Categories
Greinar

Treystum innlenda matvælaframleiðslu – nú verður að grípa inn í!

Deila grein

09/10/2020

Treystum innlenda matvælaframleiðslu – nú verður að grípa inn í!

Það hefur verið ákall um að bændur búi við frelsi og starfi á samkeppnismarkaði með vörur sínar svo við neytendur getum haft val. En umhverfið og leikreglurnar sem þeim standa til boða gerir þeim nær ókleift að starfa á jafnréttisgrundvelli á markaði.

Þegar maður velur sér atvinnu, þá höfuð við ákveðið frelsi til að fara eftir áhugasviði, möguleikum og færni. Væntingar okkar til starfsins eru fyrst og fremst að geta framfært sér og sínum auk þess að starfið færi manni þá lífshamingju sem allir sækjast eftir. Sauðfjárbúskapur sem og annar búskapur er fjölbreytt starf og felur í sér ólík viðfangsefni eftir árstíðum, Þetta er ekki einungis bundið við að rækta sauðfé og framleiða matvæli, heldur er bóndinn líka landvörslumaður sem bæði græðir landið og nýtir. Þetta kallar á fjölbreytta hæfileika og útsjónarsemi. En afkoman skiptir máli og þegar afurðaverð hefur lækkað um tugi prósenta síðustu fimm ár fer gamanið að grána.

Tollaglæpir og lögbrot

Íslenskir bændur keppa á sama samkeppnismarkaði og iðnaðarbúskapur í Evrópu, með því verða starfsskilyrði þeim erfið. Ákall um virka samkeppni er krafa okkar neytenda til að njóta gæða og betra verðs, leikreglur eru settar en hver er niðurstaðan?

Samkeppnisstaða innlendrar matvælaframleiðslu má sín lítils á móti erlendri iðnaðarframleiðslu sem nýtur mikilla niðurgreiðsla í sínu heimalandi sem og verndartolla. Sá tollasamningur sem var gerður árið 2016 fól í sér minni tollaálagningu á landbúnaðarvörum til landsins á ákveðnum matvælum, á móti því að við gætum flutt út kjöt- og mjólkurafurðir til Evrópusambandsins á lægri tollum. Tollverndin er fyrir hendi og samningurinn er skýr en hver er raunveruleikinn? Staðreyndin er sú að verið er að brjóta lög, innflutningsaðilar komast upp með að skipta um tollflokka út á miðju Atlandshafi til þess eins að greiða lægri tolla eða sleppa alveg við þá. Njóta neytendur þess? Ég efa það stórlega. Tapið er allra, bænda og neytanda! Hvað er gert, við skipum nefnd til að fara yfir málið! Hér er um að ræða gífurlegar fjárhæðir fyrir ríkissjóð. Ef hinn sami innflytjenda myndi svíkja undan skatti þá yrði hann umsvifalaust kærður.

Vonlaus samkeppnisskilyrði – grípum inn í

Samkeppnislögin sem gilda hér á landi eiga við um milljóna þjóðir og innan þeirra eiga íslenskir bændur að starfa. Framsóknarmenn hafa lagt fram frumvarp sem veitir afurðastöðvum í kjötiðnaði undanþágu frá ákvæðum samkeppnislaga. Með frumvarpinu er tilgangurinn að veita innlendum kjötiðnaði tækifæri til að hagræða í þágu neytanda og til að bregðast við ört vaxandi samkeppni við afurðir frá erlendum mörkuðum. Afurðarstöðvar í kjötiðnaði geta nú mjög takmarkað sameinast eða unnið saman þar sem það er í andstöðu við ákvæði samkeppnislaga. Það skilar sér í of háum rekstrarkostnaði, háu verði til neytenda og lægri afurðaverði til bænda.

Hvað er í pakkanum?

Nú þegar hefur verið opnað á aukinn innflutning á ferskum matvælum hingað. Það er eðlileg krafa ekki bara bænda heldur neytenda, að farið sé eftir ströngum reglum heilbrigðis og gæðakröfum. Til að mæta þeim áskorunum á innflutning á ferskum matvælum lagði atvinnuveganefnd Alþingis fram aðgerðaráætlun sem var samþykkt á vordögum 2019. Aðgerðaráætlunin miðar að því að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu. Innflutningur hrárra matvæla þarf að vera undir ströngu eftirliti og þar má ekki gefa neinn afslátt. Sagt er frá því í síðasta Bændablaði að í fyrra mánuði hafi fyrsta tilfelli afrískar svínapestar greinst í Þýskalandi. Íslenskir bændur og neytendur verða að geta treyst því að eftirlitið sé virkt hér þar sem innlend framleiðsla er viðkvæm og opin fyrir útbreiðslu alls kyns dýrasjúkdóma og fæðuöryggi okkar ógnað.

Treystum starfskilyrði bænda

Sauðfjárbændur og aðrir bændur eru sjálfstæðir atvinnurekendur sem vilja athafna sig í eðlilegu umhverfi. Það er skylda stjórnvalda að byggja undir innlenda matvælaframleiðslu og auka þar með fæðuöryggi landsins þannig náum við meira jafnvægi og komum í veg fyrir að þessi framleiðsla leggist af. Við eigum ekki að hræðast að móta starfsskilyrði bænda með eðlilegum hætti, það verða allir að sníða sér stakk eftir vexti. Þannig er hag íslenskra bænda og neytenda best borgið. Áfram veginn.

Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

Greinin birtist fyrst á visir.is 9. október 2020.

Categories
Greinar

Íslensk kvikmyndagerð á tímamótum

Deila grein

08/10/2020

Íslensk kvikmyndagerð á tímamótum

Menn­ing og list­ir skipta mestu máli þegar hrikt­ir í stoðum sam­fé­laga. Þær setja líðandi stund í sam­hengi, veita skjól frá amstri hvers­dags­ins og skapa sam­stöðu.

