Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, alþingismaður, er fyrsti flutningsmaður tillögu til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldi.
Markmið tillögunnar er að ganga enn frekar í miðlun upplýsinga. Að „núverandi kerfi verði endurskoðað með það fyrir augum að einfalda barnaverndaryfirvöldum, félagsmálayfirvöldum og heilbrigðisyfirvöldum sem og menntamálayfirvöldum að miðla upplýsingum sín á milli og til lögreglu, ávallt með það að leiðarljósi að tryggja persónuverndarsjónarmið hvað miðlunina varðar“.
Tillögugreinin hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að setja á fót starfshóp sem verði falið að móta tillögur um bætt verklag um miðlun upplýsinga um heimilisofbeldismál á milli kerfa barnaverndaryfirvalda, félagsþjónustu sveitarfélaga, heilbrigðisstofnana, skóla og lögregluembætta. Starfshópnum verði m.a. falið að móta tillögur um rýmri lagaheimildir til miðlunar upplýsinga um heimilisofbeldi milli félagsmálayfirvalda, heilbrigðisyfirvalda, menntamálayfirvalda og lögreglu og koma á fót samstarfsvettvangi stjórnvalda. Ráðherra kynni Alþingi niðurstöður starfshópsins eigi síðar en í desember 2023.“
Tilkynningar þolenda til lögreglu um heimilisofbeldi koma síður fram enda gerandinn oft nákominn. Eins á það við í smærri samfélögum þar sem allir þekkja alla og verið þungbært fyrir þolenda að tilkynna um heimilisofbeldi. Mikilvægt er að stjórnvöld sem starfa náið með íbúunum hafi víðtækar heimildir til að eiga frumkvæði að því að grípa inn í og eiga samstarf við önnur stjórnvöld um viðbrögð.
„Þótt verklagsreglur ríkislögreglustjóra hafi tryggt samstarf lögreglu við önnur stjórnvöld þarf samstarfið einnig að verða formfast í hina áttina, þ.e. með tilkynningum félagsmálayfirvalda, heilbrigðisyfirvalda og menntastofnana til lögreglu og með samstarfi þeirra á milli að frumkvæði annarra yfirvalda. Til þess að slík upplýsingagjöf geti átt sér stað með skilvirkum hætti með hagsmuni brotaþola að leiðarljósi þarf skýrari lagaheimildir til upplýsingamiðlunar,“ sagði Hafdís Hrönn.
„Það er breið pólitísk samstaða um málið og við getum öll verið sammála um mikilvægi þess að við grípum styrkum höndum utan um þennan viðkvæma hóp og brjótum upp ákveðinn vítahring sem myndast hefur í þessum málum. Við höfum verið að stíga stór og stöndug skref í áttina að því að bæta verkferla hjá lögreglu og þá hefur einnig verið gripið til mikilvægra réttarúrbóta fyrir þolendur ofbeldis. Baráttunni er þó ekki lokið og við erum enn að sjá allt of háar tölur um tíðni heimilisofbeldis,“ sagði Hafdís Hrönn.
„Ég bind miklar vonir við að við getum tryggt þessu máli framgang og auðveldað þá upplýsingamiðlun sem hér um ræðir því að við verðum að skapa þær forsendur í okkar samfélagi fyrir fjölskyldur og fyrir börnin okkar að þau búi við öryggi. Þau eiga að njóta þeirra grundvallarréttinda að búa við öryggi án ofbeldis og ógnar á þeim stað sem á að vera friðhelgur griðastaður. Við eigum öll þann skilyrðislausa rétt skilið,“ sagði Hafdís Hrönn.

09/01/2024
Dreifingu fjölpósts hættÍslandspóstur ákvað að hætta alfarið að dreifa fjölpósti við upphaf árs 2024. Fyrir fjórum árum var hætt að dreifa fjölpósti á suðvesturhorni landsins. Íbúar á því svæði urðu þó ekki varir við það enda er þar virk samkeppni um verkefnið og önnur fyrirtæki tóku að sér að dreifa fjölpósti. Það má hins vegar ætla að víða í dreifbýli og á minni þéttbýlisstöðum muni enginn grípa boltann. Því muni íbúum ekki lengur berast fjölbreytt efni sem hingað til hefur verið dreift með fjölpósti.
Pósturinn segir í tilkynningu að þessi ákvörðun sé í takt við umhverfisstefnu Póstsins og þar með sé verið að draga úr sóun og losun koltvísýrings. Vissulega er það þannig að þeim fækkar sem senda frá sér fjölpóst en nýta þess í stað rafræna miðla til að koma upplýsingum á framfæri. Það er þó erfitt að koma auga á umhverfisábata þar sem landpóstar munu eftir sem áður keyra um dreifbýlið tvisvar í viku.
Sparnaður á kostnað íbúa í dreifbýli eða tekjutap póstsins?
Það er ekki nóg að vísa til umhverfisstefnu þegar kemur að slíkri þjónustuskerðingu á landsbyggðinni. Í nóvember fóru fulltrúar Framsóknar í umhverfis og samgöngunefnd Alþings fram á að nefndin óskaði eftir frekari upplýsingum um forsendur ákvörðunar Íslandspóst, um að hætta alfarið dreifingu fjölpósts þann 1. janúar 2024. Nefndin óskaði í framhaldi eftir upplýsingum um hvað þessi ákvörðum myndi spara félaginu, annars vegar við að hætta dreifingu fjölpósts í dreifbýli og hins vegar í þéttbýli með 1000 eða færri íbúum. Svarið sem barst var að fyrirtækið sjái ekki ástæðu til að taka saman þær upplýsingar sem beðið var um og vísar til þess að um sé að ræða upplýsingar sem Alþingi eigi ekki rétt á þar sem fyrirtækið væri nú opinbert hlutafélag.
Í tengslum við fyrirspurnina bendir Íslandpóstur á að dreifing fjölpósts fellur ekki undir alþjónustu, sem Íslandspósti er skylt að veita um land allt skv. lögum. Ákvörðun um hvort dreifa eigi fjölpósti eða ekki, hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu, þéttbýli eða dreifbýli á landsbyggðinni er því í öllum tilvikum rekstrarleg ákvörðun sem tekin er af stjórn og stjórnendum félagsins. Þessi ákvörðun félagsins sætir því engri sérstakri ytri skoðun, og gildir þá einu hvort um er að ræða Byggðastofnun eða Alþingi.
Dreifum gleðinni
Eitt að slagorðum Íslandspósts er „Dreifum gleðinni“ og hlutverk hans er að tengja fólk, fyrirtæki og samfélög. Samkvæmt lögum veitir Íslandspóstur viðskiptavinum alhliða póstþjónustu, óháð staðsetningu og framtíðarsýnin er að vera fyrsta val viðskiptavina með því að veita framúrskarandi þjónustu. Íslandspóstur er opinbert fyrirtæki og starfar undir lögum um póstþjónustu. Skylda Póstsins er að veita alþjónustu sem nær til bréfa allt að 2 kg og pakka allt að 10 kg innan lands. Þannig að dreifing fjölpósts fellur ekki þar undir. Eftir breytingarnar verður eftir sem áður hægt að senda markpóst, t.d. bæklinga og auglýsingarefni, sem almennt bréf en hann mun þá lúta skilmálum bréfa varðandi verðskrá, dreifingarplan og nafnamerkingu og kostar því bæði meira að undirbúa sendingar og dreifa þeim. Íslandspóstur dreifir því „fjölpósti“ en gjaldskráin hefur hækkað að því marki að það borgar sig varla að nýta sér þá þjónustu þar sem kostnaðurinn eykst um allt að 600%.
Gleðin daprast þegar ákvörðunin kemur sannarlega niður á þeirri þjónustu sem Pósturinn hefur veitt s.s. við dreifingu héraðsfréttamiðla og Bændablaðsins. Það fer að þrengjast um rekstur slíkra miðla þegar það svarar engan veginn kostnaði að dreifa þeim til lesenda og ólíklegt að þeir nýti póstinn til þess áfram. Hvort skyldi ríkisjóður nú þurfa að greiða minna eða meira með rekstri Íslandspósts eftir þessa ákvörðun?
Dreifum menningu og upplýsingum
Það er staðreynd að bréfapósti hefur fækkað mikið en það má ekki koma niður á þeirri þjónustu sem er þó enn nýtt. Það er mikilvægt hlutverk póstsins að tengja fólk, fyrirtæki og samfélög og veita þjónustu óháð staðsetningu. Að tengja saman fólk og samfélög er að miðla upplýsingum og fréttum það er m.a. gert með svæðisbundnum miðlum. Félagssamtök gefa einnig út blöð og bæklinga og svo ekki sé talað um blöðunga sem er dreift fyrir kosningar. Þar eru mikilvægar upplýsingar sem þurfa að komast til fólks.
Það er mikilvæg að dreifa gleðinni, upplýsingum og fréttum. Pósturinn hefur staðið sig vel í því hlutverki í aldir og það er mikilvægt að missa ekki sjónar af því. Pósturinn þarf líka að svara því hvað þessi ákvörðun skiptir miklu í rekstrarlegu tilliti og hvað sparast í útblæstri við ákvörðunina. Við hin getum alveg reiknað út hvað þetta þýðir í þjónustuskerðingu fyrir hinar dreifðu byggðir.
Halla Signý Kristjánsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmenn Framsóknar.
Greinin birtist fyrst á visir.is 9. janúar 2024.

