi á Íslandi.
Að verkefnið feli í sér nýnæmi, annaðhvort svæðisbundið eða á landsvísu.
Að útskýrt sé hvernig verkefnið geti staðið af sér hefðbundnar efnahagssveiflur.
Að viðskiptaáætlun sé vel skilgreind með tilliti til framangreindra atriða.
Eftirfarandi er nánari skýring á framangreindum atriðum:
Krafa um að verkefni leiði af sér vöru eða þjónustu sem er gjaldeyrisskapandi byggist á því að ein helsta áskorun íslensks samfélags er samdráttur í vöru- og þjónustuútflutningi. Setja þarf lágmarksviðmið um að hlutfall vöru eða þjónusta verði seld á erlenda markaði eða verði gjaldeyrisskapandi á annan hátt.
Krafa um að verkefni sé atvinnuskapandi hér á landi byggist á því að nauðsynlegt er að skapa sem flest störf á tímum atvinnuleysis. Eðlilegt væri að gera kröfu um að verkefni yrði viðhaldið á Íslandi meðan ábyrgðin væri í gildi og þar með að höfuðstöðvar viðkomandi lögaðila væru á Íslandi þar sem ríkisaðstoð er ætlað að ráða bót á alvarlegu áfalli í efnahagslífi hér á landi.
Krafan um að verkefnið feli í sér nýnæmi, annaðhvort svæðisbundið eða á landsvísu, byggist á því að mikilvægt er að fara nýjar leiðir við framleiðslu og þjónustu vegna samfélagsbreytinga. Slíkt nýnæmi getur byggst á endurnýtingu hugmynda og yfirfærslu á tækni sem nú þegar er til. Skilgreina þarf kröfuna um nýnæmi mun rýmra en vegna stuðnings nýsköpunarsjóða. Lágmarka þarf áhrif á innlenda samkeppnismarkaði.
Krafan um að verkefnið geti staðið af sér efnahagslegar sveiflur byggist á því að íslenskt efnahagslíf býr við sveiflur og styrkur atvinnulífsins felst í þolinu gagnvart þeim. Þannig yrðu fjármálastofnanir og lögaðilar sem sæktu um ábyrgðir fyrir lánum að gera grein fyrir því hvaða varnir verkefnið hefði fyrir efnahagssveiflum.
Gerð skal grein fyrir atvinnuþróunarverkefni í viðskiptaáætlun sem innihaldi greinargerð um verkefnið og sýni hvernig það uppfyllir sett skilyrði og hverjir möguleikar þess eru, ásamt rekstraráætlun og lýsingu á starfsemi fyrirtækis.
Faglegt mat verkefna
Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís, hefur mikla reynslu af faglegu mati á verkefnum í atvinnulífinu og því liggur beinast við að fela þeirri stofnun faglega umsýslu ef slíkt mat verður grundvöllur fyrir veitingu ríkisábyrgðar. Þannig yrði ríkisábyrgð á atvinnuþróunarlánum til lögaðila veitt til fjármálastofnana vegna atvinnuþróunarverkefna sem Rannís hefði staðfest að uppfylli skilyrði til að falla undir aðgerðina.
Eðlilegt væri að innheimta hóflegt umsýslugjald til að standa undir kostnaði við afgreiðslu og umsýslu ábyrgða. Líta mætti til 3. mgr. 17. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, í því samhengi en þar segir að umsýsluþóknun vegna stuðningsláns með ríkisábyrgð megi í hæst nema 2% af höfuðstóli láns.
Lánveitendur
Atvinnuþróunarlán yrði veitt lögaðila vegna staðfests atvinnuþróunarverkefnis í samræmi við skilyrðin sem verkefnið þarf að uppfylla. Lán yrði veitt af viðurkenndum lánveitanda, þar sem lögaðili leitar lánsfjármögnunar vegna atvinnuþróunarverkefnis. Viðurkenndir lánveitendur geta verið viðskiptabankar, sparisjóðir, lánafyrirtæki, verðbréfafyrirtæki eða rekstrarfélög verðbréfasjóða skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, en einnig er mikilvægt að lífeyrissjóðir og hugsanlega vísisjóðir eða aðrir sjóðir sem hafa það að markmiði að styðja atvinnuþróun geti tekið þátt í verkefninu.
Afgreiðsla, umsýsla og eftirfylgni
Eðlilegt er að ráðherra verði heimilt að semja við Seðlabanka Íslands um að annast umsýslu vegna ríkisábyrgða á lánum til atvinnuþróunar. Seðlabankinn semji aftur við lánveitendur lánanna um framkvæmd þeirra líkt og við á um stuðningslán með ríkisábyrgð, sbr. 20. gr. laga nr. 38/2020. Jafnframt mætti fela nefnd sem ráðherra hefur skipað samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum um ríkisábyrgðir, nr. 121/1997, eftirlit með aðgerðinni, sbr. 21. gr. sömu laga.