Grósk­an í ís­lensku menn­ing­ar­lífi er með ólík­ind­um. Þar liggja líka mörg af okk­ar stærstu tæki­fær­um til að byggja upp hug­vits­drifið og skap­andi at­vinnu­líf. Óvíða eru þessi tæki­færi meiri en í kvik­myndal­ist og til að ýta und­ir áfram­hald­andi vöxt hafa stjórn­völd nú lagt lín­urn­ar, með kvik­mynda­stefnu til næstu tíu ára. Þessi fyrsta heild­stæða kvik­mynda­stefna var kynnt í vik­unni, en hún bygg­ist á til­lög­um verk­efna­hóps sem skipaður var fyr­ir ári. Í hópn­um sátu full­trú­ar list­grein­ar­inn­ar, at­vinnu­lífs og stjórn­valda og lagði hóp­ur­inn ríka áherslu á sam­ráð við hagaðila í grein­inni. Niðurstaðan er metnaðarfull og raun­sæ, og ég er sann­færð um að stefn­an mun styðja vöxt kvik­mynda­gerðar sem list­grein­ar og alþjóðlega sam­keppn­is­hæfr­ar fram­leiðslu­grein­ar.

Í stefn­unni eru sett fram meg­in­mark­mið til næstu tíu ára og aðgerðir til­greind­ar með kostnaðaráætl­un­um. Um leið eru aðilar gerðir ábyrg­ir fyr­ir ein­stök­um aðgerðum til að tryggja fram­kvæmd og eft­ir­fylgni. Aðgerðirn­ar lúta ann­ars veg­ar að efl­ingu kvik­mynda­menn­ing­ar og kvik­myndal­ist­ar og hins veg­ar að efl­ingu at­vinnu­lífs í kring­um kvik­mynd­a­starf­semi sem er bæði alþjóðleg og sjálf­bær.

Stefn­an set­ur skýr mark­mið um efl­ingu fjöl­breyttr­ar og metnaðarfullr­ar mennt­un­ar á sviði kvik­mynda­gerðar. Boðaðar eru mark­viss­ar aðgerðir til að efla mynd- og miðlalæsi barna og ung­linga og styðja við skap­andi hugs­un. Slíkt hef­ur aldrei verið mik­il­væg­ara en nú, á tím­um of­gnótt­ar af upp­lýs­ing­um sem erfitt er að henda reiður á. Þá er í stefn­unni kveðið á um vandað og metnaðarfullt kvik­mynda­nám á há­skóla­stigi, nokkuð sem grein­in hef­ur kallað eft­ir um langt skeið. Námið mun efla list­rænt sjálf­stæði ís­lenskr­ar kvik­mynda­gerðar, auka fag­lega umræðu og opna spenn­andi tæki­færi til náms og starfa.

Lof­orð um bætt starfs­um­hverfi fyr­ir grein­ina kall­ar einnig á aðgerðir, m.a. breyt­ing­ar á skattaum­hverfi og upp­færslu á end­ur­greiðslu­kerfi. Þar á Ísland í harðri alþjóðlegri sam­keppni, enda sjá marg­ar þjóðir kosti þess að byggja upp kvik­myndaiðnað í sínu landi. Yf­ir­stand­andi al­heimskreppa hef­ur síst dregið úr vilja þjóða til að laða til sín kvik­mynda­fram­leiðend­ur og Ísland get­ur ekki leyft sér að sitja aðgerðalaust hjá. Kost­ir nú­ver­andi end­ur­greiðslu­kerf­is eru marg­ir, en með því að hækka end­ur­greiðslu­hlut­fallið kæm­ist Ísland í flokk þeirra eft­ir­sókn­ar­verðustu. Fyr­ir því mun ég beita mér, til hags­bóta fyr­ir grein­ina sjálfa og hag­kerfið allt.

Rík sagna­hefð Íslend­inga hef­ur skilað okk­ur hundruðum kvik­mynda, heim­ilda- og stutt­mynda, sjón­varpsþátta og öðru fjöl­breyttu efni á síðustu ára­tug­um. Marg­ar er­lend­ar kvik­mynd­ir og þátt­araðir hafa verið tekn­ar hér og fjöldi ferðamanna heim­sótt Ísland ein­göngu vegna ein­stakr­ar nátt­úru­feg­urðar og menn­ing­ar sem birt­ist í kvik­mynd­um og sjón­varpsþátt­um. Ávinn­ing­ur­inn af þessu er mik­ill. Auk­in fjár­fest­ing í kvik­mynda­gerð er því bæði viðskipta­tæki­færi fyr­ir þjóðarbúið og áburður í mót­un menn­ing­ar okk­ar og sam­fé­lags­ins.

Á vor­mánuðum hækkuðu stjórn­völd fjár­veit­ing­ar í Kvik­mynda­sjóð um 120 millj­ón­ir króna, til að tryggja áfram­hald­andi kvik­mynda­fram­leiðslu á erfiðum tím­um. Með nýju kvik­mynda­stefn­unni verður bætt um bet­ur, því í fjár­laga­frum­varpi fyr­ir árið 2021 eru 550 millj­ón­ir króna eyrna­merkt­ar efl­ingu sjóða til fram­leiðslu á fjöl­breytt­ari kvik­mynda­verk­um, stuðningi við sjálfsprott­in kvik­mynda­menn­ing­ar­verk­efni, betri kvik­mynda­mennt­un o.s.frv.

Ég óska þjóðinni til ham­ingju með glæsi­lega kvik­mynda­stefnu. Hún er hvatn­ing og inn­blást­ur öll­um þeim sem vinna við kvik­mynda­gerð og sam­fé­lag­inu sem nýt­ur afrakst­urs­ins.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og varaformaður Framsóknar.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 8. október 2020.

Categories
Greinar

Frábærar fréttir!

