Það er komið að fyrsta vöfflukaffi og laugardagasfundi vetrarins hjá Framsókn í Reykjanesbæ. Bæjarfulltrúar verða á staðnum og fara yfir upphaf nýs kjörtímabils.

07/10/2022
Laugardagskaffi í ReykjanesbæÞað er komið að fyrsta vöfflukaffi og laugardagasfundi vetrarins hjá Framsókn í Reykjanesbæ. Bæjarfulltrúar verða á staðnum og fara yfir upphaf nýs kjörtímabils.
07/10/2022
22. Kjördæmisþing KFNA haldið á Selhóteli við Mývatn 22. október 2022Laugardagur 22. október
13:00 Setning og kosning starfsmanna þingsins:
Tveggja þingforseta
tveggja þingritara
Þriggja fulltrúa í kjörbréfanefnd
Uppstillingarnefnd
13:10 Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram
13:30 Ávörp gesta:
14:15 Almennar stjórnmálaumræður
15.15 Kaffihlé
15:30 Stjórnmálaályktanir
15:45 Nefndastörf
16:30 Ályktanir lagðar fyrir þing
17:00 Lagabreytingar/ fjármál
17:10 Kosningar:
Þrjá fulltrúa í stjórn KFNA til tveggja ára og fimm varafulltrúa til eins árs.
Formann kjörstjórnar
Sex fulltrúa í kjörstjórn
Fulltrúa KFNA í miðstjórn Framsóknarflokksins samkvæmt lögum flokksins Tvo skoðunarmenn reikninga og tvo til vara
17:30 Önnur mál
18:00 Þingslit
Þinggjöld 5.000,- pr. fulltrúa, aðildarfélög eru vinsamlegast beðin að borga fyrir sína félagsmenn samkvæmt kjörbréfi og leggja inná reikning KFNA í síðasta lagi þann 22. október kt: 691101-2740 banki 0162 hb 26 reikningur 075740
Eins manns herbergið á 16.000,- með morgunmat nóttin
Tveggja manna herbergið á 18.000,- með morgunmat nóttin
Panta þarf herbergi hjá Pálínu á maili palinam@asa.is eða í síma 869-8216, fyrir 8. október
Kjörbréfum skal skila eigi síðar en þann 15. október
Skráningu í kvöldverð skal einnig skila 15. október
Kvöldverðurinn verður svo hlaðborð hússins og kostar 6.500 kr á mann og þarf að skila skráningu um kvöldverð á sama tíma og kjörbréfum þann 15. október
Reyktur silungur, grafinn lax, sjávarréttapaté, marineraðir sjávarréttir, brauð – salat Lambakjöt – kjúklingur svínakjöt ásamt sósum, kartöflum og meðlæti Eftirréttahlaðborð Kaffi og súkkulaði
Mynd: myvatn.is 7. október 2022.
06/10/2022
95% samanborið við 57%Endurreisn ferðaþjónustunnar á Íslandi hefur tekist vel eftir áföll heimsfaraldursins. Þannig hefur ferðaþjónusta á Íslandi náð 95% af fyrri styrk frá því fyrir heimsfaraldur samanborið við 57% þegar horft er á ferðaþjónustu á heimsvísu samkvæmt tölum frá Alþjóðaferðamálastofnuninni, einni af undirstofnunum Sameinuðu þjóðanna. Þetta eru áhugaverðar tölur sem við getum verið stolt af.
Gott gengi ferðaþjónustunnar skiptir miklu máli en hún er sú atvinnugrein sem skapar mestan erlendan gjaldeyri fyrir þjóðarbúið. Þróttmikill vöxtur greinarinnar undangenginn áratug hefur átt stóran þátt í að gera Seðlabankanum kleift að byggja upp öflugan og óskuldsettan gjaldeyrisvaraforða sem vegur nú um 30% af landsframleiðslu miðað við um 5% af landsframleiðslu á árunum fyrir fjármálaáfallið 2008. Þessi sterka staða eykur sjálfstæði og getu peningastefnunnar ásamt því að gera stjórnvöldum kleift að stunda markvissari og skilvirkari efnahagsstjórn, bregðast örugglega við efnahagslegum áföllum og stuðla að stöðugleika fyrir heimili og fyrirtæki í landinu.