09/01/2024
Lægri vextir eru stærsta kjarabótinÞað hefur ekki dulist neinum að há verðbólga og vextir hafa komið illa við fólk og fyrirtæki á síðustu misserum. Það er því til mikils að vinna að ná verðbólgunni niður og skapa þannig skilyrði fyrir lækkun vaxta. Há verðbólga gerði vart við sig í kjölfar heimsfaraldursins í fjölmörgum ríkjum með tilheyrandi áskorunum fyrir hagstjórn. Ísland fór ekki varhluta af þeirri þróun í heimsbúskapnum þar sem hnökrar í aðfangakeðjum, auknar hömlur og viðskiptahindranir í alþjóðaviðskiptum ásamt stríðsátökum hafa framkallað miklar áskoranir fyrir stjórn efnahagsmála og enn sér ekki fyrir endann á þeim.
Hér hefur há verðbólga hins vegar reynst þrálátari en í löndunum í kringum okkur, þó svo að hún hafi framan af mælst sú næstlægsta í Evrópu.
Það er gömul saga en ekki ný að há verðbólga bitnar verst á þeim sem síst skyldi; þeim efnaminni. Helsta keppikefli efnahagsstjórnarinnar hérlendis er að ná tökum á verðbólgunni. Hún hefur vissulega lækkað frá því að hún mældist hæst 10,2% í febrúarmánuði 2023, en í dag mælist hún 7,7%. Sterkar vísbendingar eru um að háir stýrivextir Seðlabankans séu farnir að bíta en á árinu 2023 slógu þeir á innlenda eftirspurn á sama tíma og mikill kraftur var í þjónustuútflutningi, sem skýrðist aðallega af umsvifum í ferðaþjónustu. Þá var samdráttur í einkaneyslu á þriðja ársfjórðungi eftir nokkuð kröftugan vöxt ársfjórðungana þar á undan. Hagkerfið kom af miklum krafti út úr faraldrinum og mældist hagvöxtur ríflega 7% á árinu 2022 og fór viðskiptajöfnuður úr skorðum. Á þessu ári er spáð meira jafnvægi í þessum efnum með tæplega 3% hagvexti og jákvæðum viðskiptajöfnuði.
Næstu vikur skipta höfuðmáli í glímunni við verðbólguna en örlög verðbólguþróunarinnar eru nú að stórum hluta í okkar eigin höndum. Þar er stóra breytan komandi kjarasamningar sem nú er unnið að. Þar mun ábyrgð, raunsæi og góð samvinna ríkis og sveitarfélaga, Seðlabanka Íslands og aðila vinnumarkaðarins ráða úrslitum. Ríkisstjórnin stóð fyrir aðhaldssömum fjárlögum, þar sem Stjórnarráðið tekur á sig hvað mest aðhald. Það sama má segja um launahækkun æðstu embættismanna ríkisins sem lækkuð var niður í 2,5%, sem kallast á við verðbólgumarkmið Seðlabankans og gjaldskrárhækkanir takamarkaðar við 3,5%. Með þessu vilja stjórnvöld leiða með góðu fordæmi. Það hefur einnig verið jákvætt að sjá fleiri sveitarfélög draga úr boðuðum gjaldskrárhækkunum, nú síðast Hveragerðisbær sem mun hækka gjaldskrár um 2,5% í stað 8% eins og boðað hafði verið.
Í þessu verkefni verða allir að leggja sitt af mörkum enda mikið í húfi. Það er samt sem áður tilefni til bjartsýni í ljósi þess jákvæða tóns sem kveður við í samningaviðræðum aðila vinnumarkaðarins. Það er mikilvægt að vinna áfram í þeim anda og stuðla að því að skrifað verði undir langtímakjarasamninga sem skapa hagfelld skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og vaxta, en í því felst stærsta kjarabótin fyrir okkur öll.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknar.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 9. janúar 2024.
Þingstörf á haustþingi

08/01/2024
Þingstörf á haustþingiÞingfundum Alþingis, 154. löggjafarþings, var frestað 16. desember en það hóf störf 12. september sl.. Þingfundir voru samtals 55 og stóðu í rúmar 247 klst. og voru þingfundadagar alls 46.
Þinghaldi Alþingis er skipt í þrjú tímabil, haustþing, vetrarþing og vorþing. Haustþing er frá því að þing kemur saman aðra vikuna í september og stendur fram að jólum. Vetrarþing hefur verið frá miðjum janúar og fram að páskum. Vorþing hefst eftir páska og er fram í júní.
Hér að neðan er samantekt á þingstörfum þingmanna Framsóknar á þessu haustþingi.

Ágúst Bjarni Garðarsson, alþingismaður,
á sæti í efnahags- og viðskiptanefnd, framtíðarnefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Hefur hann flutt alls 35 ræður á þessu þingi og talað í 3,5 klst.
Ágúst Bjarni hefur lagt fram þrjár tillögur til þingsályktunar, um skattalega hvata vegna launa keppnis- og afreksíþróttafólks, um að koma upp klasa opinberra fyrirtækja og stofnanna og um að kom á fót þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir einhverfa.
- Skattalegir hvatar vegna launa keppnis- og afreksíþróttafólks.
Tillagan gengur út á að fela mennta- og barnamálaráðherra í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðherra að skipa starfshóp sem fái það verkefni að útfæra skattalega hvata til launagreiðanda hvort sem er á opinberum eða almennum markaði vegna launa keppnis- og afreksíþróttafólks. Markmiðið er að keppnis- og afreksíþróttafólk fái greidd laun að hluta eða að fullu frá launagreiðanda þegar það þarf að mæta á æfingar eða íþróttamót og launagreiðandi fái skattaívilnun á móti greiddum launum. - Uppbygging klasa opinberra fyrirtækja og stofnana.
Tillagan gengur út á að fela fjármála- og efnahagsráðherra að skipa starfshóp sem geri tillögu að uppbyggingu klasa opinberra fyrirtækja og stofnana. Markmið starfshópsins verði að koma opinberum fyrirtækjum og stofnunum fyrir á sama stað til þess að ná fram rekstrarlegri hagræðingu og öðrum samlegðaráhrifum. Unnið verði að uppbyggingu slíks klasa í nánu samstarfi við einkaaðila og sveitarfélög. - Þjónustu og þekkingarmiðstöð fyrir einhverfa.
Tillagan gengur út á að fela félags- og vinnumarkaðsráðherra í samvinnu við mennta- og barnamálaráðherra að koma á fót þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir einhverfa. Markmiðið er að kom á fót þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir einhverfa þar sem öll sú þekking sem til er um einhverfu verði dregin saman á einn stað og börn jafnt sem fullorðnir geti fengið þjónustu með þarfir þeirra í huga.
Yfirlit yfir greinarskrif Ágústs Bjarna frá því í haust:
- Venjulegt fólk og afborgun lána við núverandi aðstæður – 10. janúar 2024.
- Samvinnuverkefni um lægri verðbólgu og vexti – 7. janúar 2024.
- Þar sem er vilji, þar er vegur – 8. nóvember 2023.
- Sporin hræða – 26. október 2023.
- Tilbúin að bregðast við breyttum aðstæðum – 21. október 2023.
- Betri tíð í samgöngumálum – 12. október 2023.
- Hagræðing í bankakerfinu hefur ekki skilað sér til fólksins – 2. október 2023.
- Hvers vegna má ekki ræða hagræðingu? – 21. september 2023.