Deila grein

07/10/2020

Frábærar fréttir!

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum fyrir skömmu, að leggja til að komið yrði á fót menntaneti á Suðurnesjum í samstarfi við menntastofnanir á svæðinu til að efla náms- og starfsúrræði fyrir atvinnuleitendur. Menntamálaráðherra mun stýra þessu nýja menntaneti í samvinnu við heimamenn en forsætisráðherra sagði að svona verkefni hafi verið gert víðar með góðum árangri. Það er mikið gleðiefni að haldið sé áfram veginn til styrkingar náms á Suðurnesjum.

Nám er tækifæri

Fyrirhugað er að ráðstafa allt að 300 milljónum króna til kaupa á þjónustu hjá menntanetinu sem hluti af átakinu Nám er tækifæri. Þá hefur verið ákveðið að styrkja þær námsleiðir sem í boði eru hjá Keili gegn því að sveitarfélögin á Suðurnesjum komi jafnframt inn með fjármuni á móti. Stjórnvöld hafa að undanförnu átt samtöl við forsvarsmenn sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga á Suðurnesjum, menntastofnanir og atvinnurekendur á svæðinu um aðgerðir til að bregðast við stöðu vinnumarkaðarins á svæðinu. Atvinnuleysi þar hefur farið vaxandi eftir að Kórónafaraldurinn hófst, fór hæst í kringum 25% í upphafi faraldursins, en var í september í kringum 17%. Það skiptir máli á tímum sem þessum að fólk hafi greiðan aðgang að aukinni menntun til þess að styrkja sig á atvinnumarkaði til framtíðar.

Fjölbreytni og sveigjanleiki

Fjölbreytt námsframboð og sveigjanlegt námsumhverfi, sem skapað er í nánu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, er nauðsynlegt svo að atvinnulíf og samfélag vaxi og dafni. Fjölbrautaskóli Suðurnesja hefur verið mikil lyftistöng fyrir samfélagið á Suðurnesjum frá stofnun árið 1976. Menntaskólinn Ásbrú (Keilir), Fisktækniskólinn og MSS eru stofnanir sem orðið hafa til vegna frumkvæðis einkaaðila, sveitarfélaga á Suðurnesjum og fyrirtækja á svæðinu. Þörfin fyrir fjölbreyttar námsleiðir, starfsþjálfun og endurmenntun hefur verið áþreifanleg. Nú eru þessar menntastofnanir orðnar rótgrónar í samfélaginu og hafa sannað gildi sitt. Menntunarstig fólks á svæðinu hefur hækkað, sérstaklega kvenna. Það er ekki síst bættu aðgengi að námi að þakka sem og fjölbreyttum námsleiðum og sveigjanlegum kennsluháttum. Höldum áfram þessa leið.

Breyttar kröfur vinnumarkaðarins

Sjálfvirknivæðing undanfarinna ára og hraðar tæknibreytingar munu ekki hægja á sér. Með þeim breytingum er einsýnt að kröfur um fjölbreytta menntun á framhaldsskólastigi sem og ákall eftir nútímalegum og sveigjanlegum kennsluháttum muni halda áfram að aukast. Ný tækifæri eru handan við hornið. Í skýrslu starfshóps forsætisráðuneytisins um Ísland og fjórðu iðnbyltinguna kemur fram að líkur á sjálfvirknivæðingu starfa minnka með hærra menntunarstigi. Líklegt er að mörg störf sem krefjast lítillar menntunar muni hverfa eða taka miklum breytingum. Vægi framhaldsskólanáms verður því sífellt meira og þörfin fyrir fjölbreyttar námsleiðir vex. Því þarf að auka áherslu á tæknigreinar og nýsköpun auk þess að halda áfram að bjóða upp á hefðbundið bóknám og iðngreinar. Menntun er máttur.

Áfram veginn!

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

Greinin birtist fyrst í Víkurfréttum 7. október 2020.

Categories
Greinar

Lengi lifi ís­lensk kvik­mynda­gerð!

Deila grein

07/10/2020

Lengi lifi ís­lensk kvik­mynda­gerð!

Í dag er ég er glöð því í fyrsta skipti í sögu þessarar þjóðar er lögð fram heildstæð stefna íslenskra stjórnvalda í kvikmyndagerð. Því ber að fagna. Íslenskri kvikmyndagerð hefur fleygt fram og er nú í hæsta gæðaflokki. Það færi verðum við að nýta. Í stefnu Framsóknarflokksins er lögð áhersla á að styðja við skapandi greinar, listir og menningarstarfsemi, ekki síst vegna þess að sýnt hefur verið fram á að slíkur stuðningur skilar sér margfalt til baka til samfélagsins. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Mennta og menningarmálaráðherra Framsóknarflokksins hefur komið áherslum flokksins áfram með myndarlegri kvikmyndarstefnu sem ber nafnið Kvikmyndastefna til ársins 2030 – listgrein á tímamótum.

Ísland land tækifæranna

Markmiðið með kvikmyndastefnunni er að auðga kvikmyndarmennningu, sem styrkir sjálfsmynd þjóðarinnar og eflir íslenska tungu. Bjóða á uppá fjölbreyttari og metnaðarfyllri kvikmyndamenntun, styrkja samkeppnisstöðu greinarinnar og styðja við að Ísland verði þekkt alþjóðlegt vörumerki á sviði kvikmyndagerðar. Stefnan er komin, nú þurfum við bara að vinna saman og ná þessum markmiðum. Við Íslendingar getum verið stoltir yfir þeim góðu listamönnum sem hér búa, það er ekki sjálfgefið að svo fámenn þjóð eigi jafn marga frambærilega listamenn. Með auknu framboði í námi í kvikmyndagerð verður stuðlað að áframhaldandi vexti íslenskra listamanna.

