Categories
Fréttir Greinar

Sveitar­stjóri ráðinn á fag­legum for­sendum

Deila grein

10/05/2022

Sveitar­stjóri ráðinn á fag­legum for­sendum

Undanfarið höfum við átt frábært samtal við íbúa í Hveragerði um málefnin sem við í Framsókn höfum lagt fram og finnum við mikinn meðbyr með þeim málum sem við setjum í forgang. Við heyrum einnig að það skiptir íbúa í Hveragerði miklu máli hver það er sem gegnir stöðu bæjarstjóra enda eitt æðsta embætti sveitarfélagsins. Það er kallað eftir því að staðan sé auglýst og þar með staðið faglega að ráðningu þessa embættis. Við í Framsókn viljum vera alveg skýr hvað þetta varðar og munum standa faglega að ráðningu bæjarstjóra.

Það er bæjarstjórn sem fær það umboð að forgangsraða þeim verkefnum sem innt eru af hendi. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra eða framkvæmdastjóra sveitarfélagsins að vinna verkefnunum brautargengi. Það er mikilvægt að þessi aðili starfi bæði með minni- og meirihluta og sé framkvæmdastjóri allra bæjarbúa.

Það eru fjölmörg verkefni fram undan. Við viljum faglegan, kraftmikinn og lausnamiðaðan einstakling í verkið með okkur og því munum við auglýsa stöðu bæjarstjóra.

Við hvetjum Hveragerðinga til að nýta kosningaréttinn sinn og mæta á kjörstað þann 14. maí næstkomandi.

Það er tækifæri – XB

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir

Höfundur er bæjarfulltrúi Framsóknar í Hveragerði og skipar 1. sæti lista Framsóknar.

Greinin birtist fyrst á visir.is 10. maí 2022.

Categories
Greinar

Fram­sókn til fram­tíðar í mennta­málum í Fjarða­byggð

Deila grein

09/05/2022

Fram­sókn til fram­tíðar í mennta­málum í Fjarða­byggð

Börnin okkar eru það dýrmætasta sem við eigum. Það er mikilvægt að við hlustum á þau og að ákvarðanir séu teknar út frá því sem er þeim fyrir bestu þannig að hvert og eitt barn geti blómstrað. Í það eina skipti sem ég útskrifaði nemendur úr 10. bekk sagði ég við þau að mikilvægt væri að þau fetuðu þá braut sem hjarta þeirra segði þeim að fara. Þau gætu allt sem þau ætluðu sér. Við þurfum að tryggja að aðstæður þeirra séu góðar, og þau fái stuðning við hæfi, þá eru börnunum okkar allir vegir færir.

Á síðustu árum hefur ýmislegt verið gert í Fjarðabyggð til að bæta þjónustu og aðstæður barna og ungmenna. Mætti þar til að mynda nefna stækkun leikskóla, átak varðandi starfsumhverfi starfsfólks leikskólanna, tæknivæðingu í grunnskólunum, gjaldfrjálsar skólamáltíðir, iðn- og tækninám í samstarfi við VA, uppbyggingu skólaþjónustunnar í kjölfar þess þegar Skólaskrifstofa Austurlands var lögð niður, snemmtæka íhlutun þar sem Sprettsteymi voru sett á laggirnar, endurskipulagning var gerð á félagsmiðstöðvunum og sumarfrístund fyrir nemendur í 1.-4. bekk var komið á. Þetta er allt saman gott, en mjög mikilvægt er að halda áfram á þessari braut og gera enn betur.