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, alþingismaður,
á sæti í utanríkismálanefnd, allsherjar- og menntamálanefnd og Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2021. Hefur hún flutt alls 14 ræður á þessu þingi og talað í 47,05 mínútur.
Hafdís Hrönn hefur lagt fram frumvarp, um breytingu á lögum um ættleiðingar (ættleiðendur) og þrjár tillögur til þingsályktunar, um bættar vegasamgöngur yfir Hellisheiði, um ókeypis fræðslu og þjálfun foreldra barna með ADHD og um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál.
- Breyting á lögum um ættleiðingar (ættleiðendur).
Í breytingunni felst að einstaklingur sem hefur verið í sambúð eða hjúskap við annað foreldrið en síðar slitið samvistum við það, geti óskað eftir að ættleiða barnið án þess að lagatengsl rofni við hitt foreldrið. Einnig er lögð til heimild til að ættleiða barn eða kjörbarn einstaklings sem hefur fallið frá. Hér er um að ræða að sá sem ættleiðir kemur í stað annars foreldris, þ.e. að barn hafi eftir ættleiðingu lagatengsl við tvo aðila. - Bættar vegasamgöngur yfir Hellisheiði.
Tillagan gengur út á að fela innviðaráðherra að stofna starfshóp sem hafi það að markmiði að greina og koma með tillögur um hvernig bæta megi vegasamgöngur yfir Hellisheiði svo að ekki þurfi að koma til ítrekaðra lokana yfir vetrarmánuði. - Ókeypis fræðsla og þjálfun foreldra barna með ADHD.
Tilllagan gengur út á að fela mennta- og barnamálaráðherra og heilbrigðisráðherra að koma á fót fræðslu og þjálfun foreldra barna, allt að 16 ára, með ADHD strax við greiningu. Fræðslan og námskeiðin standi til boða þeim að kostnaðarlausu. - Upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál.
Tillagan gengur út á að fela dómsmálaráðherra að setja á fót starfshóp sem verði falið að móta tillögur um bætt verklag um miðlun upplýsinga um heimilisofbeldismál á milli kerfa barnaverndaryfirvalda, félagsþjónustu sveitarfélaga, heilbrigðisstofnana, skóla og lögregluembætta. Starfshópnum verði m.a. falið að móta tillögur um rýmri lagaheimildir til miðlunar upplýsinga um heimilisofbeldi milli félagsmálayfirvalda, heilbrigðisyfirvalda, menntamálayfirvalda og lögreglu og koma á fót samstarfsvettvangi stjórnvalda.
Yfirlit yfir greinarskrif Hafdísar Hrannar frá því í haust:
- Venjulegt fólk og afborgun lána við núverandi aðstæður – 10. janúar 2024.
- Aðdáunarverð samstaða – 20. nóvember 2023.
- Hugleiðingar við upphaf nýs löggjafarþings – 15. september 2023.

Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður,
á sæti í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og umhverfis- og samgöngunefnd. Hún hefur flutt alls 26 ræður á þessu þingi og talað í 2 klst.
Halla Signý hefur lagt fram sex tillögur til þingsályktunar, um aukin verðmætasköpun við nýtingu þörunga, um eignarhald í laxeldi, um endurskoðun á laga- og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldis, um endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir, um flutningur höfuðstöðva Rariks ohf. á landsbyggðina og um miðstöð íslenskrar þjóðtrúar á Ströndum.
- Aukin verðmætasköpun við nýtingu þörunga.
Tillagan gengur út á að fela matvælaráðherra í samráði við umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að skipa starfshóp sem hafi það að markmiði að kanna möguleika á aukinni verðmætasköpun við nýtingu þörunga. - Eignarhald í laxeldi.
Tillagan gengur út á að fela matvælaráðherra að skipa starfshóp sem hafi það að markmiði að: a. koma fram með tillögur um hvernig takmarka megi samþjöppun eignarhalds á laxeldisleyfum, b. skoða hvort takmarka eigi eignarhald erlendra aðila á laxeldisleyfum. - Endurskoðun á laga- og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldis.
Tillagan gengur út á að fela innviðaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og matvælaráðherra að skipa starfshóp til þess að yfirfara laga- og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldis með hliðsjón af gjaldtöku af fiskeldi. - Endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir.
Tillagan gengur út á að fela umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að endurskoða lög og reglugerðir sem gilda um leyfisveitingar til uppsetningar smávirkjana með það að markmiði að einfalda umsóknarferli í tengslum við þær. - Flutningur höfuðstöðva Rariks ohf. á landsbyggðina.
Tillagan gengur út á að fela fjármála- og efnahagsráðherra að stefna að flutningi höfuðstöðva Rariks ohf. á landsbyggðina og að kanna á grundvelli hagsmuna félagsins hvar væri hentugast að byggja upp höfuðstöðvarnar og efla starfsstöðvar Rariks um landið. - Miðstöð íslenskrar þjóðtrúar á Ströndum.
Tillagan gengur út á að fela menningar- og viðskiptaráðherra að beita sér fyrir því að stofnuð verði miðstöð íslenskrar þjóðtrúar í Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Ströndum. Stofnun miðstöðvar um íslenska þjóðtrú myndi efla vinnu við grunnrannsóknir í bland við markvissa miðlun með fjölbreyttum leiðum og jafnframt upplýsingaþjónustu á þessu sviði menningararfsins.
Yfirlit yfir greinarskrif Höllu Signýjar frá því í haust:
- Dreifingu fjölpósts hætt – 9. janúar 2024.
- Sterk og snörp – 18. desember 2023.
- Skrúður í Dýrafirði – 25. október 2023.
- Sjókvíeldi, með eða á móti – 9. október 2023.
- Hugum að heyrn – 22. september 2023.
- Áfram Árneshreppur og hvað svo? – 17. ágúst 2023.

Ingibjörg Isaksen, alþingismaður og formaður þingflokks Framsóknar,
á sæti í umhverfis- og samgöngunefnd, Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES (formaður) og þingmannanefnd Íslands og ESB. Hún hefur flutt alls 24 ræður á þessu þingi og talað í 1,5 klst.
Ingibjörg hefur lagt fram frumvarp, um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (vernd gegn uppsögn vegna tæknifrjóvgunar) og þrjár tillögur til þingsályktunar, um aðgerðaáætlun til að efla Sjúkrahúsið á Akureyri, um einföldun á ferli umsókna um sérstök útgjöld og um rannsókn á orsakaferli í kjölfar sjálfsvígs.
- Breyting á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (vernd gegn uppsögn vegna tæknifrjóvgunar).
Í breytingunni felst að það sé skýrt í íslenskum lögum að óheimilt sé að segja starfsmanni upp á því tímabili sem hann undirgengst tæknifrjóvgun og meðferðir þeim tengdar þar sem oft getur verið um að ræða langt og erfitt ferli. Frjósemismeðferðir geta tekið á bæði andlega og líkamlega og starfsmenn sem þurfa að undirgangast slíkar meðferðir hafa ekki sömu möguleika og aðrir til þess að halda fyrir sig áformum sínum um að eignast barn og standa því höllum fæti gagnvart vinnuveitanda sínum á þeim tíma sem þeir freista þess að eignast barn og stofna til fjölskyldu. - Aðgerðaáætlun til að efla Sjúkrahúsið á Akureyri.
Tillagan gengur út á að fela heilbrigðisráðherra að skipa starfshóp sem hafi það hlutverk að móta stefnu og aðgerðaáætlun til að efla Sjúkrahúsið á Akureyri með tilliti til vísinda og mennta. Samhliða því markmiði verði stuðlað að bættri heilbrigðisþjónustu á upptökusvæði sjúkrahússins ásamt því að laða að sérhæft heilbrigðisstarfsfólk. - Einföldun á ferli umsókna um sérstök útgjöld.
Tillagan gengur út á að fela dómsmálaráðherra að flýta þróun rafrænna samskipta og einfalda ferli umsókna hjá sýslumanni um sérstök útgjöld. Áhersla verði lögð á að auðvelda aðgengi milli ríkisaðila að upplýsingum og gögnum vegna umsókna um sérstök útgjöld. - Rannsókn á orsakaferli í kjölfar sjálfsvígs.
Tilllagan gengur út á að fela ríkisstjórninni að skipa starfshóp sem rannsaki afturvirkt mögulegt orsakaferli, áföll, lýðfræðilegar breytur, komur/innlagnir á heilbrigðisstofnanir og breytingar í lífi einstaklinga í undanfara sjálfsvígs. Starfshópurinn skili skýrslu með tölfræði og tillögum að aðgerðum, bæði fyrirbyggjandi og í forvarnarstarfi til framtíðar. Tillagan er sett fram í kjölfar samtala við heilbrigðisstarfsfólk, m.a. við verkefnastjóra sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis.
Yfirlit yfir greinarskrif Ingibjargar frá því í haust:
- Þakkir fyrir liðið ár – 29. desember 2023.
- Loksins kviknað á perunni? – 22. desember 2023.
- Opinská samtöl í átt að betri landbúnaði – 30. nóvember 2023.
- Bjart fram undan í ferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi – 31. október 2023.
- Fæðuöryggi á krossgötum – 25. október 2023.
- Atvinnuöryggi vegna barneigna – 23. október 2023.
- Byggðir í sókn í 10 ár – 10. október 2023.
- Heilbrigðisþjónusta í heimabyggð – 19. september 2023.
- Rafmagnsleysi – 5. september 2023.
- Loftbrú – jákvæðar fjárfestingar í þágu barna – 31. ágúst 2023.
- Afl til allra átta – 16. ágúst 2023.