Þessi kröftuga viðspyrna ferðaþjónustunnar á árinu gerist ekki af sjálfu sér. Forsenda hennar er mikil útsjónarsemi og þrautseigja ferðaþjónustufyrirtækjanna og starfsfólks þeirra í góðu samstarfi við stjórnvöld í gegnum heimsfaraldurinn. Tíminn var vel nýttur þar sem stjórnvöld lögðu áherslu á að styðja við fólk og fyrirtæki í gegnum faraldurinn. Þannig náðist að verja mikilvæga þekkingu fyrirtækjanna og þá innviði sem nauðsynlegir eru til að taka á móti fjölda ferðamanna á ný. Að sama skapi var aukið verulega við fjárfestingar í innviðum, bæði í samgöngum og á ferðamannastöðum, svo þeir yrðu betur í stakk búnir til að taka á móti fleiri gestum á ný. Aukinheldur ákvað ríkisstjórnin að verja háum fjárhæðum í markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað, með markaðsverkefninu „Saman í sókn“ í gegnum allan faraldurinn, þrátt fyrir litla eftirspurn eftir ferðalögum á þeim tíma. Eitt af fyrstu verkum mínum sem ferðamálaráðherra var að setja 550 m.kr. í aukna markaðssetningu til að skapa fleiri tækifæri fyrir íslenska ferðaþjónustu um allt land, en mælingar á lykilmörkuðum hafa aldrei sýnt jafn ríkan vilja til að ferðast til Íslands og nú.
Við lifum á tímum þar sem ýmsar stórar og krefjandi áskoranir blasa við okkur í heimsmálunum. Það hefur því aldrei verið jafn mikilvægt og nú að vera á vaktinni og gæta að íslenskum hagsmunum í hvívetna og tryggja áframhaldandi lífskjarasókn á grundvelli öflugs atvinnulífs til framtíðar.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra og varaformaður Framsóknar.
Greinin birtist fyrst á mbl.is 6. október 2022.
06/10/2022
Skrifum söguna áfram á íslenskuLilja Dögg Alfreðsdóttir: „Heyranleiki og sýnileiki íslenskunnar er grundvöllurinn að því að við sem hér búum og gestir sem koma kynnist íslensku samfélagi á forsendum íslenskunnar.“
„Ef íslenskan hverfur tapast þekking og við hættum að vera þjóð.“ Þessi orð frú Vigdísar Finnbogadóttur, fv. forseti Íslands, eru orð að sönnu og eiga erindi við okkar samfélag. Í vikunni fór fram málræktarþing Íslenskrar málnefndar í Þjóðminjasafni Íslands þar sem áskoranir tungumálsins okkar voru ræddar. Íslensk tunga stendur á krossgötum móts við bjarta framtíð eða menningarlegt stórtjón ef ekki er staðið vel að málefnum hennar. Íslenskan stendur frammi fyrir tæknibreytingum og samfélagsbreytingum. Í stað afturhaldssemi er nú nauðsynlegt fyrir íslenska tungu að standast tímans tönn með því að aðlagast með þjóðinni og nýjum málhöfum að fjölbreyttu heimssamfélagi. Fjölmenningarlegt samfélag, stafræn bylting og kröfur íbúa landsins til tungumálsins og þeirrar þjónustu sem hægt er að fá á íslensku þurfa að vera leiðarljós stjórnvalda við stefnumótun og aðgerðir í þágu íslenskunnar á næstu árum.
Margt hefur áunnist á síðastliðnum árum þökk sé meðal annars þingsályktun um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi sem samþykkt á Alþingi í júní 2019 og aðgerðaáætlun sem henni fylgdi. Meginmarkmið hennar var að íslenska væri notuð á öllum sviðum samfélagsins, íslenskukennsla og menntun yrði efld á öllum skólastigum og að framtíð íslenskrar tungu í stafrænum heimi yrði tryggð. Aukinheldur hefur fjármunum verið forgangsraðað í að styðja skapandi greinar þar sem íslenska er aðalverkfærið. Þannig var til að mynda íslensk bókaútgáfa efld með stuðningskerfi fyrir íslenska bókaútgáfu sem felur í sér endurgreiðslu allt að 25% útgáfukostnaðar íslenskra bóka. Árangurinn hefur verið frábær og fjöldi útgefinna bóka á íslensku aukist mjög. Þá var svipuðu kerfi komið á til þess að styðja við einkarekna fjölmiðla sem gegna mikilvægu hlutverki í að miðla efni á íslensku.