Aukum sérfræðiaðstoð í skólunum

Samfélagið er að breytast og þar með samsetning og þarfir nemendahópa í skólunum okkar. Í skólum Fjarðabyggðar höfum við á að skipa frábæru fagfólki sem vinnur stórkostlegt starf á degi hverjum. En það er ljóst af samtölum við starfsfólk skólanna að þörf er á auknum sérhæfðum stuðningi, t.d. á sviði talmeinafræði, sálfræði og iðjuþjálfun. Einnig er aukin þörf fyrir að sérfræðingar á þessum sviðum komi meira inn í skólana og vinni við hliðina á starfsfólkinu sem þar er. Nýlega kom út tilviksrannsókn sem framkvæmd var af Háskólanum á Akureyri þar sem skólaþjónusta í nokkrum sveitarfélögum var skoðuð. Kom þar í ljós að mikið ákall er, bæði frá starfsfólki skólaþjónustu og starfsfólki skólanna, að meiri tíma skólaþjónustunnar sé eytt á gólfinu með starfsfólki og nemendum enda hlýtur það að vera börnunum fyrir bestu þannig að hvert og eitt barn fái sem heildstæðasta og besta þjónustu. Það er afar brýnt að við skoðum hvernig við viljum hafa okkar skólaþjónustu, þar þurfum við að fá sérfræðingana í skólaþjónustunni að borðinu ásamt starfsfólkinu í skólunum. Við þurfum að marka okkur stefnu og haga síðan vinnunni eftir henni þannig að þekking sérfræðinganna nýtist sem best.

Börn eru mismunandi og hafa mismunandi þjónustuþarfir. Því meiri þjónustu sem þau þurfa, því meira fjármagn þarf að fylgja. Til þess að útdeila fjármagni til skóla er notast við svokallað úthlutunarlíkan þar sem reiknað er út frá nokkrum þáttum hvaða fjármagn hver skóli fær. Nýlega endurskoðaði Reykjavíkurborg sitt líkan og í þeirri endurskoðun voru markmiðin þau að tryggja það að hverju barni fylgdi það fjármagn sem þyrfti, fjármagnið færi á réttan stað þannig að tryggt væri að þörf þeirra verði mætt. Að auki fengu skólarnir nokkurn sveigjanleika inn í líkanið, sá sveigjanleiki var falinn í því að skólarnir geta nú ráðið sérfræðing miðað við þá þörf sem þeir hafa. Ef einn skóla vantaði talmeinafræðing þá myndi hann geta ráðið talmeinafræðing, ef annan skóla vantaði frekar sálfræðing þá gæti hann ráðið sálfræðing og ef þriðja skólann vantaði iðjuþjálfa eða þroskaþjálfa þá gæti hann gert það. Það er komið að þeim tímapunkti að Fjarðabyggð þurfi að fara gagnrýnið í gegnum sitt úthlutunarlíkan, þannig að tryggt sé að þörfum allra nemenda verði mætt á sem bestan hátt.

Sækjum fram!

Við þurfum að vera óhrædd við að endurskoða hlutina og stöðugt að leyta leiða til að bæta þjónustuna til barnanna okkar. Ég hef í mínum störfum verið óhræddur við það, ávalt með það markmið í huga að gera það sem er best fyrir þau. Menntamál eru stór þáttur í rekstri sveitarfélaga. Það er mikilvægt að huga vel að þeim og leita sífellt leiða til bæta þá þjónustu sem þar er veitt, börnunum okkar til heilla. Höfum í hug að hver króna sem sett er í þennan málaflokk til að bæta og efla þjónustuna mun að lokum skila sér margfalt tilbaka. Framsókn í Fjarðabyggð vill sækja fram í þessum málaflokki og ég get lofað ykkur hér að með því að greiða okkur atkvæði þann 14. maí mun ég leggja allt mitt til þessara mála, börnunum okkar til heilla.

Birgir Jónsson

Höfundur er framhaldsskólakennari og situr í 3. sæti á lista Framsóknar í Fjarðabyggð fyrir sveitastjórnarkosningarnar þann 14. maí.

Greinin birtist fyrst á visir.is 9. maí 2022.

Categories
Greinar

En hvað með ung­dóminn, Guð­mundur?

Deila grein

09/05/2022

En hvað með ung­dóminn, Guð­mundur?

Eftir að hafa skrifað 2 greinar um það að eldast, sem greinilega voru lesnar og takk fyrir það, þá fékk ég spurninguna en hvað með ungdóminn?