Jóhann Friðrik Friðriksson, alþingismaður,
á sæti í fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd, Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins og Íslandsdeild NATO-þingsins. Hann hefur flutt alls 42 ræður á þessu þingi og talað í 2 klst.
Jóhann Friðrik hefur lagt fram tvær tillögur til þingsályktunar, um heilsugæslusel í Suðurnesjabæ og um innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf.
- Heilsugæslusel í Suðurnesjabæ.
Tillagan gengur út á að fela heilbrigðisráðherra að klára vinnu við að festa í sessi lýðheilsumat hér á landi. Sérfræðihópur verði skipaður með þátttöku fagráðuneyta, fræðasamfélags og Embættis landlæknis er leggi til leiðir sem tryggja rýni allra stjórnarfrumvarpa sem lögð eru fyrir Alþingi út frá áhrifum þeirra á heilsu þjóðarinnar. - Innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.
Tillagan gengur út á að fela heilbrigðisráðherra að hefja vinnu við að opna heilsugæslusel í Suðurnesjabæ í takt við stefnu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja 2020–2023. Fjárframlög til stofnunarinnar taki mið af því verkefni svo að þjónustan geti hafist sem fyrst.
Yfirlit yfir greinarskrif Jóhanns Friðriks frá því í haust:
- Um vernd mikilvægra innviða – 16. nóvember 2023.

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, alþingismaður,
á sæti í framtíðarnefnd (formaður), velferðarnefnd, atvinnuveganefnd og í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Hún hefur flutt alls 16 ræður á þessu þingi og talað í 43,34 mín.
Lilja Rannveig hefur lagt fram eina tillögu til þingsályktunar, um ókeypis getnaðarvarnir fyrir einstaklinga yngri en 25 ára.
- Ókeypis getnaðarvarnir fyrir einstaklinga yngri en 25 ára.
Tillagan gengur út á að fela heilbrigðisráðherra að gera getnaðarvarnir aðgengilegar einstaklingum undir 25 ára þeim að kostnaðarlausu. Markmiðið er að ungt fólk verði gripið með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á almennt kynheilbrigði og lýðheilsu þjóðarinnar.
Lilja Rannveig var málshefjandi í sérstakri umræðu um slysasleppingar í sjókvíaeldi og var matvælaráðherra til andsvara.
Yfirlit yfir greinarskrif Lilju Rannveigar frá því í haust:
- Gervigreind á þingi – 12. október 2023.

Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður,
á sæti í allsherjar- og menntamálanefnd, velferðarnefnd og Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál (formaður). Hún hefur flutt alls 60 ræður á þessu þingi og talað í 3,9 klst.
Líneik Anna hefur lagt fram þrjár tillögur til þingsályktunar, um fjarnám á háskólastigi, um nýsköpunar-, rannsókna og þróunarsjóð ferðaþjónustunnar og um skráningu og bókhald kolefnisbindingar í landi.
- Fjarnám á háskólastigi.
Tillagan gengur út á að fela háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að skipa starfshóp til að vinna aðgerðaáætlun um frekari eflingu fjarnáms með áherslu á þróun stafrænna kennsluhátta á háskólastigi.
Markmið vinnunnar verði að greina hvernig íslenskir háskólar geti ávallt verið í fremstu röð í notkun stafrænna kennsluhátta og þannig aukið aðgengi að námi og gæði alls náms, hvort sem nemandi stundar námið innan veggja háskóla eða í fjarnámi. - Nýsköpunar-, rannsókna og þróunarsjóður ferðaþjónustunnar.
Tillagan gengur út á að fela háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að undirbúa stofnun nýsköpunar-, rannsókna- og þróunarsjóðs í þágu ferðaþjónustu í samvinnu við menningar- og viðskiptaráðherra.
Markmið þingsályktunartillögunnar er að koma á fót nýsköpunar-, rannsókna- og þróunarsjóði til eflingar ferðaþjónustu. Tilgangur sjóðsins væri að efla íslenska ferðaþjónustu með því að tryggja fjármagn til rannsókna, og hagnýtingar rannsókna, með nýsköpun og þróun. - Skráning og bókhald vegna kolefnisbindingar í landi.
Tillagan gengur út á að fela matvælaráðherra, í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að taka saman upplýsingar og skýra verklag við skráningu og bókhald kolefnisbindingar í landi sem umráðamenn lands þurfa að taka tillit til þegar þeir selja kolefniseiningar eða nýta þær til kolefnisjöfnunar í eigin rekstri.
Yfirlit yfir greinarskrif Líneikar Önnu frá því í haust:
- Dreifingu fjölpósts hætt – 9. janúar 2024.
- Aðgangur að námi hefur áhrif á búsetufrelsi – 1. nóvember 2023.
- Virkjum allt unga fólkið – 16. október 2023.

Stefán Vagn Stefánsson, alþingismaður,
á sæti í fjárlaganefnd (formaður). Hann hefur flutt alls 46 ræður á þessu þingi og talað í 3 klst.
Stefán Vagn hefur lagt fram tvær tillögur til þingsályktunar, um stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi og um Tröllaskagagöng milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar.
- Stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi.
Tillagan gengur út á að fela ríkisstjórninni að taka til frumathugunar stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi. Litið verði við þessa frumathugun til starfsemi Equinor í Noregi, fyrrum Statoil.

Þórarinn Ingi Pétursson, alþingismaður,
á sæti í atvinnuveganefnd (formaður) og Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins. Hann hefur flutt alls 32 ræður á þessu þingi og talað í 2,7 klst.
Þórarinn Ingi hefur lagt fram frumvarp, um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 (afurðastöðvar í kjötiðnaði) og fimm tillögur til þingsályktunar, um fyrirkomulag matvælaframleiðslu til neyðarbirgða, um heildarendurskoðun á þjónustu og vaktakerfi dýralækna, um leyfi til veiða á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitímabils, um sérstaka tímabundna ívilnun við endurgreiðslu námslána til lánþega í dýralæknanámi og um þjóðarátak í landgræðslu og skógrækt.
- Búvörulög (afurðastöðvar í kjötiðnaði).
Í breytingunni felst að þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga er afurðastöðvum í kjötiðnaði heimilt að sameinast, gera með sér samkomulag um verkaskiptingu og hafa með sér annars konar samstarf til þess að halda niðri kostnaði við framleiðslu, geymslu og dreifingu kjötvara. Leggja skal upplýsingar um slíka samninga og samstarf fyrir ráðherra til upplýsingar. Markmiðið með frumvarpinu er að veita innlendum kjötiðnaði tækifæri til að hagræða og til að bregðast við ört vaxandi samkeppni að utan. Í alþjóðlegum samanburði eru innlendar afurðastöðvar í kjötiðnaði örsmáar og því ekki samkeppnishæfar við afurðastöðvar á erlendum mörkuðum sem eru mun stærri og hagkvæmari rekstrareiningar. Innlendur kjötiðnaður er engu síður í vaxandi samkeppni við afurðir af erlendum mörkuðum. Afurðastöðvum í kjötiðnaði er mjög óhægt um vik að sameinast þar sem það er í andstöðu við ákvæði samkeppnislaga. Það skilar sér í of háum rekstrarkostnaði, háu verði til neytenda og lágu afurðaverði til bænda. Miðar frumvarpið að því að breyta því þannig að unnt sé að hafa yfirsýn yfir birgðastöðu og afurðastöðvar geti hagað framleiðslu sinni í samræmi við þarfir markaðarins. - Fyrirkomulag matvælaframleiðslu til neyðarbirgða.
Tilllagan gengur út á að fela matvælaráðherra að útfæra fyrirkomulag vegna neyðarbirgða landbúnaðarafurða sem hægt er að framleiða hér á landi við endurskoðun búvörusamninga árið 2023 þar sem markmiðið yrði að tryggja lágmarksbirgðir af landbúnaðarafurðum í landinu hverju sinni. - Heildarendurskoðun á vaktakerfi dýralækna.
Tilllagan gengur út á að fela matvælaráðherra að setja af stað vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu og vaktakerfi dýralækna. - Leyfi til að veiða álft o.fl. utan hefðbundins veiðitíma.
Tilllagan gengur út á að fela umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að útbúa tillögur um heimild til tímabundinna og skilyrtra veiða á eftirfarandi tegundum fugla utan hefðbundins veiðitíma þeirra.
Leyfin verði veitt á þeim svæðum þar sem þörf er talin á aðgerðum vegna verulegs ágangs fugla á tún og kornakra.
Ráðherra geri einnig stjórnunar- og verndaráætlun fyrir álftir og gæsastofna á Íslandi í samvinnu við Umhverfisstofnun og hagsmunaaðila. - Sérstök tímabundin ívilnun við endurgreiðslu námslána til lánþega í dýralæknanámi.
Tilllagan gengur út á að fela háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í samráði við matvælaráðherra og innviðaráðherra, að vinna skýrslu með aðkomu Sambands íslenskra sveitarfélaga og Byggðastofnunar um sérstaka tímabundna ívilnun við endurgreiðslu námslána til lánþega í dýralæknanámi. - Þjóðarátak í landgræðslu.
Tilllagan gengur út á að fela umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í samráði við matvælaráðherra að koma fyrir lok árs 2023 á samstarfi stjórnvalda, bænda, Landgræðslunnar, atvinnulífs og almennings sem miði að því að auka þátttöku almennings í kolefnisbindingu með landgræðslu og hefja þar með þjóðarátak í landgræðslu.
Yfirlit yfir greinarskrif Þórarins Inga frá því í haust:
- Orkuuppbygging er nauðsynleg til framtíðar – 29. desember 2023.
- Opinská samtöl í átt að betri landbúnaði – 30. nóvember 2023.
- Líf íslensk landbúnaðar hangir á bláþræði – 17. september 2023.