Kvikmyndagerð skapar atvinnu

Kvikmyndagerð er listgrein en hún er líka svo miklu meiri en það. Hún er ört vaxandi iðngrein sem hefur alla burði til að styðja við verðmætasköpun og samkeppnishæfni þjóðarbúsins á næstu árum og áratugum. Kvikmyndagerð skapar umtalsverð verðmæti fyrir ríkissjóð, skapar á fjórða þúsund beinna og afleiddra starfa og laðar að erlenda fjárfestingu. Á bakvið eina bíómynd eru mörg handtök og mörg sérhæfð störf lista- og kvikmyndagerðarmanna en við framleiðslu á kvikmynd skapast fjöldi annarra afleiddra starfa. Með því að laða til landsins stór erlend verkefni styður það enn frekar við íslenska ferðaþjónustu út um allt land hvort sem um er að ræða t.d. gistiheimili, hótel, leiðsögumenn, bílaleigur eða veitingastaði. Er þá ótalinn öll sú landkynningin sem kvikmyndagerð getur fært okkur til framtíðar. Allt helst þetta í hendur. Áfram veginn!

Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokks.

Greinin birtist fyrst á visir.is 7. október 2020.

Categories
Greinar

Hvaða íslenski sjónvarpsþáttur er bestur?

Deila grein

07/10/2020

Hvaða íslenski sjónvarpsþáttur er bestur?

Íslendingar elska íslenskt sjónvarpsefni! Allt frá því að Hrafn Gunnlaugsson, Egill Eðvarðsson og Björn G. Björnsson færðu þjóðinni fyrstu alísl­ensku þáttaröðina árið 1977 – Undir sama þaki – og fram á þennan dag, safnast kynslóðirnar saman við sjónvarpsskjáinn til að upplifa eitthvað alveg sérstakt. Tækniþróun og erlendar streymisveitur hafa skapað fjölmörg tækifæri fyrir íslenskt þáttagerðarfólk, bæði til fjármögnunar og dreifingar. Íslenskt efni nýtur vinsælda víða um heim, nú síðast Brot, sem framleitt var í samstarfi við Netflix og var um tíma efst á áhorfslistum streymisveitunnar. Þrátt fyrir vinsældirnar hefur fjármögnun á íslenskum sjónvarpsþáttum gjarnan verið þung. Kvikmyndasjóður hefur haft takmarkaða burði til að uppfylla þarfirnar, enda umsóknir í sjóðinn langt umfram stærð hans og kvikmyndir í fullri lengd fjárfrekar.

Til að mæta þessari brýnu þörf verður settur á laggirnar sérstakur fjárfestingarsjóður sjónvarpsefnis og er tilurð hans hluti af heildstæðri kvikmyndastefnu fyrir Ísland, sem kynnt var í gær. Sjóðurinn verður rekinn að fyrirmynd Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins og er ætlað að ýta undir framleiðslu, sölu og dreifingu leikinna sjónvarpsþáttaraða. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn fjárfesti í allt að þremur þáttaröðum á ári fyrst um sinn, en í náinni framtíð gæti framleiðslugeta orðið allt að tíu til tólf þáttaraðir á ári.

Sú ríka þörf Íslendinga um aldir að segja sögur hefur orðið kveikjan að hundruðum kvikmyndaverka sem mörg eiga stóran sess í hjörtum okkar. Fyrir elju, einurð og sterka sýn þeirra sem starfað hafa að kvikmyndagerð er nú í mótun burðug list- og atvinnugrein sem stenst fyllilega alþjóðlegan samanburð. Velta greinarinnar hefur þrefaldast á áratug og skapað þúsundir starfa. Þá fjölbreyttu flóru þarf að vökva, svo hún blómstri um ókomna tíð, tryggja greininni bestu mögulegu aðstæður til að vaxa og dafna. Með kvikmyndastefnu til ársins 2030 er vörðuð raunsæ en metnaðarfull braut inn í framtíðina.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og varaformaður Framsóknar.

Greini birtist fyrst í Fréttablaðinu 7. október 2020.

Categories
Greinar

Góður kennari gerir kraftaverk

Deila grein

05/10/2020

Góður kennari gerir kraftaverk

Alþjóðadag­ur kenn­ara er í dag. Fá störf eru jafn sam­fé­lags­lega mik­il­væg og kenn­ara­starfið. Við mun­um öll eft­ir kenn­ur­um sem höfðu mik­il áhrif á okk­ur sem ein­stak­linga, námsval og líðan í skóla.

Góður kenn­ari skipt­ir sköp­um. Góður kenn­ari mót­ar framtíðina. Góður kenn­ari dýpk­ar skiln­ing á mál­efn­um og fær nem­andann til að hugsa af­stætt í leit að lausn­um á viðfangs­efn­um. Góður kenn­ari opn­ar augu nem­enda fyr­ir nýj­um hlut­um, hjálp­ar þeim áfram á beinu braut­inni og stend­ur við bakið á þeim sem þurfa á því að halda. Góður kenn­ari tek­ur upp hansk­ann fyr­ir þá sem minna mega sín og ger­ir krafta­verk í lífi barns. Góður kenn­ari lyft­ir þung­um brún­um og get­ur kallað fram hlátra­sköll. Góður kenn­ari styrk­ir ein­stak­ling­inn.

Skólastarf á tím­um heims­far­ald­urs er ómet­an­legt. Þegar fyrst var mælt fyr­ir um tak­mark­an­ir á skóla­haldi, þann 13. mars, var rík áhersla lögð á mikið og gott sam­ráð við lyk­ilaðila í skóla­sam­fé­lag­inu; Kenn­ara­sam­band Íslands, Sam­band ís­lenskra sveit­ar­fé­laga, skóla­meist­ara og rek­tora, og ekki síður nem­end­ur. Það sam­starf hef­ur skilað góðum ár­angri, gagn­kvæm­um skiln­ingi á stöðu ólíkra hópa og sam­tali sem tryggt hef­ur skólastarf í land­inu, á sama tíma og börn í mörg­um öðrum lönd­um hafa þurft að sitja heima.