Einhver ykkar vita að ég vinn í umhverfi þar sem eitthvað hefur farið úrskeiðis hjá ungdómnum okkar. Gott fólk úr okkar röðum hefur bent á að fyrir hverja krónu sem við verjum í upphafi þroskaferils barns erum við að spara 7-8 krónur á seinni stigum. Fyrir hverja milljón, sparast 7-8 milljónir. Er einhver í stjórnmálum til í að segja og sækja fylgi, með því að ætla að ná sparnaði í rekstri bæjarfélagsins eftir 8-12 ár. Viðkomandi þá jafnvel löngu hættur í stjórnmálum og enginn man neitt. Ég ætla að leyfa mér að benda á nokkur atriði í okkar bæjarfélagi sem er samt komið af stað í þessari vinnu, án þess að sérstaklega mikill kostnaður fylgi því, en gætu vissulega nýtt meiri pening til að gera meira. Það eru t.d. ekki öll íþróttafélög með mestan fókus á afreksíþróttir. Tökum Brettafélagið, Siglingaklúbbinn og Hestamannafélagið Sörla sem dæmi. Þessi félög ná að hlúa að einstaklingum sem eru ekki eins og við flest, finna þeirra styrkleika og leyfa þeim að njóta, án þess að þau séu að færa bikara og titla í hús. Þetta eru einstaklingar sem annars myndu hörfa undan álagi afreksíþrótta og jafnvel fara út af sporinu. Það er alveg ljóst að þessir einstaklingar og fjölskyldur þeirra eru að njóta góðs af þessari starfsemi og þeirri meðvituðu ákvörðun þeirra sem stjórna þar, að hlúa að þeim. Það kom mér skemmtilega á óvart þegar ég fékk að fylgja með í heimsókn til þessara félaga, þó ég hafi reyndar ekki kíkt á hestana, enda þekktur fyrir að vilja frekar borða þá, hvað það er verið að gera mikið í þágu samfélagsins og þeirra sem vilja fá að njóta íþrótta og útivistar, en ekki endilega að vera að mæta á fullt af mótum og meira krefjandi æfingum.

Síðan er það starfsemi eins og Ungmennahúsið Hamarinn við Suðurgötu, undir stjórn Margrétar Gauju. Sú starfsemi er ekki lögbundin þjónusta sveitarfélagsins. Vil ég þakka sérstaklega þeim sem höfðu þá fyrirhyggju að koma þessari starfsemi á koppinn og leyfa henni að halda áfram. Þangað sækja einstaklingar sem eru jafnvel félagslega einangraðir og eiga í erfiðleikum með að bjóða heim vinum og kunningjum vegna ástands heima fyrir. Þar hefur einnig aðstöðu Bergið headspace. Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri. Markmið Bergsins er að bjóða upp á lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Í Berginu er lagt upp með að skapa notalegt og öruggt umhverfi fyrir ungt fólk sem vill fá aðstoð fagfólks og notenda með fjölbreytta reynslu. Einu sinni í viku er ráðgjafi frá Berginu í Hamrinum og er Hafnarfjörður eina sveitarfélagið á landinu sem býður upp á þetta. Í Hamrinum eru allir velkomnir, þar er meðal annars tekið á móti ungmennum úr hópi flóttafólks, þar er starfsemi kynsegin einstaklinga… orð sem ég er enn að átta mig á, krökkunum í Flensborg sem kíkja við í frímínútum og eyðum vegna nálægðar við skólann.

Það er alltaf hægt að gera betur og í sumum tilfellum mikið betur. Það að fjárfesta nógu snemma verður til þess að rekstur síðar meir verður ekki eins kostnaðarsamur. Þetta snýst heldur ekki allt um peninga. Það að gera betur í upphafi skilar sér einnig í bættri líðan hjá viðkomandi einstaklingum og eins fjölskyldum þeirra og það jafnvel út ævina. Við hjá Framsókn í Hafnarfirði viljum gera betur.

Guðmundur Fylkisson

Höfundur skipar 6. sæti á lista Framsóknarflokksins í Hafnarfirði.

Greinin birtist fyrst á visir.is 9. maí 2022.

Categories
Fréttir Greinar

Framsókn um allt land!

Deila grein

09/05/2022

Framsókn um allt land!