08/01/2024
Samvinnuverkefni um lægri verðbólgu og vextiJákvæður tónn var sleginn í kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins og stærstu stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði þegar sameiginleg yfirlýsing var send út nú rétt fyrir áramót. Í yfirlýsingunni er sérstaklega tiltekið mikilvægi þess að semja til lengri tíma svo auka megi fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu. Þessi yfirlýsing er skynsamlegt innlegg í okkar mikilvægasta verkefni sem er að ná niður verðbólgu og háum vöxtum og hefur hvarvetna fengið jákvæð viðbrögð. Mesta kjarabótin fyrir fólk og fyrirtæki í landinu er óumdeilt að ná niður vöxtum.
Það er svo sannarlega ánægjulegt að finna hversu rík samstaða er á meðal aðila vinnumarkaðsins í þessu stóra verkefni því hér er enginn eyland ef svo má segja, heldur þurfa allir aðilar að taka þátt, allt samfélagið og þá gildir einu hvort horft sé til aðildarfyrirtækja SA, ríkis eða sveitarfélaga; allir þurfa að ganga í takt og sameinast um þetta mikilvæga verkefni svo vel takist til. Þetta finna allir og með jákvæðu viðhorfi til verkefnisins eru auknar líkur á að markmið okkar takist. Haldi þessi taktur áfram er nokkuð víst að við munum ná tökum á vöxtum og verðbólgu á þessu ári.
Hvað þarf til?
Það er til mikils að vinna að lenda farsælum langtímakjarasamningum. Þó svo að ríkisstjórnin eigi ekki formlega aðkomu að kjarasamningsgerðinni hafa aðilar vinnumarkaðarins kallað eftir því að stjórnvöld liðki fyrir gerð kjarasamninga. Verkalýðshreyfingin krefst þess að ríkið auki útgjöld sín til barna-, húsnæðis- og vaxtabóta um 20-25 milljarða króna. Stjórnvöld hafa líkt og áður ríkan vilja til þess að koma að kjaraviðræðum með einhverjum hætti. Horfa má til þess að ríkisstjórnin hefur nú þegar komið inn með aðgerðir á húsnæðismarkaði þegar kemur að almennum íbúðum og veitingu hlutdeildarlána til kaupa á hagkvæmu húsnæði, en aðra hópa þarf nú að taka inn. Stjórnvöld hafa markvisst verið að auka framboð af húsnæði fyrir tekju- og eignaminni fjölskyldur og einstaklinga ásamt því að hækka húsaleigubætur. Þá hafa barnabætur hækkað og unnið er að fyrirkomulagi á greiðslu samtíma barnabóta.
Þessu til viðbótar er nauðsyn á samstilltu átaki þegar kemur að verð- og gjaldskrárhækkunum í samfélaginu en þar hefur ríkið stigið nokkuð varfærin skref á meðan sveitarfélögin mörg hver stigu stærri og verri skref. Það er þó jákvætt að heyra síðustu daga forystufólk hinna ýmsu sveitarfélaga taka jákvætt í þátttöku í þessu mikilvæga samvinnuverkefni og boða gjaldskrárlækkanir sem innlegg í gerð skynsamlegra langtímakjarasamninga. Gerum þetta saman, það er allra hagur.
Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknar í Suðvesturkjördæmi og 1. varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Greinin birtist fyrst á visir.is 7. janúar 2024.