Mikilvægt er að skýrt sé hvað fellur undir atvinnuþróun og atvinnuþróunarkostnað í skilningi aðgerðarinnar, þ.m.t. fjárfestingar í tækjum og búnaði. Jafnframt er mikilvægt að lögaðili geti á einfaldan hátt sýnt fram á að láninu sé varið í samræmi við þau skilyrði t.d. við skattskil og með aðgreiningu verkefnis frá öðrum verkefnum í bókhaldi og ársreikningi. Þar mætti leita fyrirmynda í reglum um skattafslætti vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar. Þá þarf að skilgreina stjórnsýslu vegna umsýslu ábyrgða.
Samandregið gæti framkvæmdin orðið á þessa leið:
Lögaðili óskar eftir láni frá fjármálastofnun vegna verkefnis sem hann telur að falli undir skilgreiningu á atvinnuþróunarverkefni. Lögaðili eða lánveitandi sækir um faglegt mat á verkefninu og ríkisábyrgð á viðspyrnuláninu.
Ef faglegt mat á verkefninu er jákvætt er lögaðila, fjármálastofnun og umsýsluaðila ríkisábyrgðar tilkynnt þar um.
Ábyrgð er veitt og verkefni getur hafist.
Lögaðilar sem fá samþykkta ábyrgð á viðspyrnulán skulu eingöngu nýta lánsfé til að standa straum af atvinnuþróunarkostnaði í samræmi við samþykkta umsókn og uppfylla skilyrði að öðru leyti.
Fjármálastofnun fylgist með ráðstöfun lánsins eftir hefðbundnum samskiptaleiðum við lántaka.
Lögaðili gerir grein fyrir framkvæmd verkefna í skattskilum.
Ábyrgð fellur niður að tilteknum tíma liðnum eða ef lán er endurgreitt að fullu fyrir lok gildistíma ábyrgðar. Ábyrgð fellur jafnframt niður ef sýnt er að lánveitanda hafi mátt vera ljóst að skilyrði fyrir henni hafi ekki verið uppfyllt þegar lánið var veitt.
Tilkynning frá kjörstjórn Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi!
Í Norðvesturkjördæmi fer fram póstkosning um val á framboðslista Framsóknarflokksins, samkvæmt reglum flokksins þar um.
Framboðsfrestur til þátttöku í póstkosningunni rennur út þriðjudaginn 17. janúar 2021, kl. 12:00 á hádegi.
Kjörskrá verður gerð samkvæmt félagatali 2. janúar 2021.
Framboðum skal skila til formanns kjörstjórnar, Valgarðs Hilmarssonar, á netfangið vallih@centrum.is. Formaðu veitir einnig frekari upplýsingar.
Atkvæðisseðlar verða sendir út 1. febrúar og er frestur til að skila þeim inn til og með 26. febrúar. Kosið verður um 5 efstu sæti listans. Sjá nánar inn á framsokn.is.
Þeir hrópa hátt en virðast ekki hafa kynnt sér málið!
Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður, gerði grein fyrir atkvæði sínu í atkvæðagreiðslu um kynrænt sjálfræði, á Alþingi í dag. Sagði hún mikilvægt að taka mark á áliti þeirra er hafa reynslu og þekkingu, frekar en örfáum þingmönnum er hrópa hátt.
„Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með næstum því öllum þeim sem talað hafa í dag. Ég fagna því frumvarpi sem við greiðum nú atkvæði um og tek undir að þetta er stór dagur. Þetta er dagur mannréttinda. Ég er komin í jólaskap. Mér líður vel. Ég ætla að túlka orðræðu Miðflokksins sem misskilning, ekki mannfyrirlitningu. Ég held að karlarnir sem tóku hér til máls í gær skilji þetta ekki almennilega þó að þeir haldi öðru fram. Og ég tek undir með þeim sem síðast talaði, hv. þm. Páli Magnússyni, og ég verð að segja það fyrir mig, og ég held að það sé kannski eðlileg niðurstaða, að þegar við höfum fengið álit frá því fólki sem hefur reynslu og þekkingu á þeim hlutum sem um ræðir hlýtur maður að taka meira mark á því, eftir margra ára vinnu, en örfáum þingmönnum hér í þingsal sem hrópa hátt en virðast ekki hafa kynnt sér málið,“ sagði Silja Dögg.