Í dag eru fimm dag­ar til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga í land­inu þar sem um 277.000 kjós­end­ur munu hafa tæki­færi til að tjá hug sinn með at­kvæðum sín­um. Sveit­ar­stjórn­ar­mál skipta miklu máli í því góða lýðræðis­sam­fé­lagi sem við búum í. Á vett­vangi þeirra stíga marg­ir sín fyrstu skref í stjórn­mál­um og fé­lags­störf­um til þess að bæta sam­fé­lag sitt og auka lífs­gæði íbú­anna. Sveit­ar­fé­lög­in eru ábyrg fyr­ir að veita mik­il­væga og fjöl­breytta nærþjón­ustu sem snert­ir hag fólks með bein­um hætti á hverj­um ein­asta degi – til dæm­is með því að viðhalda litl­um um­ferðargöt­um, fjar­lægja rusl, skipu­leggja og út­hluta lóðum, veita barna­fjöl­skyld­um ýmsa stoðþjón­ustu, halda úti leik- og grunn­skól­um og þjón­usta eldri borg­ara.

Í fjöl­mörg­um sveit­ar­fé­lög­um hring­inn um landið býður Fram­sókn fram öfl­uga lista, skipaða fólki sem brenn­ur fyr­ir það að gera sam­fé­lagið sitt betra en það var í gær. Fram­bjóðend­ur flokks­ins koma úr ýms­um átt­um, nestaðir með fjöl­breytt­um bak­grunni, reynslu og þekk­ingu sem nýt­ist með ýmsu móti til þess að auka vel­sæld íbú­anna. Það er ánægju­legt að finna fyr­ir og heyra af þeim mikla meðbyr sem fram­bjóðend­ur Fram­sókn­ar finna út um allt land. All­ir eiga þeir það sam­eig­in­legt að vilja vinna sam­vinnu­hug­sjón­inni braut­ar­gengi og stuðla að upp­byggi­leg­um stjórn­mál­um út frá miðjunni. Sem miðju­flokk­ur legg­ur Fram­sókn áherslu á praktísk­ar og öfga­laus­ar lausn­ir sem eru til þess falln­ar að bæta líf fólks ásamt því að geta unnið með ólík­um stjórn­mála­flokk­um til þess að bæta sam­fé­lagið. Það hef­ur flokk­ur­inn margoft gert með góðum ár­angri; að brúa bilið milli ólíkra sjón­ar­miða til þess að ná ár­angri fyr­ir land og þjóð. Við í Fram­sókn segj­um gjarn­an að sam­fé­lag sé sam­vinnu­verk­efni og í því er fólg­inn mik­ill sann­leik­ur.

Það er ánægju­legt að sjá að kann­an­ir benda til þess að Fram­sókn sé sér­stak­lega að sækja í sig veðrið á höfuðborg­ar­svæðinu. Fólk er í aukn­um mæli að kalla eft­ir auk­inni sam­vinnu til þess að tak­ast á við áskor­an­ir sam­tím­ans. Það er klár­lega rými fyr­ir slíkt í ráðhúsi Reykja­vík­ur þar sem hörð átaka­stjórn­mál hafa verið stunduð und­an­far­in ár, á sama tíma og þjón­usta við borg­ar­búa hef­ur of oft ekki staðið und­ir vænt­ing­um – hvort sem um er að ræða ein­stak­linga eða fyr­ir­tæki. Þannig mæl­ist traust á ráðhús­inu minnst af öll­um stofn­un­um sem eru mæld­ar og ánægja Reyk­vík­inga með þjón­ustu borg­ar­inn­ar mæl­ist tals­vert minni en í ná­granna­sveit­ar­fé­lög­un­um. Þessu þarf að breyta og hug­mynda­fræði Fram­sókn­ar mun þar leika lyk­il­hlut­verk.

Ég hvet kjós­end­ur til þess að kynna sér fram­bjóðend­ur og mál­efni Fram­sókn­ar fyr­ir kom­andi kosn­ing­ar og nýta kosn­inga­rétt sinn í kosn­ing­un­um.

Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir

Höf­und­ur er menn­ing­ar- og viðskiptaráðherra og vara­formaður Fram­sókn­ar.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 9. maí 2022.