06/01/2024
Horfur í heimsbúskapnum 2024 og íslenska hagkerfiðHeimsbúskapurinn stendur á mikilvægum tímamótum um þessar mundir eftir talsverðan darraðardans undanfarin fjögur ár. Miklar vendingar hafa orðið í alþjóðahagkerfinu á þeim tíma sem á einn eða annan hátt hafa snert öll ríki í heiminum. Heimsfaraldur, hnökrar í aðfangakeðjum, auknar hömlur og viðskiptahindranir í alþjóðaviðskiptum ásamt stríðsátökum hafa þannig framkallað stórar áskoranir fyrir stjórn efnahagsmála og enn er ekki séð fyrir endann á þeim. Þrátt fyrir þetta eru góð teikn á lofti með hækkandi sól.
Jákvæð þróun í heimsbúskapnum …
Það er ánægjulegt að sjá vísbendingar um að áhrif fyrrnefndra atburða séu í rénun. Þannig hefur verg heimsframleiðsla tekið betur við sér en búist var við og mældist á þriðja ársfjórðungi 2023 rúmlega 9% meiri en fyrir heimsfaraldur, samkvæmt alþjóðlegri samantekt Fitch Ratings.
Það er einkum þrennt sem skýrir þessa þróun. Í fyrsta lagi hefur hin alþjóðlega aðfangakeðja náð betra jafnvægi eftir heimsfaraldurinn, ásamt því að fyrirtæki í Evrópu hafa getað brugðist betur við verðhækkunum á orku frá Rússlandi en leit út fyrir í fyrstu.
Í öðru lagi hefur verðbólga hjaðnað hraðar en fyrstu spár bentu til. Verðbólga á heimsvísu var 8,9% í fyrra og spáð er að hún verði komin niður í 5,1% í árslok 2024. Hrávara hefur verið að lækka en óstöðugt orkuverð heldur áfram að vera áskorun. Verðbólga í matvælum, allt frá hveiti til eldunarolíu, hefur hjaðnað.
Í þriðja lagi hafa væntingar markaðsaðila verið miklar um að alþjóðlegir vextir fari að lækka, sem myndi óneitanlega létta undir með heimilum og fyrirtækjum. Þetta er að gerast þrátt fyrir fall svæðisbundinna banka í Bandaríkjunum og fall Credit Suisse sem vakti áhyggjur um fjármálastöðugleika. Á undanförnum vikum hafa fjármálamarkaðir tekið verulega við sér. Þannig voru helstu vísitölur nálægt eða náðu nýjum methæðum í lok árs 2023 og birtist það jafnframt í sterkri stöðu skuldabréfamarkaða.
Í Bandaríkjunum eru allar líkur á að hagkerfið nái mjúkri lendingu á þessu ári. Þannig tók bandaríska hagkerfið kröftuglega við sér og virðist lítið lát þar á þrátt fyrir umtalsverðar vaxtahækkanir, en vinnumarkaður og eftirspurn í landinu fór fram úr væntingum. Þannig voru hagtölur fyrir þriðja ársfjórðung vestanhafs mun sterkari en flestir markaðsaðilar gerðu var ráð fyrir, en um mitt síðasta ár var það einróma skoðun sérfræðinga að vaxtahækkanir myndu leiða til stöðnunar á þessu ári.
Í Evrópu hefur vöxturinn verið minni, en þar setti orkukreppa strik í reikninginn. Þar hefur þó ríkt nokkur uppgangur þrátt fyrir vaxtahækkanir. Hins vegar hafa nýlegar tölur bent til stöðnunar eða samdráttar m.a. í Þýskalandi og er það áhyggjuefni fyrir evrusvæðið. Nýmarkaðsríki og fátækari lönd virðast koma betur undan áföllum síðustu ára en nokkur þorði að vona, en búist var við greiðsluerfiðleikum í kjölfar faraldursins og vaxtahækkana í Bandaríkjunum.
… en blikur halda áfram að vera á lofti
Alþjóðlega efnahagskerfið stendur engu að síður á mikilvægum tímamótum. Heimsbúskapurinn mótast af samspili stjórnmálalegra og efnahagslegra áhrifa. Síðustu misseri hafa einkennst af spennu á milli stórvelda og alvarlegum svæðisbundnum átökum í Úkraínu, Mið-Austurlöndum og Afríku. Í samskiptum stórvelda skapar umrót á bandalögum áhættu fyrir heimsbúskapinn. Meðal helstu svæða sem horft er til eru Austur-Evrópa, Mið-Austurlönd og Suður-Kínahaf, þar sem atburðir á þessum svæðum gætu mögulega raskað aðfangakeðjum á ný, haft áhrif á viðskiptastefnu og grafið undan efnahagslegum stöðugleika í heimsbúskapnum.
Hagvöxtur í Kína hefur verið undir væntingum eftir losun covid-hafta og kunna þar að vera á ferðinni kerfislæg vandamál eftir mikinn vöxt undanfarna áratugi. Það er áhyggjuefni fyrir heimsbúskapinn þar sem Kína er með stærstu ríkjum. Á sama tíma þarf að fást við lýðfræðilegar breytingar í stórum löndum þar sem aldur íbúa fer vaxandi. Á síðasta ári spratt fjórða iðnbyltingin fram í öllu sínu veldi meðal annars með gervigreindinni. Í því felast gríðarleg tækifæri en að sama skapi áskoranir sem ríki heims verða að ná utan um í sameiningu. Þessu tengt er staða fjölmiðla áfram erfið og hætta á að upplýsingaóreiða kunni að hafa áhrif á framvindu stjórnmála og lýðræðis.
Síðustu vikur hafði ríkt bjartsýni um að verðbólga væri í rénun og að vextir yrðu lækkaðir hratt beggja vegna Atlantsála sem eins og áður segir mátti greina á miklum uppgangi skulda- og hlutabréfamarkaða. Á allra síðustu dögum hafa vonir um hraða lækkun vaxta hins vegar dvínað og má búast við því að ekki hafi verið full innstæða fyrir þeirri bjartsýni sem ríkt hefur á mörkuðum og lengri tíma gæti tekið að ná verðbólgunni í markmið en markaðsaðilar hafa reiknað með, og gæti það sett strik í reikninginn varðandi hagvöxt á þessu ári. Stjórnvöld og seðlabankar standa því enn frammi fyrir þeirri áskorun að takast á við að skapa jafnvægi í einstökum löndum í kjölfar faraldursins.
Þróunin hérlendis í okkar eigin höndum
Ísland hefur ekki farið varhluta af fyrrnefndum darraðardansi í heimsbúskapnum. Hér hefur há verðbólga hins vegar reynst þrálátari en í löndunum í kringum okkur, þó svo að hún hafi framan af mælst sú næstlægsta í Evrópu. Hefur þetta meðal annars birst okkur í hækkandi stýrivöxtum sem eru helsta stjórntæki Seðlabanka Íslands gagnvart verðbólgu.
Á árinu 2023 slógu hækkandi stýrivextir á innlenda eftirspurn á sama og mikill kraftur var í þjónustuútflutningi, sem skýrðist aðallega af umsvifum í ferðaþjónustu. Samdráttur varð í einkaneyslu á þriðja ársfjórðungi eftir nokkuð kröftugan vöxt ársfjórðungana þar á undan. Spáð er að jafnvægi náist í viðskiptum við útlönd sem sagan kennir okkur að sé mikilvægt fyrir þjóðarbúið. Það skiptir miklu máli að útflutningsgreinarnar verði ekki fyrir frekari áföllum, en jarðhræringar á Reykjanesskaga fela vissulega í sér áskorun. Gríðarlegar útflutningstekjur eru skapaðar í Grindavík og nágrenni! Hagvaxtarhorfur samkvæmt spám eru ásættanlegar eftir mikinn vöxt 2022 og 2023. Brýnasta hagsmunamál þjóðfélagsins er að ná niður verðbólgu og vöxtum en það er mesta kjarabótin fyrir fólk og fyrirtæki í landinu. Þó svo að Ísland sé ekki ónæmt eyríki í alþjóðahagkerfinu hvíla örlög verðbólguþróunarinnar nú að stórum hluta í okkar eigin höndum. Þar mun ábyrgð, raunsæi og góð samvinna ríkis og sveitarfélaga, Seðlabanka Íslands og aðila vinnumarkaðarins ráða úrslitum.
Ríkisstjórnin hefur kynnt aðhaldssamt fjárlagafrumvarp, þar sem Stjórnarráðið tekur á sig hvað mest aðhald. Það sama má segja um launahækkun æðstu embættismanna ríkisins sem lækkuð var niður í 2,5%, sem kallast á við verðbólgumarkmið Seðlabankans og gjaldskrárhækkanir takmarkaðar við 3,5%. Með þessu vilja stjórnvöld leiða með góðu fordæmi. Hagfelldir kjarasamningar til langs tíma munu ráða miklu um þróun verðbólgunnar.
Það gleður mig að sjá þá breiðu samstöðu og þann jákvæða tón sem kveður við í samningaviðræðum aðila vinnumarkaðarins, enda er mikið í húfi fyrir okkur öll. Sé rétt haldið á spilunum er ég bjartsýn á að við munum sjá verðbólgu og vexti lækka talsvert á árinu 2024, sem mun gera okkur betur í stakk búin til þess að halda áfram þeirri lífskjarasókn sem við viljum sjá í landinu.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknar.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 6. janúar 2024.

05/01/2024
Við höfum öll þörf fyrir að tjá okkurTáknmál er talað af fólki um víða veröld og er mál þeirra sem heyra illa eða ekkert og geta þess vegna ekki átt í samskiptum með hljóðum.
Táknmál er ekki alþjóðlegt heldur eru mörg táknmal til í heiminum. Þau eru mjög lifandi og hafa þróast hvert og eitt með sínum hætti rétt eins og raddmál hafa gert.
Íslenskt táknmál er fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta og barna þeirra. Þannig er íslenskt táknmál er eina hefðbundna minnihlutamálið á Íslandi og eina málið sem á sér lagalega stöðu utan íslenskrar tungu, líkt og kemur fram í lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls. Á Íslandi er orðið döff notað um heyrnarlaust fólk sem talar táknmál, en það að vera döff er það að er að líta á táknmál sem sitt fyrsta mál og tilheyra samfélagi heyrnarlausra.
Það er skylda íslenskra stjórnvalda að hlúa að íslensku táknmáli og styðja við það, en hver sem hefur þörf fyrir táknmál skal eiga þess kost að læra og nota íslenskt táknmál, jafnskjótt sem máltaka hefst eða frá þeim tíma sem heyrnarleysi eða heyrnarskerðing hefur greinst. Sama rétt eiga nánustu aðstandendur.
Í gær kynnti ég þingsályktun og aðgerðaáætlun í málstefnu íslensks táknmáls sem unnið hefur verið að í ráðuneyti menningarmála og boðuð var í þingsályktun frá árinu 2019 um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi. Málstefnan, sem er sú fyrsta fyrir íslenskt táknmál, tekur til sex meginstoða sem skipta máli fyrir málstefnu minnihlutamálsins og áhersluþætti innan hverrar meginstoðar, en þær eru: máltaka táknmálsbarna, rannsóknir og varðveisla, jákvætt viðhorf, fjölgun umdæma íslensks táknmáls og lagaumhverfi. Meðfylgjandi aðgerðaáætlun inniheldur aðgerðir sem miðast við að koma þurfi til framkvæmda á næstu þremur árum og hafa stjórnvöld nú þegar tryggt fjármuni til að fylgja þeirri áherslu eftir.
Ég er stolt af þessum áfanga og þakklát öllum þeim sem tóku þátt í vinnunni, en í starfshóp sem vann drög að málstefnu íslensks táknmáls áttu sæti áttu sæti fulltrúar Málnefndar um íslenskt táknmál, Félags heyrnarlausra og Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra sem áttu í samráði við táknmálssamfélagið. Íslenskt táknmál er órjúfanlegur hluti af samfélaginu okkar enda höfum við öll þörf fyrir að eiga í samskiptum og tjá okkur um lífið og tilveruna, hvort sem um er að ræða heyrnarlausa eða heyrandi. Ég hlakka til að vinna enn frekar að því að efla íslenskt táknmál og tryggja stöðu þess til framtíðar.
Hér má finna táknmálstúlkun á þingsályktun um málstefnu íslensks táknmáls 2024-2027 og aðgerðaáætlun henni tengdri.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknar
Greinin birtist fyrst á visir.is 5. janúar 2024.