Nem­end­ur á öll­um skóla­stig­um eru yfir hundrað þúsund tals­ins. Í leik- og grunn­skól­um eru um 64.650 nem­end­ur og 11.450 starfs­menn. Í fram­halds- og há­skól­um eru um 41.000 nem­end­ur. Aðstæður skóla og nem­enda hafa verið ólík­ar í heims­far­aldr­in­um og skoðanir um aðgerðir á hverj­um tíma skipt­ar. All­ir hafa þó lagst á eitt við að tryggja ör­yggi og vel­ferð nem­enda og starfs­fólks og ég dá­ist mjög að þeirri seiglu sem birt­ist í ár­angr­in­um. Það er ómet­an­legt fyr­ir börn að kom­ast í skól­ann sinn, að læra og eiga fast­an punkt í til­veru sem er að hluta til á hvolfi.

Við erum menntaþjóð. Við vilj­um vera sam­fé­lag sem hugs­ar vel um kenn­ara sína, sýn­ir þeim virðingu og þá viður­kenn­ingu sem þeir eiga skilið. Við vilj­um vera sam­fé­lag sem fjár­fest­ir í mennt­un, enda er framúrsk­ar­andi mennt­un ein meg­in­for­senda þess að Ísland verði sam­keppn­is­hæft á alþjóðavett­vangi. Fjár­laga­frum­varpið í ár sýn­ir glögg­lega mik­il­vægi mennt­un­ar og hvernig for­gangsraðað er í þágu þessa.

Aldrei hef ég verið eins stolt af ís­lensku mennta­kerfi og ein­mitt nú, þegar hindr­un­um er rutt úr vegi af fag­mennsku og góðum hug. Kenn­ar­ar og skóla­stjórn­end­ur hafa sýnt mikla yf­ir­veg­un og bar­áttu­vilja. Um­hyggja, sveigj­an­leiki og þraut­seigja hef­ur verið leiðarljósið okk­ar nú í haust og við mun­um halda áfram á þeirri veg­ferð. Ég hvet alla til að halda áfram að vinna að far­sæl­um lausn­um á þeim verk­efn­um sem blasa við okk­ur.

Kæru kenn­ar­ar. Ykk­ar fram­lag í bar­átt­unni við veiruna skæðu verður seint fullþakkað. Takk fyr­ir að halda áfram að kenna börn­un­um okk­ar og leggja ykk­ur fram við að bjóða nem­end­um upp á eins eðli­legt líf og hægt er.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra og varaformaður Framsóknar.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 5. október 2020.

Categories
Greinar

Spennandi upphaf

Deila grein

01/10/2020

Spennandi upphaf

Þing­setn­ing­ar­dag­ur­inn 1. októ­ber er gleðidag­ur. Hann mark­ar upp­haf sam­starfs á þingi, þar sem öll mál eru sett fram af heil­um hug þing­manna og full­vissu um að málið bæti sam­fé­lagið.

Þings­álykt­un um mennta­stefnu til 2030

Und­an­farið hef­ur mennta­kerfið staðist mikið álag. Við eig­um áfram að sækja fram til að tryggja framúrsk­ar­andi mennt­un á öll­um skóla­stig­um og í haust mun ég kynna til­lögu til þings­álykt­un­ar um mennta­stefnu til árs­ins 2030, þar sem mennt­un lands­manna er í önd­vegi. Stefn­an er afrakst­ur mik­ill­ar sam­vinnu allra helstu hagaðila og þar verður áhersla lögð á fjög­ur mark­mið: jöfn tæki­færi til náms, kennslu í fremstu röð, gæði skóla­starfs­ins og hæfni mennta­kerf­is­ins til framtíðar. Ég hlakka til að tala fyr­ir henni á þingi, enda er mennta­kerfi lyk­ilþátt­ur í sam­keppn­is­hæfni þjóðar­inn­ar.

Auk­in rétt­indi eft­ir iðnnám

Í ljósi breyt­inga í fram­halds­skól­um á liðnum árum er nauðsyn­legt að bæta stöðu þeirra sem hafa lokið öðru prófi en stúd­ents­prófi. Ég vil að gildi loka­prófa taki mið af hæfni og þekk­ingu nem­enda, en ekki að eitt sé sjálf­krafa æðra öðru, og mun mæla fyr­ir laga­breyt­ingu í þá veru. Með henni vil ég ýta und­ir að nem­end­ur fái notið þeirr­ar hæfni, þekk­ing­ar og færni sem þeir hafa öðlast með ólík­um loka­próf­um frá mis­mun­andi fram­halds­skól­um. Mik­il­vægt er að vægi ein­inga verði gegn­sætt og end­ur­spegli til­tek­inn mæli­kv­arða, svo náms­lok frá fram­halds­skóla verði met­in með sam­bæri­leg­um hætti við inn­rit­un í há­skóla.

Álykt­un um menn­ing­ar­stefnu til 2030

Und­ir­bún­ing­ur að gerð menn­ing­ar­stefnu til árs­ins 2030 er í full­um gangi. Ég vona að hún verði hvatn­ing og inn­blást­ur til þeirra fjöl­mörgu sem vinna á sviði ís­lenskr­ar menn­ing­ar til að halda áfram sínu góða starfi. Menn­ing skap­ar sam­fé­lag, ger­ir okk­ur mennsk, og er því ómet­an­leg. Okk­ur ber að rækta menn­ing­una, setja markið hátt og ná ár­angri. Stefn­an á að nýt­ast stjórn­völd­um í allri umræðu um menn­ing­ar­mál, stefnu­mót­un á af­mörkuðum sviðum og ákv­arðana­töku.