Í síðustu viku kynnti ég lagafrumvörp sem miða að því að gjörbylta aðstæðum barna og fjölskyldna þeirra. Í dag mælti ég fyrir þeim á Alþingi og hefur því ferill þeirra þar hafist formlega. Þessi frumvörp eru afurð tæplega 3 ára samstarfs og að vinnslu þeirra hafa komið yfir 1.000 manns.
Börn eiga ekki að þurfa að búa við aðstæður sem gera það að verkum að þau fá ekki að vera börn.
Þegar og ef börn, og fjölskyldur þeirra, þurfa aðstoð á aðstoðin að koma til þeirra.
Börnin eiga að vera hjartað í kerfinu og við eigum ekki að halda í kerfi sem byggist upp kringum mismunandi stofnanir og aðra þjónustuveitendur.
Börn og fjölskyldur eiga ekki að þurfa að vita hvert þau eiga að leita við vanda sem þau hafa fengið skilgreindan. Þeim á að vera leiðbeint að fyrra bragði frá fyrstu stundu.
Öll börn fá tengilið sem auðvelt er að nálgast og leita til.
Ég er hrærður yfir viðtökum síðustu viki og sannfærður um að þessi frumvörp (og fleiri sem munu fylgja) geti breytt heilmiklu fyrir börn og fjölskyldur þessa lands. Nú fer málið sína leið innan þingsins og ég vona að þau hljóti þar framgang.
Stærsta kerfisbreytingin í málefnum barna á Íslandi í áratugi
Gönguhópurinn Framsæknir fætur er nýjung í starfi Framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi. Ætlunin er að skipuleggja reglulegar göngur um kjördæmið þar sem Framsóknarmenn ganga saman, en samt ekki.
Þorbjörg Sólbjartsdóttir, stjórnarmaður í kjördæmistjórn KFSV, íþróttafræðingur og þjálfari mun halda utan um gönguhópinn. Fyrst um sinn á netinu þannig að hver og einn fer í sína eigin gönguferð en eftir því sem aðstæður leyfa í raunheimum þegar aftur verður leyfilegt að hittast og hreyfa sig saman.
Fyrsta gangan sem hún mælir með er Helgafellið. Helgafellið er vinsæl og stutt gönguleið rétt fyrir utan Mosfellsbæ. Á leiðinni upp Helgafellið er fallegt útsýni yfir Mosfellsbæ, vestari hluta Reykjavíkur og Esju og yfir sundin.
Stærsta kerfisbreytingin í málefnum barna á Íslandi í áratugi
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur kynnt frumvarp um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
„Allt frá því ég tók við ráðherraembætti hefur forgangsverkefni mitt verið að bæta enn frekar hvernig við þjónustum börn og fjölskyldur þeirra. Í víðtæku samráði og samstarfi fjölmargra aðila, leikinna, lærðra, innan þings og utan, hefur verið unnið að því í hartnær þrjú ár að smíða undirstöður undir kerfi sem tryggir að börn og fjölskyldur þeirra falli ekki á milli kerfa og verði ekki send á eigin ábyrgð milli þjónustuaðila innan sveitarfélaga og ríkisstofnana. Verkefnið er risavaxið og ég held að það sé óhætt að segja að við séum að horfa upp á stærstu kerfisbreytingu í þessum málaflokki á Íslandi undanfarna áratugi,” sagði Ásmundur Einar á opnum kynningarfundi í gær.
Frumvarpið er afurð víðtæks og góðs samstarfs fjölda aðila með samþættingu þjónustu í þágu barna að markmiði, sem og að auka samvinnu og bæta samfellu þjónustu við börn og að hagsmunir barna skuli ávallt hafðir í fyrirrúmi. Verkefnið er umfangsmikið og felur sennilega í sér mestu breytingu sem gerð hefur verið á umhverfi barna á Íslandi í áratugi.
Erum að tryggja snemmbæran, samþættan stuðning þvert á kerfi
Á yfirstandandi kjörtímabili hefur verið unnið að undirbúningi lagaumhverfis sem miðar að því að tryggja börnum og aðstandendum þeirra, snemmbæran, samþættan stuðning þvert á kerfi. Vinnan hefur verið undir forystu félagsmálaráðuneytisins en í víðtæku og þéttu samráði við fjölmarga aðila, svo sem önnur ráðuneyti, þingmannanefnd um málefni barna, félagasamtök og einstaklinga sem hafa lagt hönd á plóg.