30/12/2023
Jarðvegur fyrir framfarirKæri lesandi.
Í hillu norður í Reykjadal rakst ég á kvæði eftir Huldu, Unni Benediktsdóttur Bjarklind. Kvæðið heitir Mold og birtist í bókinni Segðu mér að sunnan sem kom út árið 1920. Þetta er afar fallegt kvæði, lofsöngur um mold og líf, sem á vel við að rifja upp á þessum kaldasta tíma ársins þegar sól er byrjuð að hækka á lofti á ný.
Þú dökka, raka, mjúka mold,
sem mildi sólar hefur þítt.
Hve ann ég þér, hve óska ég mér,
að um þig streymi sumar nýtt.
Við þekkjum öll mikilvægi moldarinnar, ekki síst við sem búum í sveitum landsins. Moldin er tákn mildi og umhyggju og um leið tákn um vöxt.
Öflugt starf að umbótum
Hlutverk stjórnvalda er ekki síst fólgið í því að skapa frjóan jarðveg til að upp fólk geti nýtt hæfileika sína til að skapa sér og samfélaginu verðmæti. Þau verðmæti geta bæði verið veraldleg og andleg. Oft eru þau hvort tveggja eins og við sjáum á þeirri miklu sókn sem íslensk list er í, bæði hér á landi og erlendis. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra hefur lagt mikla áherslu á að skapa list og menningu góða umgjörð auk þess sem hún hefur unnið að framtíðarstefnu fyrir ferðaþjónustu og undirstrikað mikilvægi neytendamála. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisherra hefur lagt áherslu á að styrkja heilbrigðiskerfið og meðal annars náð samningum við sérfræðilækna og með aðstoð einkaframtaksins náð að lina þjáningar þeirra sem beðið hafa eftir liðskiptum og aðgerðum vegna endómetríósu. Ásmundur Einar Daðson hefur haldið áfram góðum störfum sínum í þágu barna auk þess að hlúa að íþróttastarfi, ekki síst með nýrri afreksstefnu. Þær umbætur sem orðið hafa á vakt þessara dugmiklu ráðherra eiga það sameiginlegt að skapa aðstæður til aukins vaxtar, aðstæður sem gera fólki kleift að springa út.
Nýtt ráðuneyti sannar sig
Innviðaráðuneytið á tveggja ára afmæli um næstu mánaðamót. Með nýju ráðuneyti voru sameinuð undir einum hatti svið samgangna, sveitarstjórnarmála, byggðamála, húsnæðismála og skipulagsmála. Með þessu viðamikla ráðuneyti hefur náðst betri sýn yfir þessa mikilvægu málaflokka og síðast en ekki síst meiri samhæfing. Fyrr í haust lagði ég fyrir þingið stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga sem hefur verið samþykkt. Auk þess lagði ég fyrir þingið samgönguáætlun, landsskipulagsstefnu og húsnæðisstefnu sem allar eru til umfjöllunar í nefndum þingsins. Það sem af er þingi hafa sex frumvörp innviðaráðherra orðið að lögum, þar á meðal lög sem hafa í för með sér nauðsynlega úrbætur í brunavörnum og lög um hagkvæmar íbúðir.
Hlúa þarf að landbúnaði
Landbúnaður er ekki aðeins mikilvæg atvinnugrein fyrir okkur á Íslandi. Landbúnaður er hluti af menningu okkar og varðveitir stofna búfjár og gróðurs og er samtvinnaður menningu okkar frá landnámi. Landbúnaðurinn hefur átt undir högg að sækja vegna aukinnar samkeppni við ódýrar afurðir sem fluttar eru hingað um langan veg frá löndum sem búa oft við lægri laun. Óhagstætt vaxtaumhverfi sem aukin verðbólga hefur leitt af sér hefur einnig lagst þungt á bændur. Ungir bændur hófu upp öfluga raust sína á haustmánuðum til að benda á þessar erfiðu aðstæður. Ríkisstjórnin brást við með aðgerðum sem leggja áherslu á nýliðun og kynslóðaskipti með aðstoð við yngri bændur. Það er þó ekki nóg. Við þurfum að horfa til framtíðar og rífa greinina upp úr hjólförum sem mótuð eru af afskiptaleysi og skort á skilningi á ákveðnum sviðum í íslensku samfélagi.
Lægri vextir eru stórt hagsmunamál
Árið 2023 hefur ekki verið dans á rósum. Við höfum þurft að takast á við verðbólgu sem hefur í för með sér hærri vexti sem leggjast illa á heimili og fyrirtæki. Við sjáum þó að aðgerðir stjórnvalda eru farin að hafa áhrif nú í lok árs. Ábyrg fjárlög skipta þar miklu máli. Einnig er ánægjulegt að sjá að aðilar vinnumarkaðarins ganga fram með það að markmiði að verðbólga lækki. Það er ljóst að stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja er að vextir lækki og gott að náðst hafi samstaða þar um. Ríkisstjórnin mun leggja sitt a f mörkum til að skapa umgjörð sem stuðlar að skynsamlegum kjarasamningum en þó leggja áherslu á að kjarasamningar eru á ábyrgð samningsaðila.
Við stöndum með Grindvíkingum
Þær hamfarir sem dunið hafa yfir í næsta nágrenni Grindavíkur eru þó sá atburður sem er mér efst í huga á þeim tímamótum sem áramót eru. Enginn er ósnortinn af þeirri hugprýði og því æðruleysi sem Grindvíkingar hafa sýnt við erfiðar aðstæður. Það er erfitt að gera sér í hugarlund tilfinninguna að þurfa að yfirgefa heimili sitt um lengri tíma vegna umbrota í náttúrunni. Oft er sagt að óvissan sé versti óvinurinn og það er svo sannarlega satt þegar horft er til Grindavíkur. Vísindin og okkar öfluga fólk sem þau stunda eru okkur mikil stoð þegar kemur að hamförum eins og þeim sem dunið hafa yfir en meira að segja þau geta ekki sagt með fullri vissu til um hvað framtíðin ber í skauti sér.
Innviðaráðuneytið hefur lagt sitt af mörkum til að tryggja húsnæði fyrir sem flesta Grindvíkinga, meðal annars með kaupum Bríetar leigufélags á 80 íbúðum sem grindvískar fjölskyldur hafa nú þegar fengið lyklana að eða fá á næstu dögum. Samvinna stjórnarráðsins við yfirvöld í Grindavík hefur verið þétt frá byrjun og verður það áfram svo lengi sem þörf er á.
Fimmtíu ár eru síðan íbúar heils byggðarlags þurftu að yfirgefa heimili sín. Við þessar aðstæður er skylda okkar sem samfélags að standa þétt við bakið á Grindvíkingum. Vonandi getum við brátt séð lengra fram í tímann svo daglegt líf lifni að nýju í Grindavík, þessu öfluga bæjarfélagi.
Þörf fyrir græna uppbyggingu
Náttúran getur verið grimm en hún er einnig gjöful. Það vitum við á Íslandi sem byggt höfum velsæld okkar á gæðum náttúrunnar, hvort sem það er í landbúnaði, sjávarútvegi, ferðaþjónustu eða með orkunni sem veitir heimilum okkar yl og ljós. Við gerum okkur betur ljós fyrir mikilvægi orkuvinnslu þegar hætta steðjar að. Reistir hafa verið varnargarðar um Svartsengi vegna þeirrar mikilvægu starfsemi þar sem fer fram og tryggir Reykjanesinu öllu hita og birtu. Ísland væri ansi fátækt og mannlífið fátæklegt ef ekki væri fyrir framsýni fyrri kynslóða með raf- og hitaveituvæðingu. Við stöndum framar flestum þjóðum þegar kemur að grænni orku. Það er þó ljóst að ráðast verður í skynsamlega virkjanakosti til að viðhalda lífsgæðum á Íslandi, virkjanakosti sem ganga ekki um of á stórkostlega náttúru okkar. Ábyrg uppbygging verður að eiga sér stað á næstu árum.
Kæri lesandi.
Síðustu áramót voru yfirskyggð af stríði í Úkraínu. Það stríð geisar enn. Ári síðar kveðjum við árið 2023 í skugga annars skelfilegs stríðs fyrir botni Miðjarðarhafs. Hjörtu okkar Íslendinga hafa lengið fundið til með Palestínumönnum. Steingrímur Hermannsson hneykslaði einhverja ráðamenn á Vesturlöndum þegar hann átti fund með Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, fyrir margt löngu en vakti með því athygli á aðstæðum þeirra. Ísland varð síðar eitt fyrsta ríkið til að viðurkenna sjálfstætt ríki Palestínu. Við hljótum öll að sameinast í bæn um frið.
Við sem búum á Íslandi getum verið þakklát fyrir friðinn sem ríkir á Íslandi. Þakklát fyrir þá samheldni sem einkennir okkur þegar á bjátar. Þakklát fyrir þann jarðveg sem við erum sprottin upp úr. Ég óska ykkur öllum gleðilegs árs og farsældar á árinu 2024 og lýk þessum pistli á orðum Huldu:
Þú byrgir hjörtu, hljóð og köld,
við hjarta þitt, sem fallin strá.
Þér fólu eilíf, óþekkt völd
að endurskapa jarðlíf smá.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 30. desember 2023.