Sterk­ir fjöl­miðlar

Í stjórn­arsátt­mála rík­is­stjórn­ar­inn­ar eru fyr­ir­heit um bætt rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Því verki er ekki lokið og því mun ég leggja fram fjöl­miðlafrum­varpið svo­kallaða í þriðja sinn. Ég vænti þess að samstaða ná­ist um frum­varpið, enda hef­ur málið lengi verið á döf­inni og þörf­in brýn. Reynsl­an af Covid-19-stuðningi við fjöl­miðla á þessu ári sýn­ir líka að hægt er að út­færa stuðning af þessu tagi á sann­gjarn­an hátt. Fjöl­miðlar gegna mik­il­vægu hlut­verki við að efla sam­fé­lags­lega umræðu. Stuðning­ur ger­ir fjöl­miðlum kleift að efla rit­stjórn­ir sín­ar, vera vett­vang­ur skoðana­skipta og tján­ing­ar­frels­is og rækja hlut­verk sitt sem einn af horn­stein­um lýðræðis­ins.

Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra og varaformaður Framsóknar.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 1. október 2020.

Categories
Greinar

Öflug byggða­stefna

Deila grein

30/09/2020

Öflug byggða­stefna

Það er á­nægju­legt að sjá og meta fram­gang byggða­á­ætlunar það sem af er og ég tel að vel hafi tekist til bæði við fram­kvæmd og fyrir­komu­lag á­ætlunarinnar. Vel hefur gengið að sam­þætta byggða­sjónar­mið við aðrar stefnur og á­ætlanir ríkis og sveitar­fé­laga: byggða­gler­augun eru nú sett upp á f leiri stöðum en áður hefur verið. Vissu­lega mætti vera meira fjár­magn úr að spila en það fé sem til ráð­stöfunar er hefur verið vel nýtt.

Einnig hefur tekist vel til við að virkja marga aðila þvert á hrepps­mörk, stjórn­sýslu­stig og mála­flokka, og sveitar­stjórnar­stigið er mun betur tengt við fram­kvæmd byggða­á­ætlunar en áður. Það var hár­rétt á­kvörðun að sam­þætta byggða- og sveitar­stjórnar­mál undir einum ráð­herra. Þegar horft er yfir sviðið og farinn veg tel ég full­ljóst að sveitar­stjórnar- og byggða­mál verði ekki að­skilin héðan í frá.

Loft­brúin (Skoska leiðin) er ein mikil­vægasta byggða- og sam­göngu­að­gerð síðari ára. Loft­brúin veitir 40% af­slátt af heildar­far­gjaldi fyrir allt að sex flug­leggi á ári og er mark­miðið að bæta að­gengi íbúa á lands­byggðinni sem búa fjarri höfuð­borginni að mið­lægri þjónustu. Ljóst er að hér er um mikið rétt­lætis­mál að ræða fyrir þá sem búa fjarri höfuð­borginni og bæði vilja og þurfa að sækja þjónustu þangað. Það er því sér­stak­lega á­nægju­legt að Loft­brúin sé nú orðin að veru­leika og komin til fram­kvæmda.

Í byrjun sumars hélt byggða­mála­ráð góðan um­ræðu­fund um endur­skoðun byggða­á­ætlunar, hvar við stöndum og hvert beri að stefna til fram­tíðar. Það var mjög gott að fá yfir­lit yfir byggða­stefnu og að­gerðir á Norður­löndunum. Við endur­skoðun byggða­á­ætlunar er mikil­vægt að skoða sér­stak­lega hvaða að­gerðir eru að skila árangri og byggja á­fram á þeim verk­efnum sem hafa þótt reynast vel.

Um leið er ljóst að sveitar­stjórnar­fólk um land allt lætur sig byggða­mál varða og það þurfum við líka að gera hér á höfuð­borgar­svæðinu. Byggða­stefna á að ná til landsins alls, en ekki bara til veikustu byggðar­laganna eins og áður var. Það er mikil­vægt fyrir okkur sem munum nú bera á­byrgð á því fyrir hönd ráð­herra og ríkis­stjórnar að endur­skoða byggða­á­ætlun og tryggja að hún verði það verk­færi sem byggðir landsins hafa þörf fyrir.

Við höfum úr miklu að moða og höldum glöð til móts við verk­efnið. Að lokum vil ég hvetja alla lands­menn, nær og fjær, til að taka þátt í því opna sam­ráðs­ferli sem nú stendur yfir. Mótum saman nýja og öfluga byggða­stefnu fyrir landið.

Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður byggðamálaráðs.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 30. september 2020.

Categories
Greinar

Stöndum vörð um fjöl­skyldur og sam­fé­lag!

Deila grein

29/09/2020

Stöndum vörð um fjöl­skyldur og sam­fé­lag!

Þann 22. ágúst 2019 skipaði Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, nefnd í tengslum við heildarendurskoðun laga um fæðingar- og foreldraorlof. Frumvarp nefndarinnar var svo kynnt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda þann 23. september sl. Nokkur umræða hefur skapast um niðurstöðu nefndarinnar hvað varðar skiptingu orlofs, en nefndin leggur til að sjálfstæður réttur hvors foreldris verði sex mánuðir, en foreldrum verði þó heimilt að framselja einn mánuð sín á milli.

Í aðsendri grein í Morgunblaðinu heldur Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, því fram að frumvarp nefndarinnar sé aðför að fæðingarorlofskerfinu. Hann stingur uppá því að áfram verði þrír mánuðir til ráðstöfunar fyrir hvort foreldri og sex mánuðir til skiptana. Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, hefur einnig gert tillögu nefndarinnar að umfjöllunarefni sínu og segir að “óþolandi forræðishyggja og ósveiganleiki mun bara koma til með að bitna á börnum og fjölskyldum”. Þá hefur Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, lýst því yfir að Miðflokkurinn muni leggja fram tillögu þess efnis að foreldrar eigi rétt til sameiginlegs fæðingarorlofs í tólf mánuði og geti skipt þeim með sér eins og þeim hentar. Rétt er að benda á að Vilhjálmur, Halldóra og Anna Kolbrún eru fulltrúar sinna flokka í velferðarnefnd Alþingis.