Stjórnvöld ætla sér áframhaldandi stóra hluti í málefnum íslenskunnar. Ráðgert er að leggja fram þingsályktunartillögu um aðgerðir í þágu íslenskrar tungu fyrir árin 2023-2025 á næsta vorþing og á næstu misserum verða áherslurnar þrenns konar:
Á ársfundi atvinnulífsins í vikunni kom forsætisráðherra inn á mikilvægi tungumálsins fyrir erlent starfsfólk til þess að komast inn í samfélagið. Því er ég sammála en auka þarf aðgengi að íslensku fyrir þá sem þurfa á því að halda í atvinnulífinu. Íslenskan er fyrir alla óháð aðstæðum þeirra sem kjósa að setjast hér að. Ísland er fjölmenningarlegt samfélag og með auknu aðgengi að íslenskunámi fjölgum við tækifærum fólks og verðum sterkari sem heild. Þetta snýr að velsæld þeirra sem hér kjósa að búa og það er ríkur vilji hjá stjórnvöldum að efla samvinnu um markvissar aðgerðir og virkja fleiri til þátttöku, hvort sem það er í menningar-, félag-, atvinnu- eða menntamálum eða atvinnulífinu. Ég tel til að mynda að stjórnvöld og atvinnulíf geti náð miklum árangri með því að vinna sameiginlega að búa svo um hnútanna að erlent starfsfólk geti sótt íslenskukennslu á vinnutíma. Það er einbeittur vilji okkar að hafa íslenskuna í forgrunni og auki aðgengi allra að henni. Umræðan á heima hjá okkur öllum því að hún er menningarleg og samfélagsleg ábyrgð okkar allra.
Íslenskan þarf að vera í fyrsta sæti í almannarými. Heyranleiki og sýnileiki íslenskunnar er grundvöllurinn að því að við sem hér búum og gestir sem koma kynnist íslensku samfélagi á forsendum íslenskunnar. Íslenskan þarf því að heyrast og sjást fyrst áður en við tökum upp önnur tungumál til að skilja hvort annað. Afla þarf upplýsinga um viðhorf almennings til tungumálsins og annarra mála. Áætlað er að taka árlega stöðu íslenskunnar og bregðast við, í samráði við íslenska málnefnd. Íslenskan á líka sinn eigin dag, Dag íslenskrar tungu, 16. nóvember næstkomandi. Farið verður í aukna vitundarvakningu á málefnum íslenskunnar á þeim degi og í kringum hann. Heil vika verður tileinkuð íslenskunni í nóvember.
Síðast en ekki síst, er það hjartans mál að við getum talað við tækin okkar á íslensku. Undanfarin ári hafa stjórnvöld ásamt atvinnulífinu fjárfest ríkulega í máltækni sem mun gera fólki kleift að tala við tæki á íslensku. Þessar aðgerðir geta veitt öðrum þjóðum og litlum málsvæðum innblástur hvernig sækja megi fram fyrir tungumálið í stafrænum heimi. Nú þegar innviðauppbyggingu í máltækni er lokið og við höfum gagnagrunna, málheildir, raddsýni, upptökur og orðasöfn sem nýtast fyrirtækjum og stofnunum í því að taka af skarið og nýta sér tólin í sínu starfsumhverfi, almenningi og íslenskunni til hagsbóta. Aðeins örfá dæmi um hagnýtingu þessara máltæknilausa eru rauntímatextun sjónvarpsefnis, þýðingarvélar á milli íslensku og ensku eða talgervilsraddir fyrir blinda og sjónskerta.
Við ætlum að sækja fram og styrkja stöðu íslenskunnar til framtíðar, því ef við gerum það ekki, gerir það enginn fyrir okkur. Stöndum því saman í því að halda íslenskunni á lofti fyrir okkur og komandi kynslóðir – og tryggjum þannig að saga þjóðar okkar verði áfram skrifuð á íslensku.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknar.
Greinin birtist fyrst á mbl.is 1. október 2022.
04/10/2022
Fjarfundur Sambands eldri FramsóknarmannaSamband eldri Framsóknarmanna (SEF) heldur Teams fund fimmtudaginn 13. október nk. kl. 20:00.
Fundarefni:
1. Stefna Framsóknarflokksins í málefnum eldra fólks.
Sigurður Ingi Jóhannsson formaður flokksins.
2. Hvað er verið að gera í málefnunum í dag.
Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður.