Stefnan sem er lögð til í frumvarpinu er að láta mismunandi hluta kerfisins tala betur saman og loka gráu svæðum. Þannig er markmiðið að barnið verði hjartað í kerfinu. Frumvarpið tekur til allrar þjónustu sem fer fram innan skólakerfisins, í leik-, grunn- og framhaldsskólum, á frístundaheimilum og í félagsmiðstöðvum. Það tekur einnig til þjónustu sem er veitt innan heilbrigðiskerfisins, í heilsugæslu, á heilbrigðisstofnunum og sjúkrahúsum og félagsþjónustu sem er veitt innan sveitarfélaga, barnaverndarþjónustu og þjónustu við börn með fatlanir, svo dæmi séu til tekin.
Í frumvarpinu er lögð rík áhersla á að börn og foreldrar hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana, ef á þarf að halda. Með breytingunum er leitast við að tryggja að foreldrar og barn fái upplýsingar um þjónustu í þágu barnsins og þjónustuveitendur, foreldrar og börn, eftir atvikum, móti í sameiningu markmið, úrræði og mat á árangri.
Framsóknar appið er til að flokksmenn og áhugamenn um pólitík geti fylgst með fréttum og viðburðum sem Framsókn vill koma á framfæri. Einnig er hægt að sjá þau kjördæmi sem Ísland skiptist upp í og þá fulltrúa sem eru kjörnir fyrir hönd Framsóknar í hverju kjördæmi fyrir sig.
Appið er hægt að sækja á Google Play eða App Store.
Páll Pétursson frá Höllustöðum, bóndi, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, lést á Landspítalanum í gær, 23. nóvember, 83 ára að aldri.
Páll var fæddur á Höllustöðum í Blöndudal 17. mars 1937. Foreldrar hans voru Pétur Pétursson (fæddur 30. nóvember 1905, dáinn 7. maí 1977) bóndi á Höllustöðum í Blöndudal og kona hans Hulda Pálsdóttir (fædd 21. ágúst 1908, dáin 9. janúar 1995) húsmóðir. Páll giftist Helgu Ólafsdóttur 26. júlí 1959 en hún var fædd fædd 30. október 1937, dáin 23. maí 1988. Foreldrar hennar voru Ólafur Þ. Þorsteinsson og kona hans Kristine Glatved-Prahl. Páll giftist Sigrúnu Magnúsdóttur giftist Sigrúnu Magnúsdóttur 18. ágúst 1990 (fædd 15. júní 1944) alþingismaður, ráðherra og borgarfulltrúi í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Magnús Jónsson Scheving og kona hans Sólveig Vilhjálmsdóttir. Börn Páls og Helgu eru Kristín (1960), Ólafur Pétur (1962), Páll Gunnar (1967). Dætur Sigrúnar og stjúpdætur Páls eru Sólveig Klara (1971)og Ragnhildur Þóra (1975).
Páll lauk stúdentsprófi frá MA 1957 og var bóndi á Höllustöðum síðan 1957. Skipaður 23. apríl 1995 félagsmálaráðherra, lausn 28. maí 1999. Skipaður 28. maí 1999 félagsmálaráðherra, lausn 23. maí 2003. Páll var formaður FUF í Austur-Húnavatnssýslu 1963–1969. Í hreppsnefnd Svínavatnshrepps 1970–1974. Formaður Veiðifélags Auðkúluheiðar 1972–1977. Fulltrúi Austur-Húnvetninga á fundum Stéttarsambands bænda 1973–1977. Formaður Hrossaræktarsambands Íslands 1974 og 1980. Í Norðurlandaráði 1980–1991, formaður Íslandsdeildar þess 1983–1985. Forseti Norðurlandaráðs 1985 og 1990. Í flugráði 1983–1992. Kjörinn í samstarfsnefnd með Færeyingum og Grænlendingum 1981 um sameiginleg hagsmunamál. Í Rannsóknaráði 1978–1980. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1985–1987, formaður. Í stjórn Landsvirkjunar 1987–1995. Kosinn í Evrópustefnunefnd 1988. Í þingmannanefnd EFTA/EES 1991–1995.
Páll var alþingismaður Norðurlands vestra 1974–2003. Félagsmálaráðherra 1995–2003. Formaður þingflokks Framsóknarmanna 1980–1994. Hann sat í utanríkismálanefnd 1991–1995 (varaform. 1994–1995), iðnaðarnefnd 1991–1995, sérnefnd um stjórnarskrármál 1992–1995.
Við Framsóknarmenn minnumst ráðherra og alþingismanns með djúpri virðingu og þakklæti fyrir störf í þágu Framsóknarflokksins og þjóðarinnar. Framsóknarfólk vottar aðstandendum innilega samúð.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.
Any cookies that may not be particularly necessary for the website to function and is used specifically to collect user personal data via analytics, ads, other embedded contents are termed as non-necessary cookies. It is mandatory to procure user consent prior to running these cookies on your website.