Categories
Greinar

Lítum okkur nær

Deila grein

09/05/2022

Lítum okkur nær

Öll mín fullorðinsár hef ég hlustað á þá sem standa framarlega í samfélaginu tala um Helguvík og allt það sem svæðið hefur upp á að bjóða. Svo mikil orka og kraftur hefur farið í þetta svæði að við erum búin að sannfæra okkur sjálf og alla þjóðina um það að annaðhvort gerist eitthvað stórfenglegt í Helguvík eða Reykjanesbær muni hreinlega deyja út.

Hin sorglega staðreynd mála er sú að í Helguvík er akkúrat ekki neitt að gerast og við höfum einungis horft upp á afturför. Þar er ekkert álver, blessunarlega, slagurinn um að moka burt Kísilverinu heldur áfram, síldarvinnslan hefur dregið sig út af svæðinu og grunnar brostinna drauma liggja þar um allt.

Hættum að tala um Helguvík

Því legg ég það til að við hættum að tala um Helguvík að sinni, hún er ekki að fara neitt og við höfum það svæði til reiðu þá og þegar ábyrgar og faglegar, grænar fjárfestingar banka þar upp á.

Lítum okkur nær og hugum að því sem í hendi er því þar er svo sannarlega af nægu að taka, við þekkjum það öll sem búum hér, störfum og lifum.

Með því að rækta okkar garð mun allt í kringum okkur blómstra og blómstrandi samfélag laðar að sér allt það góða sem í landi hér býr.

Leiðum vagninn

Með það hugarfar í forgrunni þurfum við ekki að taka á móti fólki og fjárfestum eins og hlýðnir hundar sem þakka náðsamlega fyrir hvern þann bita sem fellur þeim í skaut, heldur mætum við til leiks sem leiðtogar með opinn faðm. Tilbúinn að taka á móti þeim tækifærum sem bjóðast af ábyrgð, framsýni og festu.

Bjarni Páll Tryggvason

Höfundur skipar 2. sæti B-lista Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 14. maí næstkomandi.

Greinin birtist fyrst á visir.is 9. maí 2022.

Categories
Greinar

Íbúar Hafnarfjarðar

Deila grein

08/05/2022

Íbúar Hafnarfjarðar

Síðustu fjögur ár hafa flogið áfram, verið skemmtileg og árangursrík. Það eru fyrst og fremst forréttindi að fá að starfa fyrir og í umboði bæjarbúa og ég er einlæglega þakklátur fyrir það traust sem mér og okkur var sýnt í kosningunum 2018. Ég hef lagt mig allan fram, er stoltur af verkum okkar og þá sérstaklega því að hafa lækkað álögur á fjölskyldufólk, fjárfest í fólki á öllum aldri og komið af stað kröfugri uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Þetta verða verkefnin áfram og við leggjum spilin óhrædd á borð fyrir kjósendur.

Það er rétt sem sagt hefur verið; saman getum við gert meira og betur. Nú erum við á lokametrunum í þessari kosningabaráttu. Í mínum huga hefur hún heilt yfir verið skemmtileg og málefnaleg. Undanfarnar vikur og daga hafa frambjóðendur Framsóknar ferðast um bæinn, haldið fjölda viðburða og reynt eftir fremsta megni að hitta ykkur sem flest. Takk fyrir að gefa ykkur tíma til að hitta okkur; opna fyrirtæki ykkar, heimili og jafnvel stoppa á götum úti til að eiga við okkur samtal.

Stjórnmálamenn, núverandi og verðandi, hafa það meginverkefni að búa öllum samfélag til að blómstra í og nýta eigin styrk og hæfileika. Valdimar Víðisson, skólastjóri, stendur nú fremstur í stafni og leiðir öflugan hóp Framsóknar í Hafnarfirði. Valdimar er traustur og góður stjórnandi sem fær fólk með sér í lið. Eins og alvöru þjálfari og fyrirliði í senn. Hann er einlægur og sannur í því sem hann tekur sér fyrir hendur líkt og hann hefur sýnt í störfum sínum sem formaður fjölskylduráðs á kjörtímabilinu. Óhræddur við að hlusta á aðra og leitast sífellt eftir bestu mögulegu niðurstöðunni fyrir fólk og samfélagið í heild. Með samvinnu komumst við lengra. Við skulum ekki leita til þeirra sem boða byltingar, sundrung og löngu úrelta stefnu. Við skulum kjósa framfarir, skynsemi og samvinnu. Við skulum kjósa velferð og aukin lífsgæði. Við óskum eftir þínum stuðningi til góðra verka. Framtíð Hafnarfjarðar ræðst á miðjunni – XB.