3. Fyrirspurnir.
4. Önnur mál
Þeir sem vilja vera á fundinum þurfa að tilkynna sig á skrifstofa flokksins í síma 540 4300 eða á netfangið johannayr@framsokn.is til að fá link á fundinn.
Munið að skrá ykkur og takið þátt. Þarna er tækifæri að fá að heyra og spyrja.
Sjáumst og heyrumst
F.h. SEF
Björn Snæbjörnsson formaður SEF.
Mynd: https://guidetoiceland.is/nature-info/the-forests-of-iceland 4. október 2022.
01/10/2022
15. Kjördæmaþing Framsóknarmanna í ReykjavíkStjórn KFR hefur boðar til 14. Kjördæmaþings Framsóknarmanna í Reykjavík miðvikudaginn 26. október kl. 20:00.
Upplýsingar um staðsetningu fundar birtast þegar nær dregur.
Mynd: loveexploring.com 1.okt. 2022.
30/09/2022
22. Kjördæmisþing KFNV 15.-16. október 2022Staðsetning: Vogur Country Lodge á Fellsströnd, Dalabyggð.
Þinggjald: 3.500 kr. / Hátíðarkvöldverður 7.900 kr.
Dagskrá:
Laugardagur 15. október kl. 13.00.
1. Setning og kosning starfsmanna þingsins
2. Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram
3. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
4. Ávörp gesta
5. Almennar stjórnmálaumræður
Kaffihlé
6. Stjórnmálaályktanir
7. Kosningar
Þinghlé
Hátíðarkvöldverður og almenn gleði
Sunnudagur 16. október kl. 10.00.
8. Nefndarstörf
9. Afgreiðsla ályktana
10. Önnur mál
Þingslit
Fundargestum býðst gisting á Vogi Country Lodge og fara bókanir fram á vogur@vogur.org. Verð til fundargesta er 15.000 kr. fyrir eins manns herbergi með baði og 20.000 fyrir tveggja manna herbergi með baði, morgunverður er á 2.500 kr. og 3ja rétta kvöldverður á laugardagskvöldi er 7.900 kr.
Formenn aðildarfélaga eru hvattir til þess að huga að því að manna kjörbréf fyrir þingið og gott væri að áhugasamir félagsmenn myndu tilkynna sig til þeirra.
Starfsnefnd hefur verið skipuð fyrir 22. Kjördæmisþing Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi (KFNV) og hefur hún þegar tekið til starfa. Hlutverk nefndarinnar að taka á móti tillögum um frambjóðendur til trúnaðarstarfa á vegum KFNV sem kosið verður um á þinginu.
Mynd: vogur.org
30/09/2022
Verklag í kjölfar náttúruhamfaraÁskoranir hafa alla tíð fylgt sambúð við náttúruöflin á Íslandi og um nýliðna helgi glímdu landsmenn sannarlega við þau. Illviðri gekk yfir, mikill vindstyrkur sem sumstaðar fylgdi mikil úrkoma og há sjávarstaða. Þetta leiddi til margs konar tjóns s.s. skriðufalla á Vestfjörðum, flóða á Akureyri, skemmda á uppskeru og gríðarlegs foktjóns. Austfirðir urðu hvað verst úti enda náði vindstyrkur þar ótrúlega víða viðmiðum fárviðris. Þegar verðrið stóð sem hæst varð auk þess rafmagnslaust á nálægt helmingi landsins, með tilheyrandi óöryggi, beinu og óbeinu tjóni.
Við getum þakkað fyrir að ekki varð manntjón um liðna helgi. Veðurspár, veðurviðvaranir, lokanir vega og vinna viðbragðsaðila komu í veg fyrir að enn meira tjón hlytist af og fyrir það ber að þakka. Viðbrögð og þrotlaus vinna björgunarsveita og annarra viðbragðsaðila skiptu sköpum á meðan á veðrinu stóð. Starfsmenn sveitarfélaga brugðust einnig við með fjölbreyttum hætti og mikið mun mæða á sveitarfélögum við hreinsunarstarf næstu daga og vikur.
Á síðustu árum hefur verið farið í margvíslegar aðgerðir til að verjast náttúruhamförum og koma á samtryggingu vegna slíkra tjóna. Forvarnir eins og vöktun, spár, lokanir, varnarmannvirki og uppkaup mannvirkja eru dæmi um slíkt. Náttúruhamfaratrygging Íslands gegnir svo lykilhlutverki í tryggingavernd auk þess sem verklag stjórnvalda í viðbrögðum og úrvinnslu er í stöðugri þróun. Þá spila lögboðnar og valfrjálsar tryggingar sem keyptar eru af tryggingarfélögum inn í verndina.