29/12/2023
Kvennakraftur í FramsóknÞað er ánægjulegt að líta yfir árið sem senn er að líða og sjá og finna hve hópur Kvenna í Framsókn er vel skipaður og öflugur. Fjölbreytt fræðslukvöld og viðburðir á vegum félagsins á árinu 2023 hafa verið vel sóttir, gagnlegir og samveran gefandi. Mikil virkni og kraftur er meðal Kvenna í Framsókn og aldrei hafa fleiri konur leitt lista flokksins og setið í sveitarstjórnum á landsvísu. Þennan góða árangur kvenna sem náðst hefur má þakka góðri liðsheild og trausti. Við vitum að framlag okkar og frammistaða muni leiða til árangurs fyrir heildina og það skiptir höfuðmáli.
Sameiginleg markmið
Hvati kvenna til að starfa innan Framsóknar er sprottinn af áhuga og eldmóð fyrir velferð fólks, betri lífskjörum og öflugu atvinnulífi í samfélögum um allt land. Konur í Framsókn starfa á ólíkum vettvangi um allt land og það er ánægjulegt að verða vitni að því hversu vakandi þær eru gagnvart ólíkum hugmyndum og sjónarmiðum og skilja mikilvægi þess að geta sett sig í spor annara. Við hlustum og vinnum málin áfram með það að markmiði að gera gott samfélag betra fyrir alla. Öll höfum við eitthvað fram að færa og þannig höfum við í gegnum tíðina náð sameiginlegum markmiðum og skapað traust. Getan til þess að hlusta og sjá að við erum ekki einsleitur hópur er gríðarlega mikilvægur þáttur í stjórnmálastarfi.
Hlutdeild kvenna í stjórnmálum er enn aðeins um 20% á heimsvísu og örfáir þjóðhöfðingjar heims eru konur. Þrátt fyrir að umhverfi stjórnmálanna sé almennt talið karllægt þá höfum við náð ákveðnum árangri með að brjótast úr því umhverfi hér á landi og mikilvægt er að okkur fari ekki aftur í þeim efnum. Því skiptir máli að raddir kvenna heyrist alla daga. Þá er reynsla kvenna úr stjórnmálum jafnframt besti vitnisburðurinn um stöðuna hér á landi og hvatning og innblástur fyrir næstu kynslóðir kvenna. Sérhver kona sem eitt sinn var stúlka kannast við að hafa speglaði sig í kvenfyrirmyndum. Það eru fyrirmyndirnar sem geta skipt sköpum þegar stígið er inn á svið stjórnmálanna. Heilsteyptar fyrirmyndir með gott siðferði og dómgreind skapa jarðveg fyrir komandi kynslóðir kvenna.
Það búa ekki allir við sömu forréttindi
Einn eftirminnilegasti dagur ársin var 24. október s.l. þegar um hundraðþúsund manns mættu á Arnarhól og samkomur um allt land til þess að taka þátt í Kvennaverkfallsdeginum. Þar varð þjóðinn og heimurinn vitni að stórkostlegri samstöðu fyrir réttlátu samfélagi á baráttudegi fyrir betra samfélagi. Undirrituð telur afar mikilvægt að fólk í forréttindastöðu gleymi ekki mikilvægi baráttunnar því henni er ekki enn lokið. Enn eru konur sem þurfa að sæta óréttlæti, kynbundnu ofbeldi og smánun á hverjum degi. Líkt og kom fram í kynningu fyrir Kvennaverkfallið þá er staðan enn að „Þrátt fyrir áratugalanga baráttu búum við enn í samfélagi þar sem langlífasti og útbreiddasti faraldurinn sem við eigum við að etja er kynbundið ofbeldi, ásamt því að framlag kvenna til samfélagsins er gróflega vanmetið “ Hjörtu okkar slógu í takt þann 24. október 2023. Þvílík stemmning og baráttuandi, höldum áfram að gera betur.
Hvetjum konur til þátttöku í stjórnmálum
Síðust ár hefur þeim konum fjölgað sem hafa gengið til liðs við Framsókn. Konur sem hafa skynjað samvinnukraftinn, viljann og framtakssemina sem einkennir Framsókn. Konur sem hafa upplifað og vita að rödd þeirra hefur áhrif. Konur í Framsókn takk fyrir ykkar framlag, samtölin, innblásturinn og samveruna á árinu sem er að líða. Ég óska ykkur öllum farsældar á komandi ári og hlakka til að ganga inn í nýtt ár með Framsókn.
Guðveig Lind Eyglóardóttir, formaður Kvenna í Framsókn.

29/12/2023
Orkuuppbygging er nauðsynleg til framtíðar„Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka“ segir í texta Valdimars Briem. Um áramót höfum við tilhneigingu til þess að horfa til baka yfir farinn veg og velta fyrir okkur hvernig við höfum staðið okkur í leik og starfi. Á sama tíma horfum við fram á við á þær áskoranir sem blasa við okkur. Lífið líður áfram og það verður aldrei þannig að öllum verkefnum sé lokið. Þessi misserin eru áskoranir í orkumálum þjóðarinnar eitt af þeim stóru verkefnum sem brýn þörf er á að leysa. Það er afar mikilvægt að við sem störfum á Alþingi náum gifturíkri niðurstöðu í þeim málum á komandi mánuðum.
Eftirspurn umfram framboð
Einn af helstu kostum þess að búa á Íslandi er gott aðgengi að orkuauðlindinni og höfum við borið gæfu til þess að vera framsýn í framleiðslu á endurnýjanlegri orku. Öll framtíðarhagkerfi eru háð góðu aðgengi að orku. Íslensk heimili og atvinnulíf hafa getað treyst á gott og hagkvæmt aðgengi orku og hefur það verið lykillinn að góðum lífskjörum á Íslandi.
Forstjóri Landsvirkjunar skrifaði grein í Morgunblaðið þann 27.12. 2023 með yfirskriftinni „Rándýr leki fyrir (næstum) alla“. Í greininni er farið vel yfir þær áskoranir sem blasa við orkuvinnslufyrirtækjum og neytendum stórum sem smáum, á markaði þar sem eftirspurn eftir grænni orku vex en því er ekki að heilsa hvað framboð varðar. Í greininni kemur m.a. fram að pantanir á orku fyrir heildsölumarkaðinn (þ.e. fyrir heimili og smærri fyrirtæki) á næsta ári séu 25% meiri en sem nemur almennum vexti í samfélaginu og vekur það spurningar um hvert orkan sé að fara.
Almenningur og smærri fyrirtæki á Íslandi hafa hingað til búið við þann munað að hafa haft óheftan aðgang að grænni orku á hóflegu verði. En nú eru blikur á lofti. Með vaxandi eftirspurn stærri notenda sem eru tilbúnir að greiða mun hærra verð fyrir raforku en gengur og gerist er hætta á að breytingar verði á raforkumarkaðnum til framtíðar, það er að segja ef ekkert verður að gert. Með óbreyttu ástandi skapast hætta á að heimili í landinu þurfi að fara að greiða mun hærra verð fyrir raforku en við höfum vanist hingað til. Ég hef litla trú á því að það sé pólitískur vilji í landinu að stefna á þá leið að hækka raforkuverð til almennings með þessum hætti, það er allavega ekki minn vilji né vilji okkar í Framsókn.
Frumvarp atvinnuveganefndar
Á nýliðnu haustþingi lagði atvinnuveganefnd Alþingis að beiðni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fram frumvarp til laga um breytingar á raforkulögum nr. 65/2003. Þetta frumvarp varð ekki til í einhverju tómarúmi heldur er markmiðið með því að tryggja raforkuöryggi heimila og minni fyrirtækja í landinu í samræmi við stefnu stjórnvalda. Nái frumvarpið fram að ganga mun það tryggja að heimili og minni fyrirtæki hafi ávallt aðgang að svokallaðri forgangsraforku í kerfinu. Málið fékk efnislega umfjöllun innan nefndarinnar og fór í gegnum aðra umræðu. Við þriðju umræðu var það einróma niðurstaða atvinnuveganefndar að fresta afgreiðslu málsins fram á nýtt ár 2024.
Ekki vilji til að hækka raforkuverð til almennings en úrbóta er þörf
Það er mikilvægt að lögfesta aðgang almennings og smærri notenda að forgangsraforku tímabundið, meðan leitað er allra leiða til frekari orkuöflunar, orkunýtingar og eflingar á flutnings- og dreifikerfi raforku. Annað er ekki í boðlegt. Verkefninu er hvergi nærri lokið.
Við í Framsókn leggjum ofuráherslu á fjölbreytta þróun á endurnýjanlegri orku en að sama skapi að horft verði til hagkvæmra kosta. Ljóst er að orkunýting hefur aukist til muna ár frá ári og því miður er staðan sem upp er komin fyrirsjáanleg. Stjórnvöld verða að vera meira afgerandi og framsýnni í raforkumálum og mun atvinnuveganefnd sannarlega leggja sitt af mörkum í þeirri vegferð. Við í atvinnuveganefnd höldum áfram þar sem frá var horfið fyrir jól og það er mín trú að við náum saman góðri og farsælli niðurstöðu.
Með von í hjarta óska ég þess að bjartir og orkumiklir tímar bíði okkar á nýju ári. Gleðilegt nýtt ár.
Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknar og formaður atvinnuveganefndar Alþingis.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 29. desember 2023.