Ágúst Bjarni Garðsson

Höfundur er fráfarandi bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs þingmaður Framsóknar.

Greinin birtist fyrst á visir.is 8. maí 2022.

Categories
Greinar

Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri – mikilvægur hornsteinn

Deila grein

06/05/2022

Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri – mikilvægur hornsteinn

Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að standa vörð um íslenska landbúnaðarframleiðslu á breiðum grunni því við verðum að standa vörð um fæðu- og matvælaöryggi á Íslandi. Það höfum við fundið í þeirri stöðu sem uppi hefur verið undanfarin misseri í heimsfaraldri og nú stríði í Evrópu. Þá er það mikilvægt að styrkja íslenska matvælaframleiðslu vegna matvælaheilbrigðis og síðast en ekki síst til að minnka kolefnisspor.

Matvælaöryggið er mikilvægt en einnig hafa loftlagsmál aldrei verið mikilvægari og þar kemur landbúnaðurinn sterkur inn. Þeir sem yrkja landið vita að loftslagsmál eru forsenda þess að líf dafni. Styrkja þarf betur við skógrækt, landgræðslu og fjölbreyttra ræktun til að mæta betur skuldbindingum okkar í loftlagsmálum. Það skiptir máli að allt landið sé í byggð og bændur eru vörslumenn þeirrar auðlindar sem við eigum allt undir. Með styrkum stuðningi við landbúnað eflum við þróun mannlífs og byggð í landi öllu.

Menntun er máttur

Landbúnaðarskólinn á Hvanneyri á sér langa sögu eða allt frá 1889, þar er dágóð reynsla og þekking sem hefur myndast í gegnum árin. Frá árinu 2005 hefur þar verið Landbúnaðarháskóli og fer þar nú fram öflugt rannsóknar- og menntastarf í þágu landbúnaðar á Íslandi. Mikilvægi menntunar og rannsókna á þeim sviðum sem stunduð er á Hvanneyri hefur líklega sjaldan verið mikilvægari, þegar horft er til þeirra þátta sem ég nefndi í innganginum. Sérstaða skólans eru viðfangsefni hans en það eru náttúra landsins, nýting, viðhald og verndun, eins og segir á heimasíðu skólans. Þá er ánægjulegt að fyrirhugað er að stækka jarðræktarmiðstöðina í Hvanneyri, þar eru gerðar mikilvægar tilraunir og rannsóknir sem spila stórt hlutverk inn í framtíðina. Það má svo sannarlega segja að mikil gróska sé á Hvanneyri.

Gildi og markmið

Þegar rennt er yfir gildi og markmið skólans má sjá að horft er til framtíðar og þeirra aðstæðna sem eru og vænta má hér á norðlægum slóðum í samstarfi við alþjóðlegar rannsóknir og stefnur. Það er í samræmi við núverandi stefnumál stjórnvalda þar sem lögð er áhersla á að byggja upp innlenda þekkingu á sviði sem nýtist okkur í þeim hagsmunamálum þjóðarinnar. Þá er talað um mikilvægi menntunar í landbúnaði sem stuðlar að fræðslu, ráðgjöf, þróun og nýsköpun. Þá er gott að horfa til framtíðarmarkmiða Landbúnaðarháskólans sem er að skólinn stuðli að aukinni verðmætasköpun og fæðuöryggi til framtíðar með sjálfbærri nýtingu auðlinda. Málefni dagsins eru nefnilega loflagsmál og matvælaöryggi.

Við eigum góða skóla

Aðalsmerki Vesturlands eru tveir öflugir háskólar í Borgarfirði. Það er hlutverk bæði heimamanna og stjórnvalda að halda mikilvægi skólanna á lofti. Rúmlega 130 ára saga skólans á Hvanneyri er okkur kraftur til að halda áfram að styrkja öflugt starf á sviði menntunar og rannsóknar á landsbyggðinni.

Halla Signý Kristjánsdóttir

Höf. er þingmaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi.