Orðið náttúruhamfarir samkvæmt lögum hefur ekki endilega sömu merkingu og í daglegu tali. Náttúruhamfaratrygging Íslands bætir þannig tjón á eignum af völdum jarðskjálfta, eldgosa, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða en ekki foktjón. Húseignir á Íslandi eru vátryggðar, en innbú og lausafé er það aðeins ef það er brunatryggt hjá sjálfstæðu tryggingarfélögunum. Staða atvinnurekanda er mun óljósari bæði hvað varðar lausamuni og framleiðslutjón og sérstaklega þarf að skoða stöðu bænda en 2009 urðu breytingar á Bjargráðasjóði sem veiktu stöðu þeirra.
Verkefni tengd náttúruhamförum falla undir starfsvið margra ráðuneyta t.d. umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, matvælaráðuneytis, innviðaráðuneytis, auk þess sem fleiri ráðuneyti geta komið að málum. Ítrekað hefur verið gagnrýnt að yfirsýn og ábyrgð á samræmi og samhæfingu verkefna tengdri náttúruvá sé óljós.
Í kjölfar óveðursins í desember 2019 var ráðist í afar umfangsmiklar aðgerðir til að greina og byggja upp áfallaþol samfélagsins alls. Meta þarf það verklag sem notast hefur verið við á síðustu árum við samhæfingu aðgerða og læra af reynslunni til frekari framfara.
Við álítum mikilvægt og tímabært að gera heildarúttekt á verklagi og aðgerðumog leggjum því í þriðja sinn fram þingsályktunartillögu um að gerð verði úttekt á tryggingavernd og úrvinnslu tjóna í kjölfar náttúruhamfara. Meðflutningsmenn koma úr öllum þingflokkum og á síðasta löggjafarþingi bárust 10 umsagnir sem styðja tillöguna og draga fram að fara þarf í aðgerðir sem flýtt geta úrvinnslu eftir tjón, stuðlað að frekara jafnræði og sanngirni og fækkað úrlausnarefnum sem stafa af óljósum reglum.
Samhliða því munum við beita okkur fyrir að samræmi í viðbrögðum við náttúruvá verði bætt og ágallar lagfærðir.
Líneik Anna Sævarsdóttir, Ingibjörg Isaksen og Þórarinn Ingi Pétursson, þingmenn Framsóknar og íbúar í NA kjördæmi.
Greinin birtist fyrst á visir.is 30. september 2022.
30/09/2022
Sjálfviljug samfélagsleg ábyrgð sveitarfélaganna útrunninnHalldóra Fríða Þorvaldsdóttir, varaþingmaður, sagði í störfum þingsins á Alþingi að sjálfviljug samfélagsleg ábyrgð sveitarfélaganna að veita umsækjendum um vernd þjónustu sé útrunninn. Reykjavíkurborg, Reykjanesbær og Hafnarfjarðarbær hafa um árabil sinnt þjónustu við umsækjendur um vernd og álitið það vera samfélagslega mikilvægt. Stofnanir ríkisins hafa ítrekað leitað til fleiri sveitarfélaga með ósk um samstarf án árangurs. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun er fjöldi þeirra sem sóttu um vernd frá janúar og fram í ágúst á þessu ári er 2.552. Á undanförnum árum hafa í kringum 900 manns óskað eftir vernd á Íslandi ár hvert.
„Það er ljóst að aukinn fjöldi flóttafólks leitar til Íslands og því gengur ekki upp að þjónustan sé einungis í höndum þriggja sveitarfélaga sem eru ítrekað beðin um að stækka samninga sína þrátt fyrir ákall um að fleiri sveitarfélög komi að verkefninu,“ sagði Halldóra Fríða.
Vinnumálastofnunin leigir húsnæði í sveitarfélögunum þremur og sér um þjónustuna á meðan beðið er eftir að vernd sé veitt. Þá færist fólk sjálfkrafa yfir á sveitarfélagið þar sem búseta er nú þegar til staðar. Á sama tíma þarf fólk að nýta þá innviði sem til staðar eru í sveitarfélögunum, svo sem menntastofnanir, heilbrigðisþjónustu og löggæslu.