Innan nefndar um heildarendurskoðun laganna skapaðist opin og gagnleg umræða um það hvernig best væri að hátta skiptingu orlofs milli foreldra. Við vinnu nefndarinnar fékk hún til sín fulltrúa ýmissa hagsmunahópa sem og fræðasamfélagsins og tel ég frumvarpið í heild sinni bera þess vitni. Fulltrúar í nefndinni voru sammála um að mikilvægt væri að hafa sjálfstæðan rétt foreldra sem jafnastan og fyrir því eru margvísleg rök. Ber að nefna að niðurstöður rannsókna sýna ótvírætt fram á að sem jöfnust skipting fæðingarorlofs milli foreldra hefur margvísleg jákvæð áhrif á börn, fjölskyldur og samfélag.

Eitt meginmarkmið frumvarpsins er að tryggja barni samvistir við báða foreldra. Ljóst er að ef meirihluti fæðingarorlofsins væri sameiginlegur væri barni ekki endilega tryggð samvist nema við annað foreldrið. Enda sýna rannsóknir eindregið fram á að feður taka síður orlof eftir því sem framseljanlegur tími er lengri. Hagurinn af jöfnum sjálfstæðum rétti foreldra er ríkur. Má nefna að feður verða virkari við uppeldi barna sinna og treysta sér frekar til þess að taka ákvarðanir sem varða framtíð þeirra. Virkni foreldra við uppeldi barna sinna leiðir til þess að börn leiti frekar til foreldra seinna á lífsleiðinni með erfið mál. Af þessu leiðir betra samband og sterkari tengsl milli barns og foreldris. Þá er afar athyglisvert að nefna að lífslíkur feðra sem taka orlof er marktækt lengri en þeirra sem ekki taka orlof.

Fyrstu mánuðirnir og árin í lífi barns eru í senn krefjandi og gefandi tími fyrir foreldra þess. Foreldrar þurfa að takast á við nýjar áskoranir og feta ótroðnar slóðir í parasambandinu. Ef skoðuð er tölfræði þá kemur í ljós að skilnaðir eru algengir þegar börn eru á aldrinum 1-2 ára og um 60% allra skilnaða verða á fyrstu æviárum barna. Afleiðingarnar eru margvíslegar á líf þeirra einstaklinga sem um ræðir. Í þessu samhengi er nauðsynlegt að hafa í huga að sýnt hefur verið fram á að það hafi verndandi áhrif fyrir parasambandið að feður séu virkir í töku fæðingarorlofs til jafns við mæður.

Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi þess að einstæðir foreldrar deili álagi og ábyrgð á uppeldi barna sinna. Þannig leiðir aukin taka fæðingarorlofs einstæðra feðra og virk þáttaka þeirra í umönnun barna sinna til sterkari fjárhagslegrar stöðu einstæðra mæðra. Jafn sjálfstæður réttur til orlofs er mikilvægur þáttur í því að brjóta niður hlekki fjárhagslegrar og félagslegrar einangrunar.

Annað markmið laganna er að gera foreldrum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Staðreyndin er sú að jafn sjálfstæður réttur foreldra jafnar aðstöðumun kynjanna og styrkir aðstöðu foreldra gagnvart vinnuveitendum. Þá sýna rannsóknir skýrt fram á að jöfn skipting orlofs dregur marktækt úr kynbundnum launamun. Ef við skoðum samþættingu brjóstagjafar og atvinnulífs þá felur frumvarp nefndarinnar það í sér að foreldri hafi nú í fyrsta sinn sex mánaða sjálfstæðan rétt til orlofs. Þetta tryggir rétt kvenna gagnvart atvinnurekendum til að uppfylla lágmarkskröfur Alþjóðaheilbriðismálastofnunarinnar hvað varðar brjóstagjöf.

Ég má til með að nefna að Kvenréttindafélag Íslands hefur lengi barist fyrir jafnri skiptingu réttinda foreldra í fæðingarorlofi og hefur lýst yfir að endurskoðun núgildandi laga sé löngu tímabær. Þá sýnir félagið einnig mikla framsýni í afstöðu sinni að réttindum á vinnumarkaði eigi ekki að deila með öðrum.

Ég tel mikilvægt að það komi fram að það frumvarp sem nú er í samráðsgátt stjórnvalda er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem rík áhersla er lögð á jafnrétti kynjanna og að markviss skref verði tekin til þess að útrýma kynbundnum launamun. Þá er mikilvægt að hafa í huga að engin vísindaleg rök mæla með mikilli tilfærslu orlofs milli foreldra. Þvert á móti hefur verið sýnt fram á mikilvægi sjálfstæðra óframseljanlegra réttinda.

Frumvarpið er stórt skref í átt að betra samfélagi. Það veitir börnum og foreldrum lengri tíma til samvista og gefur foreldrum jöfn tækifæri til að njóta sín í bæði fjölskyldu- og atvinnulífi.

Stöndum vörð um fjölskyldur landsins og byggjum betra samfélag til framtíðar.

Friðrik Már Sigurðsson, formaður nefndar um heildarendurskoðun laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof.

Greinin birtist fyrst á visir.is 28. september 2020.

Categories
Greinar

Dagur norrænu grannríkjanna í vestri

Deila grein

24/09/2020

Dagur norrænu grannríkjanna í vestri

Vestn­or­ræna deg­in­um, sem hald­inn er hátíðleg­ur 23. sept­em­ber ár hvert, voru gerð góð skil með veg­legri dag­skrá í Nor­ræna hús­inu á dög­un­um. Mark­mið dags­ins er að styrkja og gera sýni­legt menn­ing­ar­sam­starf milli Fær­eyja, Græn­lands og Íslands. Í ár var áhersl­an á menn­ingu, sjálfs­mynd og tungu­mál og hvernig við not­um móður­málið í skap­andi aðstæðum.