Greinin birtist fyrst á skessuhorn.is 5. maí 2022.

Categories
Greinar

For­gangs­röðum í þágu barna!

Deila grein

05/05/2022

For­gangs­röðum í þágu barna!

Ég skipa annað sætið á lista Framsóknar fyrir komandi kosningar.

Það er stórt skref að bjóða sig fram í baráttu eins og sveitastjórnarkosningar eru en ég hef frá unga aldri haft mikinn áhuga á stjórnmálum og því rökrétt að virkja þann áhuga og bjóða fram krafta sína fyrir bæjarfélag sem er gott að búa í.

Sem er einmitt málið, Garðabær hefur reynst mér vel frá því að ég og fjölskylda mín fluttum hingað frá Svíþjóð árið 2016. Ég er upprunalega landsbyggðarmaður, ólst upp í Grundarfirði og bjó lengi bæði í Borgarnesi og Stykkishólmi. Það sem okkur hefur einmitt líkað vel er að Garðabær hefur marga eiginleika landsbyggðarinnar, samfélagið er samheldið og Garðbæingar stoltir af samfélaginu sem þau tilheyra. Bærinn hefur á sama tíma kosti þess að búa í stærra samfélagi. Ég er því ekki mættur til að tala allt niður sem gert hefur verið, enda margt gott verið gert.

En þó margt sé gott má auðvitað bæta samfélagið. Ég kem úr íþróttahreyfingunni og hef unnið með börnum og fjölskyldum þeirra nánast alla mína tíð. Garðabær hefur orð á sér fyrir að hér sé mikil velsæld og vissulega sést það víða í bænum, en ég tek líka eftir því að það eru ekki allir með sæti við háborðið. Ég vil halda áfram að vinna með börnum og ungmennum og ein af aðal ástæðunum fyrir því að ég býð mig fram fyrir Framsókn er að ég hef heillast af störfum Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra. Hann hefur lagt mikla áherslu á málefni barna í sínum störfum og leitt sennilega mestu breytingu sem gerð hefur verið á umhverfi barna á Íslandi í áratugi.

Saga okkar Ásmundar er ekki ósvipuð. Í uppvextinum kynntumst við aðstæðum þar sem hlutirnir voru ekki eins og þeir eiga að vera og áherslumálin óneitanlega litast af því. Við eigum að setja börnin í forgrunn og þjóna hagsmunum þeirra og fjölskyldna þeirra sem best og þar vil ég byggja ofan á frábæra vinnu Ásmundar Einars í málaflokknum.

Þegar við ræðum um arðsemi fjárfestinga í samfélaginu okkar er áhugavert að við horfum yfirleitt á eitthvað efnislegt – virkjanir, iðnað eða nýsköpun – en sjaldan á arðsemi þess að fjárfesta í fólki til lengri tíma. Andleg líðan ungmenna blasir við mér á hverjum degi, og hversu mörg þeirra eiga í basli við að fóta sig vegna andlegra kvilla. Við lifum á tímum mikils hraða, áreitis og væntinga og þráum kannski fátt frekar en einfaldlega sálarró, það er mögulega ástæða fyrir því að andleg líðan bæði okkar og unga fólksins helst ekki alltaf í hendur við hagvaxtartölur. Það er löngu orðið tímabært að við forgangsröðum í þágu barna og ungmenna og fjárfestum í framtíðinni. Við fáum það margfalt til baka.

Við finnum fyrir meðbyr, Framsókn er að rísa í Garðabæ.

Ég og við yrðum þakklát fyrir ykkar stuðning, við gerum okkar besta.

Hlynur Bæringsson

Höfundur skipar 2. sæti lista Framsóknar í Garðabæ.

Greinin birtist fyrst á visir.is 5. maí 2022.

Categories
Uncategorized

Að kjósa utan kjörfundar

Deila grein

05/05/2022

Að kjósa utan kjörfundar

Allir þeir sem ekki komast á kjörstað þann 14. maí nk. geta kosið utankjörfundar. Dómsmálaráðuneytið hefur undirbúið leiðbeiningarmyndbönd á íslensku og ensku um hvernig er kosið utan kjörfundar í sveitarstjórnarkosningum.