„Virðulegi forseti. Ég hvet hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra til að setja kraft í þessa vinnu og að horfa til verklags sem notað er í Danmörku þar sem farið er eftir kvótaákvörðun við val á sveitarfélagi í móttöku flóttafólks með einfaldri reiknireglu sem miðar við hlutfall íbúa.
Þannig geta önnur sveitarfélög, og þá sérstaklega á stórhöfuðborgarsvæðinu, ekki skautað fram hjá móttöku fólks á flótta,“ sagði Halldóra Fríða að lokum.
29/09/2022
Ný þjóðarhöll í íþróttumVið Íslendingar höfum átt öflugt íþróttafólk í gegnum tíðina í mörgum íþróttum sem náð hefur undraverðum árangri undir fána smáþjóðar. Samkeppnin harðnar stöðugt og í dag er ekki lengur nóg að hafa hæfileika og metnað til að komast í fremstu röð. Fyrsta flokks aðstaða til íþróttaiðkunar skiptir einnig höfuðmáli.
Málefni þjóðarleikvanga í íþróttum hafa verið til umræðu um alllangt skeið. Kjarni málsins er að okkar fremsta afreksfólk og landslið hafa ekki aðgang að æfingaraðstöðu eða mannvirkjum sem uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til slíkrar aðstöðu í dag. Núverandi þjóðarleikvangar eru komnir til ára sinna og aðstaðan úrelt. Kröfurnar snúa ekki eingöngu að aðstöðu til íþróttaiðkunar heldur einnig að aðstöðu og aðgengi fyrir fjölmiðla, öryggi og jákvæðri upplifun áhorfenda. Með auknum kröfum vegna alþjóðlegrar keppni er jafnframt hætta á því að heimaleikir íslenskra landsliða, sem nú eru haldnir á undanþágu, geti ekki farið fram hér á landi. Við það verður ekki unað og það er forgangsverkefni að hraða byggingu þjóðarleikvanga í íþróttum eins og kostur er.
Eitt af mínum fyrstu verkum sem ráðherra íþróttamála var að skipa stýrihóp um undirbúning uppbyggingar þjóðarleikvanga fyrir innanhússíþróttir, knattspyrnu og frjálsíþróttir. Víðtækt samtal átti sér stað við íþróttahreyfinguna og Reykjavíkurborg og er myndin byrjuð að skýrast. Byrjað verður á þjóðarhöll í innanhússíþróttum en undirbúningur fyrir nýja þjóðarleikvanga í knattspyrnu og frjálsíþróttum heldur áfram samhliða.
Þann 6. maí síðastliðinn var undirrituð viljayfirlýsing með forsætisráðherra og borgarstjóra Reykjavíkur um byggingu nýrrar þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir í Laugardalnum. Viljayfirlýsingin er fjórþætt. Í fyrsta lagi að ráðist verði í byggingu Þjóðarhallar í samstarfi ríkis og Reykjavíkurborgar, í annan stað að Þjóðarhöllin verði í Laugardal, í þriðja lagi að skipuð verði framkvæmdanefnd og í fjórða lagi að framkvæmdum ljúki árið 2025.
Framkvæmdanefndin hefur hafið störf og það var ánægjulegt að taka þátt í fyrsta fundi nefndarinnar í ágúst. Mikill hugur, kraftur og jákvæðni var í hópnum. Hún vinnur nú að því að skilgreina mannvirkið, ákvarða rekstrarform og áætla kostnað. Fyrsti fasi verkefnisins er í fullum gangi og samkvæmt áætlun.
Við Íslendingar gerum miklar kröfur til íþróttafólks um afrek og framúrskarandi árangur. Það er eðlilegt að íþróttafólk og hreyfingin öll geri kröfur til stjórnvalda um viðunandi aðstöðu til að hámarka árangur.
Eins vel og Laugardalshöllin hefur þjónað íslensku íþróttalífi er hún barn síns tíma. Með nýrri höll í Laugardalnum verður umgjörð fyrir faglega þætti starfsins, fjölmiðla og áhorfendur eins og best verður á kosið. Við ætlum að klára verkefnið og sjá til þess að afreksíþróttafólk okkar Íslendinga geti notið aðstöðu á heimsmælikvarða.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra og ritari Framsóknar.
Greinin birtist fyrst á visir.is 29. september 2022.