Veiga­mik­ill þátt­ur í hátíðahöld­um dags­ins var að staldra við og fara yfir hvaða þýðingu vestn­or­ræna sam­starfið hef­ur. Það eru ákveðnir þætt­ir sem tengja lönd­in sam­an sem öll hafa það sam­eig­in­legt að vera eyríki sem nýta mögu­leika nátt­úr­unn­ar um leið og þau tak­ast af æðru­leysi á við áskor­an­ir sem henni fylgja. Íbúar vestn­or­rænu ríkj­anna hafa all­ir móður­mál sem talað er af fá­menn­um hópi fólks sem und­ir­strik­ar sér­stöðu þeirra.

Sögu­leg og menn­ing­ar­leg tengsl

Það er mik­il­vægt sem aldrei fyrr að horfa inn á við og halda á lofti góðu og nánu sam­starfi milli vestn­or­rænu ríkj­anna. Sam­starf þjóðanna er reist á sögu­leg­um og menn­ing­ar­leg­um tengsl­um ásamt sam­eig­in­leg­um hags­mun­um í efna­hags­mál­um og um­hverf­is­mál­um. Vestn­or­ræna ráðið hef­ur á liðnum árum lagt höfuðáherslu á um­hverf­is­mál, menn­ing­ar­mál, sjáv­ar­út­vegs­mál, sam­göng­ur og viðskipta­mál. Unnið hef­ur verið mark­visst að því að efla stöðu Íslands sem tengipunkts á sviði sam­göngu- og ferðamála á þessu svæði. Einnig hef­ur mik­il­vægi þess að efla tengsl við ná­granna­lönd vestn­or­rænu land­anna í austri og vestri með upp­bygg­ingu skipu­lagðrar svæðis­sam­vinnu á Norðvest­ur-Atlants­hafs­svæðinu í huga sýnt sig að bera ávinn­ing fyr­ir hlutaðeig­andi aðila.

Aukið sam­starf á ýms­um sviðum

Á und­an­förn­um mánuðum, á tím­um Covid-19, hef­ur komið í ljós hversu þýðing­ar­mikið vestn­or­rænt sam­starf er lönd­un­um. Fær­eyj­ar voru meðal fyrstu landa til að opna á kom­ur farþega frá Íslandi, sem var mik­il­vægt fyrsta skref í af­námi ferðahindr­ana milli Norður­landaþjóðanna. Þegar að því kem­ur að við náum yf­ir­hönd­inni í bar­átt­unni við þenn­an vá­gest ætti það að vera æski­legt fyr­ir lönd­in þrjú að vinna sam­an í að efla ferðamennsku á svæðinu. Það hef­ur sýnt sig að svæðið allt hef­ur mikið aðdrátt­ar­afl fyr­ir ferðafólk.

Þá hafa for­send­ur fyr­ir aukn­um flutn­ingi á vör­um og fólki aldrei verið betri meðal nor­rænu grann­ríkj­anna í vestri. Nú sjást vör­ur frá Íslandi í hill­um dag­vöru­versl­ana í Nuuk, í fram­haldi af sam­starfi Eim­skips og Royal Arctic Line, þar sem fé­lög­in skipta með sér plássi í skip­um sín­um í sigl­ing­um á milli Græn­lands, Íslands, Fær­eyja og Skandi­nav­íu. Þá verða nýju flug­vell­irn­ir þrír á Græn­landi ekki aðeins hags­bót fyr­ir Græn­land og Græn­lend­inga held­ur allt vestn­or­ræna svæðið.

Á tím­um sem þess­um eru heil­brigðismál og geta heil­brigðis­kerfa til að tak­ast á við erfið verk­efni og áföll of­ar­lega í huga okk­ar allra. Við von­umst eft­ir auknu vestn­or­rænu sam­starfi um heil­brigðismál. Þá þarf að huga að hags­mun­um ungs fólks á vestn­or­ræna svæðinu. Vinna þarf bet­ur að því að auka sam­starf og sam­gang ungs fólks og þar skipta sköp­um mögu­leg mennt­unar­úr­ræði þvert á lönd­in.

Miðjan fær­ist nær vestn­or­rænu sam­starfi

Á síðasta ári í for­mennskutíð Íslands í Nor­rænu ráðherra­nefnd­inni var samþykkt ný stefnu­mörk­un um þróun Atlants­hafs­sam­starfs­ins, sem hef­ur hlotið yf­ir­skrift­ina NAUST. Það fel­ur í sér nán­ara sam­starf milli Fær­eyja, Græn­lands, Íslands og strand­lengju Nor­egs frá Roga­landi til Finn­merk­ur. Hér er kom­inn veg­vís­ir fyr­ir sam­starfið í heild sinni og stuðlar að því að efla tengsl og sam­skipti á svæðinu. Stefnu­mörk­un­in er enn ein viðbót­in við hið far­sæla og mik­il­væga vestn­or­ræna sam­starf og það er mik­il­vægt að leita leiða til að efla það enn frek­ar. En for­gangs­röðun verk­efna inn­an ramma NAUST bygg­ist á vel­ferðar- og jafn­rétt­is­mál­um, mál­efn­um hafs­ins og bláa hag­kerf­is­ins, orku­mál­um, sam­göng­um og björg­un á sjó, sjálf­bærni í ferðaþjón­ustu og menn­ing­ar­mál­um. Því má segja að miðjan fær­ist nær hinu vestn­or­ræna sam­starfi.

Sig­urður Ingi Jóhannsson, sam­starfs­ráðherra Norður­landa og

Silja Dögg Gunnarsdóttir, for­seti Norður­landaráðs.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 24. september 2020.