Hægt er að kjósa hjá sýslumönnum um land allt. Á vefsíðu sýslumanna má sjá hvar og hvenær hægt er að kjósa. Á höfuðborgarsvæðinu fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram í Holtagörðum á 2. hæð.

Opnunartími í Holtagörðum er:
  • 2. maí – 13. maí, kl. 10:00-22:00.

Á kjördag laugardaginn 14. maí verður opið frá kl. 10:00-17:00 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins.

Kjörstaðir erlendis:

Þau sem eru erlendis geta kosið á  skrifstofu sendiráðs, í sendiræðisskrifstofu eða í skrifstofu kjörræðismanns. Á vef utanríkisráðuneytisins eru að finna frekari upplýsingar.

Kjörstaðir á stofnunum:

Hægt er að kjósa á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsum. Tilkynnt verður um slíka kosningu á hverju heimili, sjúkrahúsi eða stofnun fyrir sig.

Kjósandi, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann geti kosið á sjúkrahúsi, dvalarheimili, fangelsi eða á stofnun. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og bera fram við sýslumann eigi síðar en kl. 10. tveimur dögum fyrir kjördag.

Categories
Greinar

Ég vil hlakka til að eldast með reisn í Kópavogi

Deila grein

05/05/2022

Ég vil hlakka til að eldast með reisn í Kópavogi

Eldri íbúar Kópavogs hafa aldrei verið fleiri en akkúrat núna, þau eru rúmlega 5000 talsins og þessi hópur kemur aðeins til með að stækka á komandi árum. Sem er vel og hafa skal í huga að þessi sístækkandi hópur, nær yfir fólk sem er eins mismunandi og þau eru mörg. Aldursbreidd aldraðra í Kópavogi spannar 36 ár, eða frá 67 til 103 ára. Það liggur því í augum uppi að hópurinn hefur ólíkar þarfir og ótækt að ætla að setja þetta fólk allt saman undir einn hatt. Það þýðir meðal annars að við getum alls ekki gert ráð fyrir að þau þurfi einsleita þjónustu. Einhverjir þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda, læknisaðstoð og aðhlynningu meðan aðrir eru mjög frískir og fjörugir og vilja ólíkt meiri afþreyingu, fjölbreytta hreyfingu og mögulega heimaþjónustu. Við þurfum að mæta öllu þessu fólki og gera það vel.

Það eru forréttindi að fá að eldast og sveitarfélög eiga og mega setja það í forgang að hlúa vel að eldra fólki sem vill sækja þá þjónustu sem því hugnast innan síns sveitarfélags. Við hljótum öll að geta verið sammála um að vilja stuðla að því að fólki líði sem best, það haldi góðri heilsu og geti verið heima hjá sér í öryggi eins lengi og þau vilja. Fólk verður að hafa val og það verður að geta sótt þá þjónustu sem hentar hverjum og einum. Gleymum því heldur ekki að sumir njóta þess að búa heima hjá sér en vilja gjarnan eiga kost á því að fara í þjálfun eða dagdvöl á daginn.

Framsókn telur sérlega mikilvægt að bæta við dagþjálfunardeildum í bænum. Þar verðum við að gera betur! Að gera eldra fólki kleift að eldast með reisn á að vera forgangsatriði hjá okkur. Við í Framsókn viljum brúa bilið milli þess að búa heima og flytja á hjúkrunarheimili með því að stuðla að byggingu minni íbúða sem tengjast þjónustukjarna sem ætlaður er eldri borgurum. Það hefur sýnt sig að það er form sem hentar eldri borgurum vel. Við viljum hjálpa eldra fólki að styrkja félagsnet sitt og vinna að forvörnum gegn félagslegri einangrun og einmannaleika með eflingu félagsmiðstöðvanna í bænum.

Fjölbreytni, framboð og val er lykillinn að góðri lýðheilsu eldra fólksins okkar og með þau gildi að leiðarljósi, getum við öll hlakkað til að eldast í Kópavogi.

Björg Baldursdóttir, skólastjóri Kársnesskóla skipar 3.sæti á lista Framsóknar í Kópavogi..

Greinin birtist fyrst á kgp.is 5. maí 2022.